Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 50

Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 50
FRÉTTABLAÐIÐ Hafrún Alda Karlsdóttir. Ilmur. Heimili. Dagatal og kökugotterí. Helgarmaturinn og Spjörunum Úr. 10 • LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013 Lyktin af greni, kanil og mandarínum segir nefi nu að jólin séu fram undan. Skemmtileg og ódýr leið til þess að heimilið ilmi hátíðlega er að búa til jólablöndu í pott sem þú hitar upp aftur og aftur og jólalegur ilmur dreifi st um heimilið og vekur góðar minningar og stemningu. Einnig er hægt að setja það sem til þarf í krukku eða fallegan poka ásamt leiðbeiningum og gefa sem gjöf. Blandaðu öllu saman í lítinn pott og helltu vatni yfir svo að það fljóti yfir. Stilltu helluna á lágan hita og leyfðu blöndunni að malla og þá mun ilm- urinn dreifast um heimilið. Svona blanda dugar í viku og er hægt að hita upp aftur og aftur, en muna þarf að bæta vatni í blönduna í hvert skipti. Appelsínu- og trönuberja- ilmur 1 appelsína, skorin í þunnar sneið- ar ½ bolli af ferskum trönuberjum 3 kanilstangir 1 matskeið af heilum negul Kryddaður eplailmur 1 epli, skorin í sneiðar 5 kanilstangir 2 matskeiðar af heilum negul 2 matskeiðar af nýmöluðu múskati appelsínubörkur eftir smekk Hafrún Alda klárar stúdentinn um jólin og segist tilbúin að takast á við hvað sem er í framtíðinni. Ég get vel eins og hinir Hafrún Alda situr á skólabekk ásamt því að ritstýra BAST Mag- azine. Hún lauk ekki stúdents- prófi á tilsettum tíma en segir að skólakerfið í Danmörku bjóði upp á námstækifæri sem ekki voru í boði á Íslandi. „Ég er að ljúka stúdentsprófi núna um jólin og svo er stefn- an tekin á markaðsfræði í febrú- ar. Ég er að klára stúdentinn svona meira fyrir sjálfstraust- ið til að sanna fyrir sjálfri mér að ég geti það eins og allir hinir. Ég var aldrei mikill lærdóms- hestur þegar ég bjó á Íslandi og skólakerfið í Danmörku er svo- lítið ólíkt og virðist henta mér betur. Það eru til að mynda yfir- leitt bara munnleg próf en ekki þessi týpísku skriflegu próf sem maður þurfti að þreyta heima á Íslandi. Það hefur gengið ótrú- lega vel að klára stúdentinn og ég á bara eitt próf eftir. Það verður klárlega skálað í kampa- víni og dansað fram á rauðanótt þegar þessum áfanga lýkur loks- ins. Ég hugsa að markaðsfræði geti nýst mér í allt mögulegt og hún er spennandi og praktískt nám. Ef mér snýst einhvern dag- inn hugur og ég nenni ekki leng- ur að vera að vinna við tísku- bransann þá get ég snúið mér að næstum hverju sem er.“ Hvar verðið þið fjölskyld- an um jólin og hvernig eru jólin þín? „Mamma, fósturpabbi minn og tvö yngri systkini mín búa í Kolding á Jótlandi sem er voða kósý. Við höfum oft verið hjá þeim á jólunum og þar sem við erum öll íslensk þá eru þetta allt- af mjög týpísk íslensk jól, með Rás 1 á fóninum og rjúpu eða önd í matinn með öllu tilheyrandi. Þau eru reyndar örugglega að flytja heim í sumar eftir níu ár í Danmörku, þannig að það verð- ur eflaust svolítið skrítið að hafa þau ekki. Við ætlum að vera á Ís- landi yfir jól og áramót og erum mjög spennt því við við náum að slappa af og hitta alla fjöl- skylduna. Svo förum við alltaf í Hrútafjörðinn þar sem amma og afi búa. Ég verð reyndar í próf- lestri svo það setur eitthvert strik í reikninginn þar sem ég er að fara í próf í janúar. Annars er ég voða lítið að stressa mig á jólunum, það er svona happa og glappa ef ég næ að skrifa jóla- kort. Við Erpur skelltum reyndar í piparkökur um daginn sem er mikið afrek út af fyrir sig.“ Við vildum allt- af skrifa á ensku svo blaðið væri aðgengilegt sem flestum, og þar af leiðandi höfum við lesendur um allan heim eða í yfir 50 löndum. ILMANDI HEIMILI Eitt best geymda leyndarmál náttúrunnar, Aloe Ferox, er uppistaðan í virkum innihaldsefnum EyeSlices gelpúðanna. Augnpúðarnir eru ofnæmisprófaðir og í þeim er hvorki paraben né latex. EyeSlices augnpúðar sameina öflugar jurtir úr náttúrunni annars vegar og margverðlaunaða nýsköpun hins vegar. Klínískar rannsóknir hafa sýnt að EyeSlices augnayndi vinnur á hrukkum, þrota, baugum, ummerkjum þreytu og rauðum augum. Gelpúðana þarf aðeins að nota í 5 mínútur í hvert sinn en þá má nota í 10 skipti. ferskleiki & fegurð án fyrirhafnar Nýtt á Ís landi EyeSlices augnayndi er tilvalin jólagjöf Lyfja, Lyf og heilsa, Hagkaup, Fríhöfnin, Fjarðarkaup, Garðsapótek, Akureyrarapótek, Árbæjarapótek, Apótekið Setbergi, Lyfjaver, Reykjavíkur apótek, Apótek Garðabæjar, Apótek Hafnarfjarðar, Reykjavík SPA, Sóley natura spa, Snyrtistofa Ásdísar, Snyrtistofan Dimmalimm, Snyrtistofan Mizú, Snyrti- og nuddstofan Paradís, Snyrtistofan Þema, Snyrtistofa Grafarvogs, Torfhildur Theodórs - Snyrtistofa Reykholti, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ, Snyrtistofan Abaco Akureyri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.