Fréttablaðið - 20.12.2013, Side 94

Fréttablaðið - 20.12.2013, Side 94
20. desember 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 70 „Einn leikari sleit liðþófa á æfingu svo ég þurfti að stökkva inn í sýn- inguna í hlutverk Much Miller. Ég frumsýndi því líka sem leikari. Aldrei dauð stund hjá mér,“ segir leikarinn og leikstjórinn Gísli Örn Garðarsson. Hann er búinn að dvelja vestan hafs meirihlutann af árinu og frumsýndi á miðvikudag- inn sýninguna The Heart of Robin Hood sem hann leikstýrir í leikhús- inu American Repertoire í Boston. Gísli Örn frumsýndi líka sem leikari því hann þurfti að taka við hlutverki leikarans Andy Grotelueschen á síð- ustu stundu. Andy leikur Much Miller sem er eitt af aðalhlutverkunum í sýn- ingunni. Hann er einn af útlög- um Hróa Hattar og þarf að sýna ýmsar kúnstir á sviðinu, svo sem loftfimleika og sviðsslagsmál. Andy þessi hefur leikið í ýmsum þekktum leikritum í Bandaríkjun- um, þar á meðal Cyrano de Berg- erac og Roundabout á Broadway. Þá lék hann lítið hlutverk í sjónvarps- þáttunum Elementary. - lkg Einn leikari sleit liðþófa á æfingu svo ég þurfti að stökkva inn í sýninguna í hlutverk Much Miller. Gísli Örn Garðarsson Stökk inn í sýningu fyrir slasaðan leikara Gísli Örn frumsýndi The Heart of Robin Hood í Boston á miðvikudaginn sem bæði leikari og leikstjóri. FJÖLHÆFUR Gísla er margt til lista lagt. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR (Eftir minni) Undan vindi vondar sendi, óskir ferskar raski þrjóskum, eitrið ljóta bíti hann skeytið holdið grenni, kenni og innan brenni Allur fyllist illum sullum, eyði snauðum bráður dauði. Ágústa Eva Erlendsdóttir, leikkona. BESTA NÍÐVÍSAN „Ég vann fyrir Victoriu Beckham í síðustu viku og það var mjög magn- að að hitta hana,“ segir fyrirsætan Eydís Helena Evensen sem hefur búið í London í haust. Hún hefur unnið sem Elite-fyrir- sæta þar undanfarið og tekist á við ýmis áhugaverð verkefni. „Verk- efnið fyrir Victoriu Beckham var svokallað „showroom“ fyrir nýju línuna hennar, sem virkar þannig að nokkrar fyrirsætur gengu um salinn og sýndu línuna hennar. Sal- urinn var fullur af kúnnum alls staðar að úr heiminum,“ útskýr- ir Eydís Helena, sem tók meira að segja lagið með frú Beckham baksviðs. „Það var mjög gaman, enda er ég dyggur aðdáandi Spice Girls,“ bætir Eydís Helena bros- andi við. Hún hefur setið fyrir hjá Top Shop, Urban Outfitters og ELLE UK-vefsíðunni, fyrir utan Victoriu Beckham-verkefnið. „Þetta hefur verið virkilega áhugavert og ég hef öðlast mikla reynslu þarna úti. Fyrir Top Shop gerði ég sex tísku- myndbönd sem munu birtast á vefsíðu Top Shop innan skamms,“ segir Eydís Helena. Verk hennar má einnig sjá á hinni vinsælu og virtu vefsíðu Urban Outfitters og einnig á vef- síðu Elle UK. „Ég fæ yfirleitt bara sms á kvöldin frá skrifstofunni sem segir til um hvað ég sé að fara að gera daginn eftir. Það er spenn- andi og skemmtilegt,“ segir Eydís Helena aðspurð um hvernig verk- efnin verði til. Fyrir utan fyrirsætustörfin, spilar Eydís Helena á píanó og var hún ekki í vandræðum með að finna sér stað í London til þess að æfa sig á píanóið. „Einn dag- inn, þegar var ég að labba heim úr vinnu, heyrði ég píanóhljóm úr einni íbúð. Ég bankaði upp á og þar kom áttræður maður til dyra og ég spurði hann hvort ég mætti æfa mig á píanóið hjá honum. Hann svaraði játandi og fór ég til hans nokkrum sinnum í viku og æfði mig,“ útskýrir Eydís Helena. Eydís Helena er stödd heima á Íslandi yfir hátíðarnar og er óviss um hvert stefnan verði sett á næsta ári. „Mig lang- ar að klára tón- listarnámið mitt á Íslandi eftir áramót en mér stendur til boða að fara að vinna í Míl- anó í janúar, hjá Fashion Milan,“ útskýrir Eydís Hel- ena. Ef hún held- ur áfram í fyrir- sætugeiranum eru næstu stoppistöðv- arnar líklega París eða New York. „Það er auðvitað mjög spennandi og freist- andi að halda áfram en mig langar að stoppa aðeins á Íslandi í bili.“ gunnarleo@frettabladid.is Vann fyrir Victoriu Beckham í London Eydís Helena hefur unnið sem fyrirsæta Elite í London og er að gera góða hluti. Hún hefur meðal annars setið fyrir hjá Top Shop, Urban Outfi tters og Elle UK. VINKONA VICTORIU Eydís Helena Evensen er að gera góða hluti í fyrirsætugeiranum í London. Hún vann meðal annars fyrir Victoriu Beckham og tók lagið með henni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Eydís Helena tók meira að segja lagið með Victoriu Beckham baksviðs. Það var mjög gam- an, enda er ég dyggur aðdáandi Spice Girls.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.