Fréttablaðið - 20.12.2013, Síða 42
FRÉTTABLAÐIÐ Jólastemning. Jólagjöfin. Tónlist. Hafrún Alda Karlsdóttir. Ilmur. Heimili. Dagatal og kökugotterí. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr.
2 • LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013
HVERJIR
HVAR?
Umsjón blaðsins
Marín Manda Magnúsdóttir
marinmanda@frettabladid.is
Umsjón Lífsins á Vísir.is
Ellý Ármanns
elly@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Forsíðumynd
Helgi Ómarsson
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Lífið
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
www.visir.is/lifid
Lífi ð
Hamingja, fólk og
annað frábært
Sjá fleiri myndir á
JÓLAKJÓLAR Í FLASH
20% afsláttur til jóla
Þórunn Hulda Vigfúsdóttir
förðunarfræðingur.
Í
ár ákvað ég að hafa
smá gamaldags fíl-
ing og nota kúlur í
ýmsum litum, t.d. gull
og brúnt, með blúnd-
um. Ég hef aldrei verið
að festa mig í einhverju
ákveðnu þema, fjölskyldunni
til mikillar ánægju. Á þriðja í aðventu keyptum
við jólatré og spennan var svo mikil hjá dætr-
um mínum að við ákváðum að skreyta snemma í
ár. Þessi yndislegi jólatími er alltof stuttur svo til
hvers þá að vera að bíða. Að skreyta tréð er mikil
athöfn hér á heimilinu og dætur mínar taka virk-
an þátt. Þá fáum við okkur eitthvað gotterí og
hlustum á jólalög með Baggalút.
Eva Sæland
starfar hjá Kronbykronkron.
B
örnin mín eru fædd erlendis og fórum
við ávallt til Íslands yfir hátíðarnar. Ef
við hefðum haldið okkur við þær hefðir
sem ég ólst upp við sem barn þá hefðum
við aldrei skreytt tréð né heimilið okkar
úti. Ég tók því upp á því að skreyta snemma svo
að börnin upplifðu jólastemninguna heima hjá
sér, ekki bara á flakki milli ættingja á Íslandi.
Þemað í ár er rautt og hvítt því það er svo jóla-
legt. Ég keypti fyrsta skrautið á tréð í þeim
litum fyrir nokkrum árum og hef haldið mig við
það. Yfirleitt bætast nokkrar nýjar kúlur í safn-
ið á hverju ári. Ég setti ljósaseríuna á en börn-
in allt annað skraut. Hingað til hef ég svo þurft
að „laga“ eftir þau en í ár skreyttu þau af mikilli
lyst og mamman ansi ánægð með árangurinn.“
JÓLIN SVONA SKREYTI ÉG Í ÁR
Flestir halda í þá hefð að skreyta jólatréð á Þorláksmessu en sumir geta alls ekki beðið.
Þ
etta er í fyrsta sinn sem við flestöll
tökum þátt í svona uppákomu en við
viljum gjarnan hitta sem flesta lesend-
ur okkar á markaðnum,“ segir Elísabet
Gunnarsdóttir, tískubloggari og annar
eigandi Trendnet.is. Bloggarar síðunnar halda
fata- og vörumarkað á Kexi hosteli á morgun,
laugardag milli kl. 12-18 og boðið verður upp
á jóladrykki og snarl. „Þetta verður sannköll-
uð jólagleði og það verður eitthvað í boði fyrir
alla. Við sem búum erlendis komum heim
með ansi mikla yfirvigt því við vorum að losa
um í fataskápunum. Svo verður Theódóra að
selja nýju hárbókina sína, Hilrag verður með
svokallaða Einveru PopUp verslun og Svana
vöruhönnuður verður með fullt af fallegum
heimilismunum,“ útskýrir Elísabet.
Trendnet.is sameinar nokkra af helstu lífs-
stíls-, tísku- og hönnunarbloggurum landsins
undir einum hatti en það eru þau
Elísabet Gunnarsdóttir, Helgi Ómarsson,
Theodóra Mjöll, Ása Regins, Erna Hrund Her-
mannsdóttir, Svana Lovísa, Þórhildur Þorkels-
dóttir, Andrea Röfn, Pattra Sriyanonge, Hild-
ur Ragnarsdóttir og Karen Lind. Á markaðnum
kennir ýmissa grasa en þar munu meðal ann-
ars tveir lukkulegir lesendur taka við jólagjafa-
bréfi frá Icelandair. Dregið verður úr Trend-
net-jólapottinum í dag. „Það er svo gaman að
gleðja og við vonum að fólk kíki á okkur á rölt-
inu í miðbænum.“ segir Elísabet glöð í bragði.
TÍSKA TRENTNET GLEÐI Á KEX
Landsþekktir bloggarar halda jólalegan fata-og vörumarkað á Kexi hosteli á laugardag-
inn milli kl. 12 og 18 en þar er að fi nna eitthvað fyrir alla.
Andrea Röfn, Theodóra Mjöll og
Elísabet Gunnarsdóttir Trend-
net-bloggarar.
MYND/STEFÁN
Ásta Sveinsdóttir
meðeigandi Roadhouse og suZushii.
V
ið ákváðum að skreyta tréð mjög
snemma í ár vegna þess að við eyðum
jólunum í Vestmannaeyjum þetta árið.
Við erum með fallegt hvítt tré en ég
dáðist alltaf að gulltrénu sem amma
og afi áttu þegar ég var lítil en ég fann ekki
gulltré. Skrautinu höfum við sankað að okkur
undanfarin ár eftir að ég hóf búskap. Postulín
geisur, hnetubrjótar, hreindýr, postulín-svepp-
ir, gler og flauelskúlur í mismunandi litum. Við
vildum hafa svolítið af andstæðum og því er
þetta svolítið skipulagt kaós-þema. Dóttir mín
hjálpaði mér að skreyta á meðan við hlustuð-
um á James Last Christmas Album. Hún kast-
aði síðan litlum stjörnum sem festast á trénu
líkt og ég gerði sem lítil stelpa.
Það var margt um manninn á
Kalda bar á þriðjudaginn síðast-
liðinn og margir sem fengu sér
bjór eftir jólagjafainnkaupin. Þar
voru meðal annars í miklu stuði
Erna Bergmann, Hulda Hall-
dóra Tryggvadóttir og Ellen
Loftsdóttir, en þær starfa
allar sem stílistar. Sú síð-
astnefnda býr og starfar
í Danmörku. Á Ölstofunni
síðar um kvöldið mátti sjá
Ásdísi Rán skarta nýju
klippingunni og Vilhelm
Anton Jónsson, útvarps-
mann og höfund, betur
þekktan sem Villa nagl-
bít, í góðu yfirlæti.