Fréttablaðið - 27.12.2013, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 27.12.2013, Blaðsíða 32
FRÉTTABLAÐIÐ 4 • LÍFIÐ 27. DESEMBER 2013 Fólk og Tíska. Kjarnakonur Lífsins árið 2013. Heilsumoli . Helgarmaturinn og Spjörunum úr. IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk. opið til 22 alla daga. Nú þegar árið er að líða undir lok er vert að líta til baka og skoða brot úr forsíðuviðtölum Lífsins á árinu. Sorgir, sigrar, ást, brúðkaup, barneignir, ringulreið, tækifæri, fl utningar, hamingja, tíska og fl eira er meðal þess sem við- mælendur deildu með lesendum Lífsins. Lífi ð þakkar þeim kjarnakonum sem prýddu blaðið á árinu. LÍFIÐ KJARNAKONUR SEM PRÝDDU FORSÍÐU LÍFSINS ÁRIÐ 2013 ÞETTA ER SKEMMTI- LEGASTA STARF Í HEIMI ÞÚ VERÐUR AÐ VERA ANDLEGA STERK Margrét Gnarr 20. SEPTEMBER „Maður finnur rosalega mikið fyrir því. Það verða alltaf neikvæð- ar raddir en þetta er orðið svolítið þreytt. Maður reynir að einbeita sér að jákvæðri gagnrýni og hafa húmor fyrir þessu. Þegar ég set inn mynd á Facebook fæ ég kannski 500 athugasemdir á myndina og þá eru kannski tíu neikvæð. Ég passa mig á að láta ekki draga mig inn í þetta drama.“ ALLT VIRTIST VERA AÐ FARA TIL AND- SKOTANS Nanna Bryndís Hilmarsdóttir 8. NÓVEMBER „Nei, ég er ábyggilega alveg jafn slæm og þeir, ef ekki verri. Við túruðum nán- ast samfleytt í 18 mánuði en við höfum það voðalega fínt. Við erum með mjög góða rútu með öllum helstu þægindum. Ég get ekki ímyndað mér að túra í sendibíl og reyna að ná smákríu á öxlinni á öðrum meðlimum eins og svo marg- ar hljómsveitir þurfa að gera. Við erum stundum að keyra í sólarhring og rútan er troðfull af fólki þannig að það er ekki ekki mikið næði,“ segir hún og glottir út í annað. María Birta Bjarnadóttir 18. JANÚAR „Auðvitað kostaði það fúlgu að þurfa að loka aftur og færa mig úr Kringlunni á ögur stundu og svo var það bara mikið áfall. Allt gekk þetta þó að lokum. Ég var mjög snortin yfir því hversu margir settu sig í samband við mig og buðu mér hjálp á einn eða annan hátt og vil ég þakka þeim öllum hér með þar sem ég komst aldrei í gegnum öll bréfin sem ég fékk á þessum tryllta tíma.“ FARIN AÐ LÆRA AÐ SLÁ AF KRÖFUNUM Ebba Guðný Guð- mundsdóttir 22. MARS „Það gengur oftast ágætlega. Við maðurinn minn vinnum hjá sjálfum okkur og getum því stokk- ið frá yfir daginn og sinnt því sem þarf að sinna, sem er mikill kostur þegar kemur að Hafliða. Það þarf að smíða fætur, stilla fætur og yfirfara reglulega, fara í sjúkraþjálfun og annað slíkt. Við erum heppin. En annars er ég eins og allar mæður, oft eins og útspýtt hundskinn, lafmóð og andstutt að reyna að sjá um og muna eftir milljón hlutum í einu. En ég er farin að læra betur núna að slá af kröfunum.“ Áslaug Magnúsdóttir 19. JÚLÍ „Nei, alls ekki. Þessi frétt lak á meðan ég var í samningaviðræðum um eign- arhlutinn eftir að ég hafði sagt upp. Svo kom þetta í blöðunum og mér fannst jákvætt að það kom fram að ég var sú sem var með viðskiptavitið í fyrirtæk- inu. Þessi frétt var svo fáránleg. Síðan hvenær er það krafa fyrir forstjóra að vera hipp og kúl? Ég tek það nú ekkert nærri mér. Það er nú ekki þannig sem ég vil láta meta minn árangur í starfi.“FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MYND/ROBERT CAPLIN FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI MIKILVÆGT AÐ FRUM- KVÖÐLAR TRÚI Á SJÁLFA SIG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.