Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 72
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 48
FÖSTUDAGUR
20. DESEMBER
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
Tónleikar
17.00 Aukatónleikar Baggalúts fara fram.
Um er að ræða jólatónleika hópsins.
19.30 Boðið verður til óvenjulegra jóla-
tónleika á Jólatónlistarhátíð Hallgríms-
kirkju. Þýsku jazztónlistarmennirnir
Markus Burger og Jan von Klewist flytja
mörg þekkt sálma- og jólalög á píanó og
saxófón. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Sigríður Thorlacius heldur tónleika
á Græna hattinum. Á þessum jólatónleik-
um flytur Sigríður m.a. lög af nýútkom-
inni jólapötu ásamt hljóðfæraleikurunum
Guðmundi Óskari Guðmundssyni (bassi),
Bjarna Frímanni Bjarnasyni (píanó og
fiðla), Ómari Guðjónssyni (gítar) og Helga
Svavari Helgasyni (trommur).
20.00 KK og Ellen halda aðventutónleika
í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Aðventu-
tónleikarnir eru orðnir ómissandi þáttur
í aðdraganda jóla og koma gestum ávallt
í hátíðarskap. Í mörg ár hafa þau haldið í
hefðina og komið saman, ýmist þau tvö
eða ásamt hljómsveit sem spilað hefur
með þeim.
20.00 Fjölskyldujólatónleikar sem haldnir
eru fimmta árið í röð. Þar fer Regína Ósk
fremst í flokki frábærra tónlistarmanna.
Þar munu þau flytja lög af jólaplötu Reg-
ínu ásamt flottum klassískum jólaperlum.
Kærleikur, gleði og gospel verða við völd
þetta kvöld í kirkjunni.
20.00 Í tilefni útgáfu á annarri breiðskífu
sinni blæs hljómsveitin JOHNNY AND
THE REST til veglegrar tónleikaveislu
í Tjarnarbíói. Nýja afurðin ber heitið
Wolves in the Night og hefur að geyma
lög á borð við Mama Ganja sem fengið
hefur afbragðs viðtökur á öldum ljós-
vakans síðan í sumar.
20.00 Jólatónleikar X-ins, Xmas fara
fram. Miðaverð er 1977 krónur og rennur
óskipt í minningarsjóð Lofts Gunnars-
sonar, sem vinnur að því að bæta hag
útigangsmanna í Reykjavík. Tónleikarnir
fara fram í Austurbæ og margir helstu
rokkarar landsins skemmta.
21.00 Hin einlægu og líflegu söngva-
skáld Kristjana Stefáns, Ragga
Gröndal og Svavar Knútur blása
til tónleika í jólatónleikaröð-
inni Eitthvað fallegt á Café
Rosenberg í kvöld.
23.00 Áratugalöng hefð
er fyrir Jólasöngvum Kórs
Langholtskirkju. Ein-
söngvarar eru Andri
Björn Róbertsson,
Guðrún Matthildur
Sigurbergsdóttir, Jóna
G. Kolbrúnardóttir,
Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir og Þóra
Einarsdóttir. Þetta
verða þrítugustu
og sjöttu jóla-
söngvarnir við
kertaljós og að vanda er boðið upp á
rjúkandi jólasúkkulaði og piparkökur í
hléi. Mikill jólaandi ríkir á tónleikunum
og geta fjölmargir gesta vart hugsað sér
upphaf jólahátíðarinnar án þess að mæta
á jólasöngva.
23.00 Hljómsveitin Steed Lord mun
koma fram á hörkutónleikum á Harlem
og trylla lýðinn í Reykjavík! Hljómsveitin
heldur ekki oft tónleika á Íslandi og þess
vegna er um að gera að tryggja sér miða
til að sjá sveitina spila. Steed Lord hefur
verið við upptökur í Los Angeles.
Söngskemmtun
21.00 Tónlistarverkefnið Lonewolf
mun standa fyrir útgáfu/frumsýn-
ingarpartíi á Bar 11. Lonewolf
var að gefa út plötuna It Was
My Mind og hefur nú gert
myndbönd við þrjú lög sem
finna má á plötunni. Á laugar-
daginn verða myndböndin
spiluð auk þess sem platan
verður spiluð í heild sinni.
Tónlist
23.00 Lifandi tónlist
verður á Ob-La-Dí-Ob-
La-Da, Frakkastíg 8.
Upplýsingar um við-
burði sendist á hvar@
frettabladid.is
„Það verður alveg mökkur af fólki
þarna,“ segir Logi Bergmann Eiðs-
son sjónvarpsmaður um sérstak-
an jólaþátt sem verður á dagskrá
á Stöð 2 í kvöld klukkan fimm mín-
útur í átta. Þátturinn heitir ein-
faldlega Risastóri jólaþátturinn
og mun Logi taka á móti ófáum
góðum gestum.
„Ég held að þátturinn hafi aldrei
verið svona stór, það eru einhver
sjö, átta tónlistaratriði og nóg að
gera,“ segir hann, en meðal þeirra
sem flytja munu lög í þættinum má
nefna Jón Jónsson, KK og Ellen,
Lay Low og Ragga Bjarna ásamt
fleirum. „Hápunkturinn verður
svo þegar Helgi Björns kemur og
tekur Ef ég nenni,“ bætir Logi við.
Að sögn Loga mun þátturinn
standa í um einn og hálfan tíma, þó
að erfitt sé að segja til um það með
vissu. „Við reynum alltaf að gera
aðeins meira en við ráðum við,“
segir Logi. „Það verða allavega
mikil læti og mikið vesen.“ - bá
Mikil læti og vesen
Logi Bergmann stýrir risastórum jólaþætti í kvöld.
Hrífandi saga
eistaraverk eftir M
a Maria Matute An
ábærri þýðingu í fr
s R. Ólafssonar. Kristin
málabók - hver Tví
opna er bæði
á íslensku
og spænsku.
FIMMUND
NÓG AÐ
GERA Logi
Bergmann
lofar fjöri í
kvöld.
Lög, kvæði og þjóðlegan fróðleik er
að finna á nýútkomna DVD-diskn-
um Íslensku jólasveinarnir okkar.
Það er framleiðslufyrirtækið Sítr-
us sem gefur diskinn út og er ætl-
unin með honum að fræða börn um
gömlu jólasiðina.
„Þetta er svona kynning á
íslensku jólasveinunum,“ segir
Stefán Sigurjónsson hjá Sítrus.
Allir þrettán jólasveinarnir eru
kynntir með leik, söng og þekkt-
um vísum Jóhannesar úr Kötlum,
en þær eru lesnar af Ólafi Darra
Ólafssyni leikara. Einnig fylgir
með alls konar fróðleikur tengdur
hverjum jólasveini.
„Til dæmis má nefna að Hurða-
skellir hét einnig Faldafeykir,“
segir Stefán. „Þá er ekki átt við
faldinn á pilsum, heldur faldið á
höfuðbúnaði skautbúningsins.“
Að sögn Stefáns verður haldið í
það eftir jól að taka upp enska tal-
setningu á efninu og kynna alþjóða-
markaðinn fyrir íslensku jólunum.
„Við höfum reyndar lögin ramm-
íslensk og leyfum útlendingunum
bara að svitna,“ segir hann, en jóla-
sveinarnir syngja meðal annars lög
á borð við Jólasveinar ganga um
gólf og Á jóladaginn fyrsta.
Stefán segir gott að gleyma
ekki þjóðlegum siðum þó börn í
dag þekki frekar hinn alþjóðlega
„Coca-Cola-jólasvein“.
„Þetta er bara til að minna á
gömlu, góðu, íslensku jólin.“ - bá
Leyfum útlendingum
að svitna á jólunum
Nýtt barnaefni kynnir gömlu, íslensku jólahefðirnar fyrir yngstu kynslóðinni.
Íslenskir jólasveinar hafa
alltaf verið hrifnir af hinum ýmsu
mjólkurafurðum. Ásamt Skyrgámi
voru eitt sinn til jólasveinirnir
Smjörhákur og Rjómasleikir, en
þeir hafa fallið í gleymsku.
Kertasníkir lagði sér kerti til
munns hvenær sem færi gafst.
Kerti voru áður fyrr ekki gerð úr
vaxi heldur úr tólg, harðri fitu af
nautgripum eða sauðfé. Tólgur var
meðal annars notaður til að geyma
kjötmeti.
Askur er tréílát með loki sem fólk
borðaði úr á árum áður. Hver átti
sinn ask sem var geymdur undir
rúmi þar sem heimilisdýrin sleiktu
hann hreinan, eða uppi á hillu fyrir
ofan rúm eigandans. Askasleikir var
fljótur að ná í askana áður en þeir
voru settir fyrir hundana og kettina
til að sleikja úr þeim afgangana.
Stekkjarstaur dregur EKKI nafn sitt
af staurfótum sínum, þrátt fyrir það
sem stendur í kvæði Jóhannesar
frá Kötlum. Sérstök gerð fjárréttar
kallaðist stekkur, og þar faldi fyrsti
jólasveinninn sig eins og staur ef
einhver kom í fjárhúsið þegar hann
var að sjúga mjólk úr kindunum.
➜ Nokkrir fróðleiksmolar af disknum
SPRÆKUR Giljagaur bregður á leik ásamt bræðrum sínum á nýja disknum.
Þetta er bara til að
minna á gömlu, góðu,
íslensku jólin.
Stefán Sigurjónsson.