Fréttablaðið - 20.12.2013, Page 86
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| SPORT | 62
FÓTBOLTI Andre Villas-Boas, sem
rekinn var úr starfi knattspyrnustjóra
Tottenham á dögunum, var mótfall-
inn því að fá fjóra af leikmönnunum
sjö sem komu til Lundúnaliðsins í
sumar.
Portúgalinn mótmælti kaupunum
á Erik Lamela, Nacer Chadli, Vlad
Chiriches og Christian Eriksen sem
kostuðu samanlagt 56 milljónir
punda. Villas-Boas vildi fá Hulk, Joao
Moutinho og David Villa á White
Hart Lane en á það var ekki hlustað.
Daniel Levy, stjórnarformaður
Tottenham, er þekktur fyrir að fara
sínar eigin leiðir. Villas-Boas sóttist
eftir því að fá Paulinho, Etienne
Capoue og Roberto Soldado en hinir
fjórir komu að frumkvæði Levy og
Franco Baldini, yfirmanns knatt-
spyrnumála. Les Ferdinand, einn
af aðstoðarmönnum Villas-Boas og
hluti af núverandi þjálfarateymi,
sagði síðar í gær að Villas-Boas hefði
ekki verið þvingaður. Eftir því sem
hann vissi best hefði stjórinn verið
ánægður með þá leikmenn sem
komu til félagsins. „Það var stungið
upp á flestum þessum leikmönnum
við hann en hann gaf samþykki sitt
fyrir þeim. Miðað við okkar samtöl
þá var hann ekki mótfallinn því að fá
þessa stráka,“ sagði gamla kempan
Ferdinand sem vonast eftir því að fá
meira að gera hjá félaginu. - ktd
Leikmenn keyptir í óþökk Villas-Boas?
ANDRE VILLAS-BOAS
Helena Sverrisdóttir hefur verið sjóðheit fyrir utan þriggja
stiga línuna í Evrópukeppninni í vetur en hún spilar nú
með ungverska liðinu Aluinvent Miskolc í EuroCup.
Helena hitti úr 12 af 20 þriggja stiga skotum sínum í
sex leikjum sínum í riðlakeppninni sem gerir sextíu
prósent nýtingu og kom henni í 5. sætið á lista yfir
bestu skyttur keppninnar. Helena átti meðal annars tvo
leiki þar sem hún hitti úr öllum þremur þriggja stiga
skotum sínum. Helena skoraði 14,8 stig að meðaltali á
24,0 mínútum í leik og var sú nítjánda stigahæsta.
Helena skoraði 31 stig og hitti úr 5 af 8 þriggja stiga
skotum sínum þegar Miskolc tapaði í Mið-Evrópu-deild-
inni í gærkvöldi. Stórleikur hennar dugði því miður ekki
til sigurs en Miskolc tapaði 63-66.
Með sextíu prósent þriggja stiga
nýtingu í Evrópukeppninni
SPORT
FÓTBOLTI Hinn 23 ára gamli Sel-
fyssingur, Viðar Örn Kjartans-
son, mun reyna fyrir sér í atvinnu-
mennsku á nýju ári. Hann sló
í gegn í Pepsi-deildinni síðasta
sumar með Fylki þar sem hann
skoraði þrettán mörk rétt eins
og Atli Viðar Björnsson og Gary
Martin.
Viðar fékk að launum silfurskó-
inn en Atli Viðar fékk gullskóinn
þar sem hann lék færri leiki en
Viðar og Martin.
Þessi flotta frammistaða hans
síðasta sumar fór ekki fram hjá
erlendum félögum enda verð-
ur Viðar búinn að skrifa undir
atvinnumannasamning síðar í dag.
„Við höfum náð saman um
þriggja ára samning og ég er
virkilega spenntur fyrir þessu,“
segir Viðar en hann fór til reynslu
til félagsins í október og allt síðan
þá var mjög líklegt að hann færi
til félagsins.
Hafa mikla trú á mér
„Ég var hjá þeim í tíu daga og gekk
mjög vel. Þeir vildu samt ekki gera
neitt fyrr en þeir væru búnir að
tryggja sér úrvalsdeildarsæti. Það
gekk sem betur fer og ég vissi allt-
af að þá yrði af þessu.“
Þjálfari liðsins er gamla kemp-
an Kjetil Rekdal. Hann ætlar Við-
ari Erni stórt hlutverk í liðinu en
hann mun leysa Torgeir Børven af
hólmi en sá er á leið til Twente í
Hollandi.
„Menn hafa mikla trú á mér
hérna. Þetta er flottur klúbbur og
sá eini í Ósló. Það er mikil stemn-
ing í kringum félagið. Rekdal er
flottur. Svolítið sérstakur sem er
alls ekki verra. Hann hefur trú á
mér og það er það jákvæðasta við
þetta.“
Viðar Örn segir að sitt mark-
mið hafi verið að komast út eftir
sumarið. Það hafi gengið upp enda
skoraði hann 13 af 33 mörkum
Fylkis.
„Það þarf að skora mörg mörk
til þess að komast frá Íslandi. Ég
vildi komast út fyrr en var bjart-
sýnn á að það tækist núna,“ segir
Viðar en uppgangur hans síðustu
ár hefur verið hraður. Átti frábært
tímabil í fyrra en var ekki eins
áberandi hjá Selfossi sumarið þar
á undan þó svo að hann hafi sýnt
lipra spretti.
„Fyrri umferðin síðasta sumar
var erfið en ég skoraði níu mörk
í seinni umferðinni er liðið komst
í gang. Það var minna að gera í
framlínunni fyrri umferðinni.“
Hann lenti í erfiðum meiðslum
þegar hann var 19 ára en hann sleit
þá krossband. Þau héldu honum frá
vellinum í nánast tvö tímabil.
„Ég hef lent í ýmsu á ferlinum
og það hefur styrkt mig mikið. Ég
er meira tilbúinn núna en fyrir
fjórum til fimm árum. Þetta er
rétti tíminn fyrir mig. Ég hef
fulla trú á sjálfum mér og ætla að
sýna að ég eigi vel heima í þessari
deild,“ segir Viðar Örn Kjartans-
son. henry@frettabladid.is
Rétti tíminn fyrir mig
Framherjinn Viðar Örn Kjartansson mun í dag skrifa undir þriggja ára samning
við norska úrvalsdeildarfélagið Vålerenga. Hann kemur til félagsins frá Fylki.
NÝ ÆVINTÝRI Viðar Örn er að uppskera eftir frábært sumar með Fylki og verður
gaman að fylgjast með honum í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
HANDBOLTI Dragana Cvijic átti
stórkostlegan leik með Serbum
þegar liðið skellti Norðmönnum á
HM kvenna á miðvikudagskvöldið.
Átta sinnum skaut hún á markið og
alltaf hafnaði boltinn í netinu. Þá
tók hún hraustlega á því í vörninni
gegn norsku stelpum sem áttu fá
svör.
Lýsandi leiksins, Harald Bred-
eli, á TV 2 hefur verið gagnrýnd-
ur fyrir orðaval sitt á meðan leik
stóð. Cvijic er stór og stæðileg, 185
cm á hæð og 95 kíló. Varð honum
tíðrætt um líkamsbyggingu Serb-
ans.
„Við sjáum að hún hefur ekki
misst úr kvöldverð síðan hún
fæddist fyrir 23 árum,“ sagði
Bred eli þegar Cvijic nældi í víta-
kast.
Else-Marthe Sörlie Lybekk, sem
spilaði 215 landsleiki fyrir Noreg,
sagði lýsandann líklega hafa tjáð
sig án þess að hugsa. Minnti hún á
átta ára gamalt atvik þegar Bred-
eli sagði í beinni útsendingu að
handboltakonan Gro Hammerseng
væri glæsilegasta lesbía sem Nor-
egur hefði alið. Lýsandinn gerði
sér ekki grein fyrir að kveikt væri
á hljóðnemanum. Fyrir vikið var
Hammerseng komin opinberlega
út úr skápnum gegn vilja sínum.
Eftir leikinn gerði Bredeli tap-
leikinn upp á samfélagsmiðlinum
Twitter í nokkrum orðum.
„Okkar leikmenn og liðið hafa
átt betri daga. Serbar eiga mikið
hrós skilið og spiluðu sinn besta
leik frá upphafi. Cvijic sýndi fram
á mikilvægi kvöldverðar.“
Lybekk segir handboltafólk af
öllum stærðum blómstra í íþrótt-
inni. „Hún er einn besti línumaður
í heimi og leiðtogi bæði í félagsliði
sínu og landsliði. Svona ummæli
eiga ekki heima í norsku sjónvarpi.
Það eru til aðrar leiðir til þess að
vera fyndinn.“ - ktd
Kvöldverðurinn er mikilvægur
Norskur lýsandi hefur verið gagnrýndur fyrir orðaval í tapleiknum gegn Serbíu.
BAR LIÐIÐ Á HERÐUM SÉR Dragana
Cvijic var frábær með Serbum á móti
Noregi. Hér fagnar hún sigrinum með
liðsfélaga sínum. MYND/AFP
Mörk Viðars Arnar
í Pepsi-deild karla
sumarið 2013
TÖLFRÆÐIN Í DEILDINNI
Leikir 22
Mörk 13
Stoðsendingar 3
Fráköst af hans skotum sem gáfu mark 1
Fiskuð víti sem gáfu mark 3
Þáttur í mörkum 20
TÖLFRÆÐIN Í DEILD OG BIKAR
Leikir 25 (3 í bikar)
Mörk 18 (5 í bikar)
MÖRK EFTIR AÐSTÆÐUM
Á heimavelli 6 mörk
Á útivelli 7
Í fyrri hálfleik 4
Í seinni hálfleik 9
Á fyrsta hálftímanum 3
Á síðasta hálftímanum 7
Á móti fjórum efstu liðunum 3
Á móti efri hluta (lið í 1. til 6. sæti) 6
Á móti neðri hluta (lið í 7. til 12. sæti) 7
MÖRK EFTIR MÁNUÐUM
Maí 3 mörk (5 leikir)
Júni 1 (4)
Júlí 3 (5)
Ágúst 2 (3)
September 4 (5)
MÖRK EFTIR AÐFERÐUM
Með hægri fæti 11 mörk
Með vinstri fæti 0
Með skalla 1
Úr víti 1
MÖRK EFTIR AÐSTÖÐU
Úr markteig 2 mörk
Úr vítateig utan markteigs 9
Utan teigs 1
MÖRK EFTIR SNERTINGUM
Úr föstu leikatriði 1 mark úr víti
Eftir eina snertingu 6
Eftir tvær snertingar 2
Eftir þrjár til fjórar snertingar 3
Eftir fimm eða fleiri snertingar 1
MÖRK EFTIR AÐDRAGANDA
Eftir stungusendingar 4 mörk
Eftir langar sendingar 3
Eftir fyrirgjafir 2
Eftir föst leikatriði 3
Annar undirbúningur 1
FÓTBOLTI Íslenska karlalands-
liðið í knattspyrnu er í 49. sæti
á nýuppfærðum styrkleikalista
FIFA en desemberlistinn var gef-
inn út í gær.
Strákarnir okkar fara upp
um eitt sæti á listanum. Litlar
hreyfingar eru á honum enda fáir
leikir farið fram síðan hann var
uppfærður fyrir mánuði.
Ísland hóf árið í 89. sæti og fór
því upp um 40 sæti á árinu 2013.
- óój, - ktd
Ísland upp um
40 sæti á árinu
UPP, UPP, UPP Aron Einar Gunnarsson,
fyrirliði landsliðsins. NORDICPHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Drífa Þorvaldsdóttir,
hægri skytta ÍBV í Olísdeild
kvenna í handbolta, leikur ekki
meira með liðinu í vetur.
Drífa er ófrísk
og tilkynnti
liðsfélögum
sínum
gleðitíðindin
á dögunum
en hún hefur
skorað 4 mörk
í leik í vetur
og var valin í
A-landsliðið á
dögunum.
Svavar
Vignisson,
þjálfari ÍBV,
sagði í samtali
við Eyjafréttir að Drífa sé fimmti
leikmaðurinn sem tilkynni
honum að hún sé ófrísk síðan
hann tók við ÍBV-liðinu. - ktd
Barnalán í tíð
Svavars
DRÍFA ÞOR-
VALDSDÓTTIR.