Fréttablaðið - 20.12.2013, Qupperneq 66
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 42
„Ég er mjög þakklátur. Styrkur-
inn kemur sér ákaflega vel því ég
er á leiðinni út til Vínar í janúar en
skólinn byrjar ekki fyrr en í febrú-
ar og ég þarf að taka þátt í verk-
efni áður, launalaust.“ Þetta segir
Kristján Jóhannesson söngvari um
500 þúsund króna styrk sem hann
tók við í gær úr styrktarsjóði Önnu
K. Nordal.
Kristján upplýsir að verkefnið sé
nemendauppfærsla á barnaóper-
unni Hans og Grétu eftir Engelbert
Humperdinck sem sett verður upp
við skólann sem hann er að hefja
nám í. „Ég hef engan rétt á náms-
lánum fyrr en ég byrja fyrir alvöru
í skólanum í febrúar og þess vegna
er styrkurinn eins kærkomið happ
og hugsast getur.“
Skólinn sem Kristján talar um
er Konservatoríið í Vínarborg. Þar
hyggst hann dvelja við BA-nám í
fjögur ár. „Svo er það bundið því
hvernig gengur hvað ég geri.“
Kristján lauk burtfararprófi í
vor frá Söngskóla Sigurðar Demetz.
Kennarar hans voru Sigrún Hjálm-
týsdóttir, Kristján Jóhannsson og
Keith Reed. Nú í haust þreytti hann
frumraun sína sem einsöngvari hjá
Íslensku óperunni í Carmen. Hann
hefur líka verið í fastakór óper-
unnar og sungið með honum í La
bohème og Il trovatore.
Kristján er tuttugu og eins árs og
kveðst vita um fleiri íslenska nem-
endur við Konservatoríið. Meðal
þeirra sem stunda þar nám er kær-
astan hans, Fjóla Kristín Nikulás-
dóttir, sem er í mastersnámi. Hann
kveðst hafa dvalið hjá henni tvo
mánuði síðastliðið vor. „Það var þá
sem ég sótti um,“ segir hann.
Eins kærkomið happ
og hugsast getur
Kristján Jóhannesson söngvari hlaut í gær viðurkenningu og hálfa milljón króna
úr styrktarsjóði Önnu K. Nordal. Hann er á leið í framhaldsnám í Vínarborg.
Styrktarsjóðurinn sem Kristjáni var veitt úr er stofnaður af Önnu Karólínu
Nordal sem fæddist í Vesturheimi árið 1902 og lést árið 1998. Hún bjó alla
tíð í Kanada og kom aldrei til Íslands. Hún hafði engu að síður sterkar taugar
til landsins og sýndi ættlandi sínu og Íslendingum mikla ræktarsemi eins og
sjóðurinn er fagur vitnisburður um. Anna var alþýðukona og mikill unnandi
tónlistar og vildi styrkja ungt tónlistarfólk í námi og hvetja til frekari árangurs.
Styrktarsjóður Önnu Nordal
Blásarakvintett Reykjavíkur og
félagar flytja árlega aðventutón-
leika sína undir heitinu Kvöldlokk-
ur á jólaföstu sunnudaginn 22. des-
ember klukkan 20 í Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Þessi gamla hefð blásarakvint-
ettsins þar sem boðið er upp á
unaðslegar blásaraserenöður
eða kvöldlokkur, sem eiga ekkert
skylt við hárlokk heldur sögnina
að lokka, hefur glatt eyru borgar-
búa í áratugi og á sinn fasta aðdá-
endahóp. Fríkirkjan í Reykja-
vík er afar falleg og hljómfögur
umgjörð um þessa áhrifamiklu
blásaratóna sem að þessu sinni
eru eftir tónskáldin Mozart,
Krommer og Blasé. Tónleikarn-
ir standa yfir í eina klukkustund.
Fagrar kvöldlokkur
blásara í Fríkirkjunni
Árlegir aðventutónleikar Blásarakvintetts Reykja-
víkur, Kvöldlokkur, verða á sunnudagskvöldið.
KVÖLDLOKKUR Blásarakvintett Reykjavíkur heldur sína árlegu aðventutónleika á
sunnudagskvöldið. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VIÐ AFHENDINGUNA Jónas Ingimundarson, Aino Freyja Järvelä,
Kristján Jóhannesson og Þórður Júlíusson.