Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 74
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 50
ÓKEYPIS
Tónleikar
Barmahlíðarkórsins
Barmahlíðarkórinn flytur söngperlur
á Kaffikompaníinu á Kjarvalsstöðum
laugardaginn 21. desember klukkan 13.
Ókeypis kakó og kleinur fyrir 12 ára og
yngri, aldrei að vita nema jólasveinar láti
sjá sig á svæðinu.
Vertu fyrirmyndar-
foreldri um jólin
Ýmislegt er hægt að gera með yngstu börnunum í aðdraganda jólanna og yfi r
sjálfa jólahátíðina. Skemmtanirnar eru á ýmsu verði og því ætti hver að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi – hvort sem pyngjan er þung eða létt.
Hörður Sveinsson ljósmyndari
fékk kartöflu í skóinn þegar hann
var fjögurra ára gamall. „Ég man
mjög vel eftir því, þetta var mjög
trámatískt í þeim skilningi að ég
man þetta enn þó að ég muni fátt
annað frá því að ég var fjögurra
ára. Ég man ekki hvað ég gerði
af mér, en ég vaknaði og mér brá
rosalega þegar ég sá að ég hafði
fengið kartöflu. Ég henti henni út
um gluggann á kjallaraíbúðinni
sem við fjölskyldan bjuggum í
við Laugateig. Þegar mamma
spurði mig hvað ég hefði fengið
í skóinn sagðist ég hafa fengið
mandarínu og að ég væri búinn
að borða hana. Svo gekk mamma
eitthvað á mig til að fá mig til að
segja satt en ég þrjóskaðist við
og laug, enda var ég mjög þrjóskt
barn. Ég er ekki jafn þrjóskur í
dag. Ætli þetta hafi ekki orðið til
þess að ég varð þessi herramað-
ur og þetta prúðmenni sem ég er
í dag.
Reyndar fékk ég líka kartöflu
í skóinn í fyrra. Þá vildu börnin
mín að ég setti skóinn út í glugga.
Svo fékk ég innpakkaða kartöflu
með skilaboðum frá Stekkjar-
staur þar sem stóð að ég myndi
ekki fá neitt í skóinn af því að
ég færi alltaf svo seint að sofa.
„Hvað ertu eiginlega að pæla að
setja skóinn út í glugga,“ stóð í
skilaboðunum. Börnunum mínum
fannst þetta mjög fyndið. Börnin
mín hafa aldrei fengið kartöflu
frá jólasveininum, enda einstak-
lega prúð börn. Þau fá bara kart-
öflur í matinn.“ - ue
Herramaður og
prúðmenni í dag
Hörður Sveinsson ljósmyndari fékk kartöfl u í skóinn
þegar hann var barn og reyndar líka á jólum í fyrra.
HENTI KARTÖFLUNNI ÚT Þrjóskan eltist af Herði Sveinssyni.
ÓKEYPIS
Jólasveinar
á Þjóðminjasafni
Jólasveinarnir mæta á Þjóðminjasafnið
klukkan 11 á hverjum degi til jóla og hafa
gert það í 25 ár.
ÓKEYPIS FYRIR BÖRN
Jólasýning Árbæjarsafns
Ungir sem aldnir geta rölt á milli húsanna
og fylgst með undirbúningi jólanna eins
og hann var í gamla daga. Hrekkjóttir
jólasveinar gægjast á glugga og kíkja í
potta, börn og fullorðnir fá að föndra og
syngja jólalög. Sýningin er opin sunnudag-
inn 22. desember frá klukkan 13 til 17 og er
aðgangseyrir 1.200 krónur fyrir fullorðna.
ÓKEYPIS
Jóladagatal
Norræna hússins
Á hverjum degi klukkan 12.34 frá 1. til 23.
desember er opnaður nýr gluggi og gestir
fá að njóta atriðis í sal Norræna hússins.
Aldrei er tilkynnt hvaða skemmtiatriði
verður hvern dag og en uppákomurnar
fjalla ekki endilega allar um jólin.
200 KR./1.000 KR.
Skautaferð
Leikskólabörn borga 200 krónur fyrir
aðgang að Skautahöllinni í Laugardal en
sextán ára og yngri borga 1.000 krónur.
ÓKEYPIS/550 KR./750 KR.
Jólakötturinn
Hægt er að heimsækja Jólaköttinn í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum, og auðvitað
öll hin dýrin líka. Ókeypis er fyrir börn til
fjögurra ára aldurs, börn 5 til 12 ára borga
550 krónur og unglingar 750 krónur.
750 KR./1.200 KR.
Bíóferð
Nóg er um að vera í kvikmyndahúsum og
meðal annars hægt að bjóða börnunum
á teiknimyndirnar Frosinn, Risaeðlur og
Furðufugla. Verð fyrir börn að átta ára
aldri er 750 krónur og fyrir 9 til 12 ára
1.200 krónur.
1.900 KR.
Leitin að Jólunum
Tveir skrítnir og skemmtilegir náungar
taka á móti litlum leikhúsgestum í anddyri
Þjóðleikhússins. Með þeim í för eru tveir
hljóðfæraleikarar og þessi fjörugi hópur
leiðir börnin með leik og söng um leik-
húsið. Börnin ferðast inn í ævintýraveröld
jólanna og sjá leikþætti um jólin í gamla
daga og á okkar tímum.
2.700 KR.
Jólahátíð Skoppu
og Skrítlu
Í aðdraganda jóla halda Skoppa og Skrítla
mikla hátíð í Borgarleikhúsinu til að bjóða
sjálfan jólasveininn velkominn til byggða.
2.900 KR.
Horn á Höfði
Fjölskyldusöngleikur í Tjarnarbíói
sem fjallar um Björn sem vaknar einn
morguninn með horn á höfði og fær
Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér við
að rannsaka málið.
3.950 KR.
Óvitar
Leikrit Guðrúnar Helgadóttur er sýnt
í Þjóðleikhúsinu en í því fæðast börnin
stór en minnka með aldrinum.
5.950 KR.
Mary Poppins
Ein vinsælasta sýning ársins í Borgarleik-
húsinu þar sem Mary Poppins lífgar upp
á heimilislífið í Kirsutrjárunni og breytir
grárri Lundúnaborg í litríkt ævintýri þar
sem sótarar dansa upp um veggi og loft.
Saga SPRON er saga vaxandi veldis, velgengni
og að síðustu umdeildra endaloka.
Verkið varpar nýju ljósi á fjármálasögu Íslands
og mun vafalítið vekja umtal.
Ókeypis
6.000 kr.
1.000 kr.
2.000 kr.
3.000 kr.
4.000 kr.
5.000 kr.
VIÐBURÐIR FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA