Fréttablaðið - 20.12.2013, Síða 49
FRÉTTABLAÐIÐ
LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013 • 9
Henrik Vibskov
er einstaklega
klár og mikill
fagmaður
þannig að það
var frábært að fá
að fylgjast með
og taka þátt frá
innsta hring.
Ýmis tölublöð Bast Magazine.
Myndaalbúmið
stílista, einnig tónlistar- og
listafólk víðs vegar að. Oftast eru
það nýir aðilar í hverju tölublaði.“
Nýlega frumsýnduð þið tísku-
stuttmynd í samstarfi við Narvi
Creative. Í hvaða tilgangi var
stuttmyndin gerð? „Narvi Creat-
ive hefur unnið að mörgum
skemmtilegum verkefnum og
okkur hjá BASTi langaði til að
gera verkefni með þeim en úr
varð tískumyndin Beat Street.
Okkur langaði að taka nýjan vink-
il á tískuþætti, hafa hann í lifandi
formi því það eru margir mögu-
leikar á að kynna tísku í öðru
en hefðbundnum tískuþætti. Við
fengum herramódelið Zakaria
Khiare til að leika aðalhlutverkið
en hann hefur unnið fyrir marga
stóra hönnuði. Þetta var ótrú-
lega skemmtilegt verkefni og við
erum mjög ánægð með útkomuna.
BAST á pottþétt eftir að vinna
fleiri verkefni í svipuðum dúr.“
Var skírð 8 ára gömul
Hefur þú alltaf verið meðvituð
um tísku og hönnun?
„Ég hef alltaf verið með það á
hreinu í hverju ég vil vera, þó ég
hafi nú kannski ekki alltaf verið
mjög smart. Mín fyrsta minn-
ing um það er þegar ég var skírð.
Ég var 8 ára gömul og mamma
fór með mig til Reykjavíkur að
velja skírnarföt. Ég féll alveg
fyrir rauðri pilsdragt með hvít-
um doppum og hárspöng með
risastórri rós og mér varð ekki
haggað, alveg sama hvað mamma
reyndi að sýna mér, það var bara
þessi dragt. Ég fékk hana að
sjálfsögðu og ég man vel enn í
dag hvað mér fannst ég ótrúlega
flott í henni.“
Af hverju heillar tískubrans-
inn svona mikið? „Ég hef alltaf
heillast mikið af tískubransanum
frá því að ég var ung, ég byrjaði
að vinna í Morgan í Kringlunni
18 ára gömul. Svo vann ég sem
verslunarstjóri í Spútnik í þrjú
ár en þar sinnti ég líka innkaup-
um. Það er alltaf áhugavert að sjá
hvað hönnuðir sækja mikinn inn-
blástur í „vintage“ sem sést oft
svo greinilega. Tískubransinn
hér í Kaupmannahöfn er frekar
stór og er fatnaður stór útflutn-
ingsvara hér í Danmörku. Danska
ríkið passar upp á að styðja vel
við bakið á tísku- og menningar-
heimunum sem hefur skilað sér.
Danir státa af þekktum hönn-
uðum sem selja í fleiri hundr-
uð búðir úti um allan heim. Ég
hef alltaf haft gaman af tísku og
öllu sem henni fylgir og einhvern
veginn þá er allur vinahópur-
inn meira og minna á kafi í þess-
um bransa á einn eða annan hátt.
Engir tveir dagar eru eins og það
er alltaf eitthvað nýtt og spenn-
andi að gerast.
Það hefur verið mikil gróska
í íslenskri fatahönnun, áttu ein-
hverja uppáhaldshönnuði, ís-
lenska og erlenda? „Það eru
margir hönnuðir að gera frá-
bæra hluti bæði heima á Íslandi
og hérna erlendis. Ég fylgist mjög
vel með hvað er að gerast og sér-
staklega í Skandinavíu. Af ís-
lensku hönnuðunum verð ég að
nefna Kalda, Rey og Jör og hérna
úti eru það Anne Sofie Madsen,
Henrik Vibskov, Asger Juel Lar-
sen og Freya Dalsjö sem eru öll
að gera frábæra hluti. Ég er líka
alltaf mjög hrifin af tískurisan-
um ACNE og Alexander Wang
klikkar seint.“