Fréttablaðið - 20.12.2013, Qupperneq 46
FRÉTTABLAÐIÐ Tónlist. Hafrún Alda Karlsdóttir. Ilmur. Heimili. Dagatal og kökugotterí. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr.
6 • LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013
Í
sland hefur verið vinsæll viðkomustaður
meðal stjarnanna undanfarin ár, hvort
sem er innan kvikmynda- eða tónlistar-
iðnaðarins og færist það enn í aukana.
Nú hafa pólskar stjörnur einnig kom-
ist á bragðið en milli jóla og nýárs er von
á tónlistartvíeyki til landsins sem hyggst
taka upp tónlistarmyndband fyrir verk-
efnið „1000 places“. Söngkonan Ada Szulc
og Dj Adamus eru dúett sem njóta gífur-
legra vinsælda í Póllandi um þessar mund-
ir. Szulc vann X-Faktorkeppnina í Póllandi
en hefur einnig sungið inn á pólskar kvik-
myndir og pólska Disney-framleiðslu. Dj
Adamus er best þekktur fyrir danstónlist
sína en hann hefur samið tónlist síðastliðin
tíu ár fyrir sjónvarp, leikhús og kvikmynd-
ir. Lífið ræddi við Dj Adamus um væntan-
lega heimsókn.
Segðu örlítið frá verkefninu „1000
plac es“ eða 1000 staðir.
„Hugmyndin að verkefninu tengist ósk
okkar um að heimsækja þúsund staði
áður en við deyjum. Forsendan fyrir
verkefninu er ekki aðeins tengd tón-
listinni heldur einnig sjónrænni upplif-
un og þess vegna viljum við ferðast með
tónlist okkar á áhugaverða og ótrúlega
staði. Tónlistin er að vissu leyti innblás-
in af þeim stöðum sem sýndir eru í mynd-
böndunum en sem dúett eru persónuleik-
ar okkar og tónlistarbakgrunnur mismun-
andi.“
Um hvað fjallar lagið í myndbandinu
sem tekið verður upp hér á landi?
„Titill pólsku útgáfunnar er „Allt eða ekk-
ert“ og lýsir því örlítið að stundum miss-
um við eitthvað allt of hratt. Stundum
erum við of blind til að sjá smáu hlutina í
kringum okkur og svo þegar við missum
þá er of seint í rassinn gripið. Lagið minn-
ir okkur á að gera eitthvað mikilvægt á
hverjum degi þrátt fyrir að það sé lítið,
því tíminn hleypur frá okkur öllum.
Enska útgáfan heitir Ocean og hefur
annan texta. Hann tengist meira Íslandi
og fegurð landsins. Þetta eru í raun tvö
sjálfstæð verk.“
Hvenær er nýja platan væntanleg?
„Platan kom út 11. nóvember í Póllandi en
við erum einnig að gera enska útgáfu af
öllum lögunum og myndbönd á tveimur
tungumálum svo að heimsfrumsýning er
áætluð í byrjun 2014.
Hafið þið ekki hugsað ykkur að vera
hér yfir áramótin?
„Hluti af hópnum vill vera áfram á Ís-
landi þegar nýja árið gengur í garð en
við hin verðum að fara til baka til Var-
sjár eftir tökurnar. Það er án efa mögn-
uð tilfinning að vera á svona köldum og
fallegum stað þegar nýja árið færist yfir
en á þessari stundu einbeitum við okkur
að myndbandinu, sem er algjörlega að
gleypa okkur.“
Hvers vegna varð Ísland fyrir valinu?
„Áætlun okkar var að sýna ótrúlega hríf-
andi og skemmtilega staði í heiminum í
okkar fyrsta myndbandi en við völdum
fyrst Kúbu. Síðan fórum við til Japans og
nú er komið að Íslandi en þar er hægt að
að ná skotum af magnþrungnum tilfinn-
ingum, spennandi menningu og landslagi.
Á Kúbu vildum við fanga tilfinninguna
af hlýju loftslagi og í Tókýó náðum við að
sýna framúrstefnulega tæknimenninguna.
Á Íslandi viljum við tengja betur við nátt-
úruna en tónlistin okkar býður upp á allan
þennan fjölbreytileika. Við höfum feng-
ið mikinn stuðning frá góðum Íslending-
um en án umboðsmannsins okkar, Magdal-
enu Dybka, og fleiri á borð við Gunnhildi
Gunnars, Söru McMahon, Andra Frey,
Alexander Zaklynsky og Boston-fólk-
ið væri þetta ekki framkvæmanlegt. Við
erum mjög spennt og hlökkum til að upp-
lifa þetta ævintýri því þetta myndband er
okkur afar mikilvægt,“ segir Dj Adamus.
TÓNLIST PÓLSKUR DÚETT TIL LANDSINS
Söngkonan Ada Szulc og Dj Adamus njóta gífurlegra vinsælda í heimalandi sínu, Póllandi, fyrir tónlist sína. Milli jóla og nýárs koma þau til Íslands.
Dj Adamus og Ada Szulc stefna á að ferðast um allan heim og upplifa framandi staði. Ísland varð fyrir valinu að þessu sinni.
Verslunin hefur verið í Kringlunni frá 1998. Hún
hefur verið í eigu Ara Steinþórssonar og Oddnýj-
ar Teitsdóttur frá upphafi. „Það hefur alltaf geng-
ið mjög vel hjá okkur og við eigum marga trygga
viðskiptavini sem þekkja vörurnar okkar,“ segir
Ari. „Búðin er troðfull af alls kyns sokkabuxum og
sokkum. Aðalmerkið sem við erum með er FALKE
frá Þýskalandi. Sokkarnir og sokkabuxurnar frá
þeim eru þekkt fyrir þægilegt snið og góða end-
ingu. Við erum líka með Happy Socks-sokka frá
Svíþjóð. Einnig bjóðum við upp á mikið úrval af
vörum frá Trasparenze, Bonnie Doon og fleirum.
Þá má ekki gleyma vönduðum og mjúkum leð-
urskóm á ungbörn á mjög góðu verði,“ segir Ari.
Starfsfólk Cobru leggur áherslu á að veita góða
þjónustu og viðskiptavininum er leiðbeint við að
finna réttu stærðirnar.
„Það hefur verið draumur okkar í mörg ár að láta
framleiða fyrir okkur glaðlega og litríka grínsokka.
Í lok nóvember kom fyrsta sendingin af nýrri vöru-
línu okkar sem heitir KIKK. Þetta eru sokkar úr
bómull í stærðum 36-40 og 41-46 og eru með
myndum, texta eða grafísku mynstri. Sokkarn-
ir henta vel sem tækifærisgjöf og það er sniðugt að
stinga þeim í jólapakkann til að skapa smá gleði á
aðfangadagskvöld,“ segir Ari. „Það er líka bara svo
gaman að byrja daginn á að klæða sig í svona djók
sem getur skapað skemmtilegar samræður við
vini eða vinnufélaga. Móttökurnar eru frábærar og
sokkarnir hafa selst eins og brakandi laufabrauð.
Við kynntumst þremur mjög góðum hönnuðum
í Bretlandi sem hafa hannað sokkana eftir okkar
hugmyndum. Við völdum að framleiða þá í S-Kór-
eu þar sem við höfum góða reynslu af sokkum
þaðan. Nú þegar höfum við fengið pöntun frá aðila
í Singapúr sem ætlar að dreifa sokkunum okkar
þar, þannig að við vonum að það sé bara byrj-
unin á að við getum selt þá víðar. Eins og er selj-
um við sokkana í Sokkabúðinni Cobru Kringlunni,
Iðu í Lækjargötu og versluninni Konur og menn á
Ísafirði.“ Sokkabúðin er virk á samfélagsmiðlinum
Face book þar sem myndir af nýjum vörum eru birt-
ar en þar er einnig hægt að fylgjast með afslætti
og tilboðum.
Hægt er að skoða og panta á
www.cobra.is.
FLOTTIR GRÍNSOKKAR Í JÓLAPAKKANN
Sokkabúðin Cobra er sérverslun með sokka og sokkabuxur af öllum gerðum og stærðum fyrir alla fjölskylduna. Cobra býður meðal annars upp
á alls kyns grínsokka sem eru íslensk/bresk hönnun.
Frábært starfs-
fólk er í
Cobru, Katla
Hlöðversdótt-
ir og Andrea
Lilja Sigurðar-
dóttir. Verslun-
in er á fyrstu
hæð Kringl-
unnar.
MYND/DANÍEL
Mjúkir og
þægilegir ung-
barnaskór
fyrir stelpur og
stráka.
AUGLÝSING: COBRA KYNNIR