Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 56
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Helgarmaturinn og Spjörunum Úr
HELGAR MATURINN KJÚKLINGARISOTTO
Sandra Fairbairn
er hér með mjög
ljúffengan og
sparilegan rétt
sem passar vel
undir lok að-
ventunnar rétt
fyrir jólahátíðina
sjálfa.
Hvern faðmaðir þú síð-
ast? Móður mína.
En kysstir? Sigmund
Davíð, í öllum mínum villtustu
draumum.
Hver kom þér síðast á
óvart og hvernig? Sam-
býlismenn mínir, Oddur og
Birkir, með því að vera bara
ferlega flinkar og fallegar
manneskjur sem spila fyrir
mig fallega tónlist, borða
með mér dýrindis morgun-
mat og faðma mig þegar ég
kem heim.
Hvaða galla í eigin fari
ertu búin að umbera
allt of lengi? Það að ég
smjatta og hvað ég er óþol-
inmóð og tapsár.
Ertu hörundsár? Já, því
miður. Ég er stöðugt að
glíma við hörundsæri mitt
og ég er oft hörundsár fyrir
hönd dýra. Ég er hins vegar
alltaf að æfa mig í að verða
betri og stærri manneskja og
stefni á 30% lækkun á hör-
undsæri á næsta ári.
Dansarðu þegar enginn
sér til? Já, og líka þegar
allir sjá til. Ég er ekki mjög
klár í því en eftir að ég komst
að því að hopp er gjald-
gengt dansspor og að dans
er mjög teygjanlegt hugtak
vil ég meina að ég dansi í
gegnum lífið.
Hvenær gerðirðu þig síð-
ast að fífli og hvernig?
Hugmynd mín um fíflaskap
er loðin. Allt svona að sulla
niður á sig, prumpa í fjöl-
menni og fara óvart ber að
neðan í virðulega veislu er
bara fyndið og skemmtilegt.
Og þannig fíflalegheitum á
að fagna. Svo er til annar
fíflaskapur eins og að skera
niður til þróunarmála, upp-
hefja vini sína á kostnað ann-
arra og ljúga. Þannig fífla-
skapur er mér ekki að skapi.
Ég varð síðast uppvís að
skrökvi þegar ég sagði sam-
býlismönnum mínum að ég
gæti ekki vaskað upp af því
að ég væri nýbúin að tatt úa
á mig sleeves. Þeir sáu fljótt í
gegnum mig.
Tekurðu strætó? Nei, sem
er óvenjulegt því ég er ekki
með bílpróf. Ég hleyp og
hjóla milli staða og reiði mig
á góðmennsku vina minna
og ókunnugra bílstjóra sem
stundum taka mig upp í.
Hvað ætlarðu alls ekki
að gera um helgina?
Prófa „christal meth”, lenda
í slag og missa auga. Það
færi alveg með mömmu
svona rétt fyrir jólin.
Saga Garðars- og
Sigrúnardóttir
ALDUR: 26
STARF: leikkona, pistlahöf-
undur og grínkúnstner
...SPJÖRUNUM ÚR
Fyrir 4-6
3 kjúklingabringur
2 l kjúklingasoð (vatn og
teningar)
2 sellerístilkar
2 laukar
2 gulrætur
Ólífuolía til steikingar
2 dl þurrt hvítvín
1 dós hakkaðir tómatar
500 g Arborio-risotto-
grjón (ekki venjuleg hrís-
grjón)
75 g smjör
100 g parmesan-ostur,
rifinn
Salt og pipar eftir smekk
Útbúið soðið. Sker-
ið niður 1 sellerístilk,
1 gulrót og 1 lauk og
bætið í soðið. Látið
sjóða stutta stund og
haldið svo heitu.
Skerið kjúklingabring-
urnar í litla bita og
steikið vel á stórri
pönnu þar til kjúkling-
urinn er brúnaður. Sker-
ið niður afganginn af
grænmetinu og blandið
saman við.
Steikið í nokkrar mín-
útur til viðbótar. Bætið
síðan hvítvíninu saman
við og látið það gufa
upp.
Bætið tómötunum
saman við og saltið og
piprið eftir smekk. Látið
malla í 8-10 mínútur og
vökvið með soðinu ef
blandan verður þurr.
Bætið risotto-grjónunum
út á pönnuna ásamt um
200 ml af soðinu. Eldið
í 20 mínútur á meðal-
hita. Hrærið og vökv-
ið með soðinu ef bland-
an er að þorna, passa
þarf vel að hún þorni
ekki og brenni.
Takið pönnuna af
hellunni og blandið
smjörinu og parmesan-
ostinum varlega saman
við. Gott er að pipra
létt yfir réttinn áður en
hann er bor-
inn fram.
Skreyta
má með
litlum
tóm-
ötum
eða
öðru
fíner-
íi.
Ljósmyndabækur
FALLEGAR JÓLAGJAFIR
Þvottabjörn
14.900,-
Bréfapressa
3.900,-
Loftbelgur
Verð frá 3.900,-
Dýraljós í miklu
úrvali
Glerbox
4.900,-
Silfurrefur trefill
14.900,-
Plötuspilari
39.900,-
Skúta
Verð frá 34.900,-
Hnöttur
19.900,-
Hljómplötur
Hauskúpupúði
8.900,-
Plötuspilari
59.900,-