Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 48
FRÉTTABLAÐIÐ Hafrún Alda Karlsdóttir. Ilmur. Heimili. Dagatal og kökugotterí. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr. 8 • LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013 H afrún Alda ólst upp á Borðeyri við Hrúta- fjörð hjá ömmu sinni og afa en flutti til borgarinnar átta ára gömul. Hafrún Alda segist hafa átt fullt af draumum þegar hún var yngri en einna helst lang- aði hana að bjarga heiminum eða að verða bóndi. Hún var mikið náttúrubarn sem erfitt var að ná úr stígvélunum, því best leið henni þegar hún var skítug upp fyrir haus. Tímarnir hafa breyst til muna og í dag býr hún í stór- borginni Kaupmannahöfn, starf- ar með þekktum hönnuðum og stýrir sínu eigin tískuveftímariti, BAST Magazine. Hvenær fluttir þú til Dan- merkur og hvers vegna? „Í janú- ar árið 2007 flutti ég til Parísar. Ég var orðin leið á því að vera á Íslandi og langaði að prófa eitt- hvað nýtt. París þekkti ég reynd- ar ágætlega þar sem ég hafði búið þar í skamman tíma árið 2004. París er æðisleg borg og ég sakna þess oft að búa þar. Ég flutti svo til Kaupmannahafnar í júní 2007 þegar ég fékk atvinnu- tilboð hjá dönskum fatahönnuði. Rúmlega sex árum seinna er ég enn þá hér. Danski hönnuðurinn reynd- ist vera Henrik Vibskov, ekki satt? Hvernig kom það til? „Ég datt eiginlega alveg óvart þar inn. Ég prófaði að sækja um og var boðin „intern“-staða í þrjá mánuði í sölu- og markaðsdeild- inni hjá Henrik Vibskov. Ég var svo fastráðin í kjölfarið. Þetta var ótrúlega lærdómsríkur tími. Ég kynntist fullt af frábæru fólki og ég held enn þá góðu sambandi við gömlu vinnufélagana. Henrik Vibskov er einstaklega klár og mikill fagmaður þannig að það var frábært að fá að fylgjast með og taka þátt frá innsta hring. Ég hef samt aldrei lært neitt í fata- hönnun en hafði þó nokkra sölu- reynslu frá fyrri störfum sem nýttust mér vel.“ Fyrirsætuferillinn ekki glamúr Hafrún Alda bjó bæði í París og New York nokkrum árum fyrir Kaupmannahafnarævintýrið og starfaði sem fyrirsæta á vegum Eskimó Módels þegar hún var að- eins 19 ára gömul. „Það var ótrú- lega skemmtilegur tími, Eski- mó Módels reyndust mér vel og ég kynntist fullt af skemmtilegu fólki. Annars var þetta nú aldrei neitt fyrir mig, ég hafði alltaf miklu meiri áhuga á því sem var að gerast bak við myndavélina og öllu ferlinu sem því fylgdi. Ég var því ekki lengi í mód- elbransanum. Ég var eitt sumar í New York sem ég fílaði strax rosalega vel en flutti svo aftur heim til að fara í skólann. Þegar ég flutti fyrst til Parísar leigði ég ásamt nokkrum íslenskum vin- konum mínum hrikalega íbúð á fyrstu hæð. Rakalyktin yfir- gnæfði allt og það eina sem við borðuðum var baguette með tóm- ötum og mozzarella. Þegar ég kom til baka til Íslands þurfti ég að henda töskunum mínum og megninu af fötunum mínum sem lyktuðu af fúkkalykt. Það var því ekki mikill glamúr í þeirri ferð. Hins vegar notaði ég tímann vel í að skoða borgina og kynnast frönsku menningunni sem hefur alltaf heillað mig.“ Hvernig líkar þér þá að búa í Kaupmannahöfn? „Borgin er æðisleg. Hún er ekki of stór og maður kemst allra sinna ferða á hjóli. Það er alltaf eitthvað spennandi að gerast hér innan tónlistar og tísku og svo er stutt að fara héðan til að ferðast um Evrópu. Helsti galli við Kaup- mannahöfn er kannski að maður hefur ekki fjölskylduna sína ná- lægt sér og því þarf maður að reiða sig á sjálfan sig. Það er til dæmis ekkert hlaupið að því að fá pössun. Ég hef þó kynnst fullt af frábæru fólki hér sem er ómetanlegt.“ Skipstjórinn á BASTi Hafrún Alda stofnaði bloggsíðu og veftímaritið BAST Magazine árið 2011 ásamt Írisi Dögg Ein- arsdóttur og Sif Kröyer en stýr- ir blaðinu ein í dag með hjálp ým- issa samstarfsaðila í bransanum. Hvaða áherslur eru í blaðinu og hvert eruð þið að stefna með vefútgáfunni? „Helstu áherslur BAST Magazine eru að kynna skandinavíska tísku, tónlist, list- ir og menningu og við munum halda því áfram. BAST hefur fengið frábærar móttökur og við erum með stóran fastan lesenda- hóp. Fram undan eru spennandi samstarfsverkefni þannig að það er nóg að gera á næstunni. Þetta er harður bransi og maður þarf að hafa bein í nefinu. Það er gríð- arleg samkeppni á þessum mark- aði og margir að gera flotta hluti. Blaðið er rekið með auglýsing- NAFN Hafrún Alda Karlsdóttir ALDUR 30 STARF Ritstjóri og eigandi Bast Magazine HJÚSKAPARSTAÐA Í sambúð með Hjalta Þór Sverrissyni BÖRN Erpur Hjaltason 5 ára Uppáhalds MATUR Sushi. DRYKKUR Vatn, kaffi og TOKYO á Boutique Elise á Istedgade. VEITINGAHÚS Sticks and Sushi og Grái Kötturinn. VEFSÍÐA www.bast-magazine.com. VERSLUN Spútnik, Kiosk, Weekday, Dover Street Mark et. HÖNNUÐUR Alexander Wang, ACNE, KALDA, Asger Juel Larsen, Henrik Vibskov. HREYFING Ég hjóla allra minna ferða. DEKUR Kíkja í búðir, setjast niður með kaffibolla og lesa tímarit. HAFRÚN ALDA MAÐUR ÞARF AÐ HAFA BEIN Í NEFINU Í HÖRÐUM BRANSA Hafrún Alda Karlsdóttir lifi r og hrærist í tískubransanum í Kaupmannahöfn en hún rekur veftískutímaritið BAST Magazine. Blaðið þykir sérstaklega áhugavert og hefur lesendur í yfi r fi mmtíu löndum. Lífi ð ræddi við Hafrúnu um búsetuna erlendis, módel- og tískubransann og hvers vegna hún var skírð átta ára. gömul. um og svo fékk BAST styrk þegar það var stofnað. Með nýrri heim- síðu sem fer í loftið í nýju ári verður möguleiki á að hafa aug- lýsingar á síðunni. Ég þéna ekki fullt af peningum á þessu enn þá en það lítur vel út fyrir að BAST Magazine geti rúllað vel með hækkandi lesendatölum.“ Hefurðu velt fyrir þér að gefa út blaðið á prenti? „Ég hef oft hugsað um að setja BAST í prent, það væri mjög gaman. Tíunda tölublaðið kemur út í febrúar, hver veit nema að maður geri eitt- hvað skemmtilegt í tilefni þess.“ Hvers vegna skrifið þið á ensku? „Við vildum alltaf skrifa á ensku svo blaðið væri aðgengi- legt sem flestum, og þar af leið- andi höfum við lesendur um allan heim eða í yfir 50 löndum.Við höfum meðal annars lesendur frá Sádi-Arabíu, Brasilíu og Úkr- aínu svo eitthvað sé nefnt. Það er gaman að sjá hvað það er mik- ill áhugi utan að frá í því sem er að gerast hérna í litlu Skandi- navíu. Ég er með stórt teymi á bak við BAST. Það er meðal ann- ars Ellen Lofts sem er tískurit- stjóri, Kristín Larsdóttir Dahl sem er tónlistarritstjóri, Arnar Freyr sem er grafískur hönnuður, Snjólaug Lúðvíksdóttir sem les prófarkir og svo er ég með „free- lance“ penna sem skrifa fyrir bæði heimasíðuna og sjálft blaðið. Við erum því mörg sem stöndum á bak við hvert tölublað. Það má kannski segja að ég sé skipstjór- inn en BAST væri ekki það sem það er í dag ef ég væri ekki með allt þetta frábæra fólk með mér.“ Þú hlýtur að vera með gott tengslanet með alla þessa fögru tískuþætti frá Evrópu, er það ekki? „Okkur berst mjög mikið af tískuþáttum og færri kom- ast að en vilja. Við erum með gott tengslanet en mest af efn- inu berst frá fólki sem hefur verið að lesa tölublöðin okkar og fylg- ist með okkur á heimasíðunni og telur að BAST sé góður vett- vangur til að koma sinni vinnu á framfæri. Margir hafa svo feng- ið ný og spennandi verkefni í kjöl- farið þannig það er alltaf mjög gaman að fylgjast með fólki vaxa og dafna í bransanum. Við erum í samstarfi við ljósmyndara og MYND/HELGI ÓMARSSON IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.