Fréttablaðið - 20.12.2013, Side 54
FRÉTTABLAÐIÐ Dagatal og kökugotterí . Helgarmaturinn og Spjörunum Úr.
14 • LÍFIÐ 20. DESEMBER 2013
S
trákarnir vildu ekki vera
á drottningarspilinu svo
við plötuðum Evu Sveins-
dóttur fitnessdrottn-
ingu til að sitja fyrir á
nokkrum myndum. Hún vann
með okkar í allt sumar í sumar-
afleysingum en hún er hjúkrun-
arfræðinemi sem vildi fá smá
reynslu á sjúkrabílinn,“ segir
Gunnar Steinþórsson slökkvi-
liðsmaður. Gunnar segir að ein
önnur kona starfi með Slökkvi-
liðinu en hún hafi ekki tekið
vel í það að sitja fyrir fáklædd
á myndum fyrir spilastokkinn
sem nú er fáanlegur í sölubás-
um bæði í Smáralind og Kringl-
unni á vegum Slökkviliðsins á
höfuðborgarsvæðinu. „Þetta er
sniðug smápakkagjöf sem inni-
heldur myndir af slökkviliðs-
og sjúkraflutningamönnum sem
hafa setið fyrir á dagatölunum
okkar í gegnum tíðina. Þetta er
eins konar „The Greatest Hits“
úr dagatölunum.
Þetta er í sjöunda sinn sem
Slökkviliðið gefur út daga-
tal en útgáfan er liður í fjár-
öflun vegna þátttöku á heims-
leikum slökkviliðs-og lögreglu-
manna. Heimsleikarnir eru
íþróttaviðburður sem hald-
inn er annað hvert ár en næst
verða þeir haldnir í Fairfax árið
2015. Gunnar segir dagatal-
ið hafa fengið frábær viðbrögð
og sé mjög vinsælt. Sérstak-
lega hafi spilastokkurinn hitt
beint í mark. Við erum einnig
að selja reykskynjara, slökkvi-
tæki og eldvarnarteppi fyrir
jólin og förum yfir eldvarnirn-
ar á heimilinu með fólki svo við
stöndum ekki bara með dagatal-
ið í höndunum á sölubásunum,“
segir Gunnar hlæjandi. Nánar
um dagatalið á Facebook-síðunni
Heimsleikafarar slökkviliðs-
manna höfuðborgarsvæðisins.
DAGATALIÐ FÁKLÆDDIR
SLÖKKVILIÐSMENN HEILLA
Dagatalið er fjáröfl un slökkviliðsmanna á höfuðborgarsvæðinu fyrir heimsleika lögreglu
og slökkviliðsmanna.
Spilastokkurinn sem inniheldur myndir
af slökkviliðsmönnunum.
JÓLATRÉ
3 msk. smjör
1 poki sykurpúðar (um 40 stk.)
6 bollar Rice Krispies
Grænn matarlitur
Skraut
Hvítt súkkulaði (um 100-150g)
Kökuskraut að eigin vali/
nammi
Íspinnaprik
Annað sem þarf
Bökunarpappír
Matarolía/sprey
Piparkökumót (jólatré)
- Bræðið smjör í stórum potti við
lágan hita.
- Bætið sykurpúðunum út í og
hrærið þar til þeir hafa bráðnað
alveg saman við smjörið.
- Setjið nokkra dropa af græn-
um matarlit í blönduna og hrær-
ið vel, bætið við eftir því hversu
dökk þið viljið hafa trén.
- Bætið Rice Krispies út í, einum
bolla í einu og hrærið vel.
- Setjið bökunarpappír á plötu/
bakka og hellið blöndunni þar á.
- Spreyið/berið matarolíu á
sleif og dreifið úr blöndunni
á bökunarpappírnum. Notið
þykktina á piparkökumótinu
ykkar til að áætla þykktina
(betra að hafa aðeins þykkari
en þynnri til að koma prikinu í)
- Þegar þykktin er um það bil
sú sama er gott að leggja bök-
unarpappír ofan á blönduna
og pressa létt með stórri bók til
að trén muni verða sem sléttust
þegar stungið er út.
- Kælið, berið matarolíu á pip-
arkökumótið (svo það klístr-
ist ekki við) og stingið síðan út
eins mörg jólatré og þið getið
og stingið pinnanum svo í, sé
þess óskað.
- Bræðið hvítt súkkulaði (má
líka vera flórsykursblanda/
icing), klippið lítið gat á zip-
lock poka (eða notið brúsa
með litlu gati/kökuskreyting-
arpoka m. stút) og skreytið að
vild.
- Munið að setja kökuskrautið
á hvert tré jafnóðum því súkku-
laðið harðnar fljótt.
JÓLAKÖKU GOTTERÍ
Nánar um uppskriftirnar á gotteri.is
Á gotteri.is er að finna einfalda og litríka uppskrift af Rice
Krispies jólatrjám fyrir gotterísdaga. Hjá Gotterí og gersem-
um er einnig 3 fyrir 2 tilboð á gjafabréfum á kökunámskeið
fram til 24. desember.
Jólagjafir hestamannsins
fást í Líf landi
17.990.-
5.990.-
13.990.-
79.900.-