Fréttablaðið - 20.12.2013, Blaðsíða 84
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 60
BAKÞANKAR
Lilju Katrínar
Gunnarsdóttur
„Við erum svo miklir listunnend-
ur á Bast,“ segir Dóra Takefusa,
eigandi Basts, en á föstudaginn
hyggst hún opna myndlistargall-
erí inni á einu af salernum kaffi-
hússins Bast á Hverfisgötu.
Hugmyndin er fengin frá listakonun-
um Rakel McMahon, Jóhönnu Krist-
björgu og Ragnheiði Káradóttur, en
þær stöllur ráku hið nýstárlega sýn-
ingarými Gallerí Klósett við Hverf-
isgötu 61 sem lokaði fyrir tæpu ári.
„Mér finnst þetta svo mikil snilld-
arhugmynd og algjör synd að væri
ekki virkt. Þess vegna ákvað ég
með þeirra samþykki að endur-
vekja þetta óhefðbundna sýning-
arrými og opna hjá mér Studio
Salerni,“ segir Dóra, sem hlakkar
til að takast á við gallerírekstur.
„Eins og nafnið gefur til kynna er
sýningarrýmið inni á salerni, eða
í sal þar sem maður gengur örna
sinna,“ segir Dóra, kímin.
Í dag verður fyrsta myndlistar-
sýning Studio Salernis.
„Okkur fannst tilvalið að Rakel
McMahon vígði galleríið,“ útskýr-
ir Dóra.
Rakel hefur getið sér gott orð sem
myndlistarkona undanfarin misseri.
„Rakel hefur haldið einkasýningar
út um víðan völl og tekið þátt í fjölda
samsýninga, og rekstri alls kyns
verkefna á sviði menningar og lista.
Hún er stjórnarmeðlimur Nýlista-
safnsins og annar hluti tvíeykisins
Wunderkind Collective,” segir Dóra.
Viðfangsefni Rakelar einkennast
gjarnan af tvíræðni, myndlíkingu
og endurmati á viðteknum sam-
félagsnormum. „Mér finnst Rakel
svo dásamlegur myndlistarmaður
því það er líka svo mikill húmor í
verkunum hennar sem snúast oft
um kyn, kynhlutverk, kynhneigð,
klisjur og staðalímyndir!“ segir
Dóra að lokum og hvetur sem flesta
til að kíkja við á opnunina á föstu-
daginn kl. 17.00.
olof@frettabladid.is
Myndlist á klósettinu
Dóra Takefusa opnar Studio Salerni á Bast á Hverfi sgötu klukkan fi mm í dag.
RAKEL VÍGIR Rakel McMahon verður með fyrstu sýninguna á Studio Salerni, en hún rak áður Gallerí Klósett ofar á Hverfisgötu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STUDIO SALERNI Galleríið verður á salerninu á kaffi húsinu Bast.
Ég varð fyrst ástfangin þegar ég var fimm ára. Hélt ég hefði fundið drauma-
prinsinn. Hann var íðilfagur á velli, söng
eins og engill og brosið hans bræddi mann
og annan. Eini gallinn var að hann var
ívið of gamall fyrir mig. Þetta var sjálfur
Helgi Pé í Ríó tríó. Guð, hvað ég tilbað
manninn.
DRAUMAPRINSINN bankaði aftur á
dyrnar þegar ég var ellefu ára. Þá sá ég
Pál Óskar syngja í Perlunni og varð agn-
dofa. Hvernig gat einn maður verið
svona guðdómlegur? Sú ást dó hraðar
en hún kviknaði þegar ég heyrði að ég
ætti engan séns.
STUTTU seinna varð ég yfir mig
ástfangin af strák með mér í bekk.
Sá leit út eins og Robbie Williams í
Take That. Hann bjó yfir eiginleika
sem hafði ekki prýtt draumaprinsinn
minn hingað til – hann var nefnilega
sjúklega fyndinn.
Í FRAMHALDSSKÓLA kom
draumaprinsinn til mín í enn ann-
arri mynd. Hann var rauðhærður,
ekki sá myndarlegasti í bransanum en
svo fyndinn að ég pissaði næstum því í
mig í hvert sinn sem hann opnaði munn-
inn. Hann er háttvirtur borgarstjóri í dag
en í mínum huga var hann hinn eini sanni
draumaprins.
Á FULLORÐINSÁRUNUM reyndi ég að
búa mér til nýjan draumaprins. Hann ætti
að vera hávaxinn, dökkhærður og fárán-
lega myndarlegur. Hann ætti að vera af
erlendu bergi brotinn – helst frá framandi
landi. Ekki skemmdi fyrir ef hann gengi í
jakkafötum og væri talsvert eldri en ég.
ÞESSA tilbúnu draumaprinsa fann ég
vissulega. En þessi eldheita ást kviknaði
aldrei. Rauðhærða hárið og húmorinn tog-
aði alltaf í mig.
NÚ er árið næstum liðið. Einn af hápunkt-
unum var þegar draumaprinsinn kom inn
í líf mitt algjörlega óvænt og henti Jóni
Gnarr af toppnum. Rauðhærður, pissfynd-
inn og óstjórnlega fagur.
SORRÍ, Jón Gnarr – það hlaut að koma að
þessu.
Sorrí, Jón Gnarr
ANCHORMAN 2 8, 10.30
RISAEÐLUNAR 3D 4, 6
FROSINN 3D 3:45, 6
FROSINN 2D 3:45
HUNGER GAMES 2 7, 8, 10
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
S.B. - FBL
T.V. - Bíóvefurinn.is
5%
NATIONAL LAMPOON’S CHRISTMAS VACATION
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
AKUREYRI
VARIETY
USA TODAY LOS ANGELES TIMES
THE PLAYLIST
RISAEÐLURNAR 3D KL. 6 - 8
PIONEER KL 10 .
MANDELA KL. 6
THE HUNGER GAMES 2 KL. 9 Miðasala á: og
ANCHORMAN 2 LÚXUS
RISAEÐLURNAR 3D ÍSL. TAL
RISAEÐLURNAR 2D ÍSL. TAL
FROSINN 2D ÍSL. TAL
FROSINN 3D ÍSL. TAL
THE HUNGER GAMES 2
THE COUNCELOR
KL. 5.20 - 8 - 10.35
KL. 5.20 - 8 - 10.35
KL. 3.30 - 8
KL. 3.20 - 6
KL. 3.30 - 5.40
KL. 3.30
KL. 6 - 8 - 9
KL. 10
RISAEÐLURNAR 3D Í SL. TAL
RISAEÐLURNAR 2D ÍSL. TAL
PIONEER
THE HUNGER GAMES
ÍHROSS OSS
KL. 6 - 8 - 10
KL. 6
KL. 9
KL. 6 - 9
KL. 6 - 9
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG YFIR 35.000
MANNS Í
AÐSÓ KN!
JÓLAMYNDIN Í ÁR