Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 68
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 44
BÆKUR ★★★★★
Brosbókin
Jóna Valborg Árnadóttir
og Elsa Nielsen
SALKA
Brosbókin eftir Jónu Valborgu Árnadóttur fjallar
um litla stúlku í fjarlægu ríki, hana Sólu, sem
hefur það einstaka persónueinkenni að vera alltaf
brosandi. Gleði hennar er smitandi, eins og gjarn-
an er raunin, og hún er hvers manns
hugljúfi. Einn daginn
ger ist nokk-
uð sem engan
hafði órað fyrir
en þann dag
vaknar Sóla og
brosið hennar er
horfið. Það sem
áður veitti henni
hina mestu gleði
hefur engin áhrif
á þessa skyndilegu
fýlu. Þetta veldur
uppnámi í ríkinu
og allir hjálpast að
við að leita að bros-
inu úti um allan bæ.
Í ljós kemur að þau
hafa leitað langt yfir
skammt, því bros-
ið leynist auðvitað
dulbúið á andliti Sólu.
Boðskapur sögunnar
er einfaldur: Allir fara
einhvern tímann í vont
skap og þá þarf maður
sjálfur að „finna brosið
sitt aftur“.
Bókin er sniðug að því
leyti að börn halda gjarnan að heimurinn snúist
um þau ein – enda gerir hann það að mörgu leyti.
Þess vegna er hreint ekki skrýtið að gleði Sólu sé
svo mikilvæg fyrir þegna ríkisins að þeir verði
allir miður sín þegar brosið hverfur. Auk þess er
ágætt að hafa í huga að lundarfar er gjarnan smit-
andi, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt. Það
gildir bæði um börn og fullorðna.
Hugmyndin er góð en hugsanlega hefði mátt
verja meiri tíma í að fínpússa söguþráðinn. Hann
gengur þó ágætlega upp og bókin ætti að höfða vel
til yngstu kynslóðarinnar. Auk þess
er sagan kjörin til þess að skapa
umræður um skapsveiflur og
áhrif þeirra á annað fólk.
Bókin skartar litríkum og
fjölbreytilegum myndlýsing-
um eftir Elsu Nielsen. Þær eru
blanda af tölvuunnum klippi-
myndum og teikningum. Að
því leyti minna þær á bækurn-
ar um Einar Áskel. Á hverri
opnu er margt að skoða og
myndirnar eru ekki hugsaðar
sem einfaldar myndskreyt-
ingar heldur bæta þær við
söguþráðinn.
Uppsetningin er skemmti-
leg og letrið er nógu stórt
fyrir börn sem eru að
læra að lesa. Aftur á móti
eru setningarnar margar
hverjar í lengri kantinum
fyrir þessi sömu börn.
Halla Þórlaug Óskarsdóttir
NIÐURSTAÐA: Skemmti-
lega myndlýst bók fyrir
unga krakka með áhuga-
verðum boðskap sem ætti
að vekja umræður.
Brosið sem hvarf
Kammersveit Reykjavíkur heldur
sína árlegu jólatónleika í Norður-
ljósasal Hörpu á sunnudaginn, en
sveitin fagnar um þessar mundir
40 ára starfsafmæli sínu. Á tón-
leikunum mun hinn margróm-
aði Jóhann Már Nardeau leika á
trompet en konsertmeistari verð-
ur Una Sveinbjarnardóttir. Verk
tónskáldanna Händels og Tele-
manns munu óma um Norður-
ljósasalinn í flutningi strengja-
sveitar, sembals, óbóa, fagotts og
trompets.
Kammersveitin hefur í gegnum
tíðina sinnt flutningi tónlistar frá
barokktímabilinu við góðar undir-
tektir, en í huga margra eru jóla-
tónleikar sveitarinnar ómissandi
hluti af aðventunni. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17, en miðasalan
fer fram á midi.is og í Hörpu.
Jólatónleikar
í Norðurljósasal
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR árlegir jólatónleikar fara fram á sunnudag
Barmahlíðarkórinn flytur ljúfar söng-
perlur á Kaffi Kompaníinu á Kjar-
valsstöðum á morgun klukkan 13.
Kórinn hefur komið fram við hin
ýmsu tækifæri síðustu ár við góðar
undirtektir. Kórstjóri er Örlygur
Benediktsson.
Ókeypis kakó og kleinur fyrir
12 ára og yngri og aldrei að vita
nema jólasveinar láti sjá sig á
svæðinu.
Jólastemning á Kjarvalsstöðum
„Þetta er skrítinn tími því nú
slokknar á öllu fyrir okkur,“ segir
Guðrún Vilmundardóttir, útgáfu-
stjóri Bjarts, spurð hvernig bóka-
útgefendum líði þegar allar bækur
eru komnar út og ekkert hægt að
gera nema bíða eftir viðtökunum. „Í
byrjun þessarar viku var enn hægt
að vera andvaka og liggja yfir kúrv-
unum og tölunum til að sjá hvort
þyrfti að endurprenta, en núna er
mjög fátt sem við getum gert nema
bíða. Við erum með fullt af góðu
fólki úti í búðunum sem fylgist með
hreyfingunni þar og lagerinn verð-
ur að tæmast í dag og á morgun.“
Guðrún segir mikilvægt að fylgj-
ast með því að réttar bækur séu í
réttum búðum, því það sé misjafnt
hvar einstakar bækur seljist mest.
„Nú eru tveir metsölulistar í gangi,
því Eymundsson, og nokkrir bók-
salar til, eru því miður ekki með í
bóksölulista Félags bókaútgefenda.
Með því að skoða muninn á þessum
tveimur listum fæst smjörþefur af
því að það selst ekki allt jafnt á ólík-
um stöðum.“
Salan hefur farið vel af stað, að
sögn Guðrúnar, og hún er feiki-
ánægð með sína höfunda. Þriðja
prentun af skáldsögu Jóns Kalmans
Stefánssonar, Fiskarnir hafa enga
fætur, var sett í gang á mánudag-
inn og Guðrún segir henni verða
dreift í búðirnar í dag. „Skáldsög-
urnar okkar tvær, Fiskarnir hans
Jóns Kalman og 1983 Eiríks Guð-
mundssonar, eru tilnefndar til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
og hafa verið endurprentaðar. Þeir
eru báðir að seljast reglulega vel.
Hlustað eftir Jón Óttar Ólafsson er
að taka góðan kipp og í heild ligg-
ur þetta ár hjá Bjarti, og samsteyp-
unni Bjarti & Veröld, á milli þess
að vera mjög gott eða frábært, þar
liggur eini efinn. Því er ég auðvitað
mun rólegri og afslappaðri núna en
oft áður á þessum tíma.“
Þú vilt væntanlega helst fá eitt-
hvað annað en bækur í jólagjöf?
„Nei, svo sannarlega ekki. Mig
langar alltaf í bækur í jólagjöf!
Það er auðvitað auðveldara að koma
mér á óvart með erlendum bókum
í jólapakkanum, en það verða að
vera bækur undir jólatrénu, annað
eru ekki jól.“
fridrikab@frettabladid.is
Verða að vera bækur
undir jólatrénu
Hvernig líður bókaútgefendum þessa síðustu daga fyrir jól? Of seint að endur-
prenta og lítið að gera nema bíða eft ir sölutölum. Guðrún Vilmundardóttir, út-
gáfustjóri Bjarts, segist vera í ljómandi skapi enda líti út fyrir frábært útgáfuár.
Í JÓLASKAPI Guðrún Vilmundardóttir segist vera mun afslappaðri í ár en oft áður á
þessum tíma, enda hafi útgáfuárið verið gott. Fréttablaðið/Valli