Fréttablaðið - 17.01.2014, Blaðsíða 22
FÓLK|
KÓRSTJÓRINN
Matti Sax stökk á
tækifærið til að stjórna
Vocal Project fyrir
þremur árum og sér
ekki eftir því.
MYND/ALDÍS FJÓLA BORGFJÖRÐ
MIKIL STEMNING
„Stemningin á tónleikum
Vocal Project er oft ansi
klikkuð,“ segir kórstjór-
inn. Svona var stuðið
á tónleikum kórsins í
Borgarleikhúsinu með
Sniglabandinu í fyrra.
MYND/BENT MARINÓSSON
Vocal Project er óvenjulegur poppkór sem var stofnaður fyrir rúmum þremur árum. „Forsagan
er þannig að nokkrir vinir voru saman
í gospelkór Háskólans í Reykjavík sem
lagður var niður. Þau langaði að halda
áfram að syngja saman og auglýstu því
eftir stjórnanda til að stjórna sönghópn-
um. Ég sá þá auglýsingu og sló til,“ segir
Matthías Baldursson, djass- og popptón-
listarmaður, eða Matti Sax eins og hann
er kallaður.
ÓVENJULEGUR KÓR
„Kórinn er óvenjulegur að því leyti að
við syngjum á brjóströddunum, það er
að segja við syngjum eins og poppsöngv-
arar en flestir kórar eru klassískari og
hljóma frekar eins og óperusöngvarar. Á
tónleikum hjá okkur erum við líka með
stóra hljómsveit með okkur og Vocal
Project er eini kórinn á landinu með þá
sérstöðu að hafa fastráðinn trommu-
leikara í stað píanóleikara eins og er
algengast í kórum.“
Kórfélagar hittast mikið utan æfinga
og segir kórstjórinn það vera aðalmálið
að halda góðum móral í hópnum. „Okkur
finnst skemmtilegast af öllu að syngja
og því er það þannig að um leið og fyrsti
maður mætir í partí þá er gítarinn rifinn
upp og honum er ekki pakkað niður fyrr
en síðasti maður er farinn úr partíinu. Ef
við svo förum í bæinn saman förum við á
karókíbar og höldum áfram að syngja.“
LEYNIVERKEFNI Í VOR
Vocal Project hefur haldið um það bil
tvenna stórtónleika á ári síðan kór-
inn var stofnaður. „Við spiluðum með
Sniglabandinu síðastliðið vor þar sem
við útsettum Sniglabandslög upp á nýtt.
Þeir spiluðu undir hjá okkur í nokkrum
lögum og svo sungum við bakraddir
í öðrum. Þetta var mjög skemmtilegt
og við stefnum að því að gera meira af
þessu. Það stefnir í rokktónleika í vor en
það eina sem ég get sagt er að þeir verða
með þekktu bandi. Það er því vissara að
fylgjast með okkur,“ segir Matti leyndar-
dómsfullur.
HAMAGANGUR Í KVÖLD
Í kvöld verður Vocal Project með tón-
leika sem kallast Hamagangur í Hörpu.
Þar verður meðal annars boðið upp á
lög eftir þekktar popp- og rokkhljóm-
sveitir. „Við í Vocal Project ráðumst
ekki á garðinn þar sem hann er lægst-
ur. Poppkór Íslands, eins og við köllum
okkur stundum, er ekki þekktur fyrir
það, við erum stórhuga, djörf og bjart-
sýn þótt við séum einungis þriggja ára.
Í kvöld ætlum við að taka lög eins og
til dæmis Africa með Toto, Celebration
með Kool & The Gang og Little Talks
með Of Monsters and Men. Einnig
tökum við eitthvað með U2, Coldplay,
ABBA, Van Halen og Stevie Wonder.“
Kórinn frumflytur tvö lög á tónleik-
unum, annars vegar lag um íslensku
konuna eftir Áslaugu Helgu Hálfdánar-
dóttur og hins vegar lag eftir skáldkon-
una Þórunni Valdimarsdóttur. „Lagið
eftir Þórunni er glænýtt klögunarlag
sem var sérstaklega samið fyrir kór-
inn. Þetta er alþjóðleg hugmynd þar
sem kórar alls staðar að úr heiminum
syngja klögunarlög. Það eru meira að
segja til svokallaðir klögunarkórar. Þar
er þá verið að kvarta yfir þjóðfélaginu
og fá útrás fyrir pirringinn. Þetta er
samt sem áður furðulega skemmtilegt,“
segir Matti og skellir upp úr.
■ liljabjork@365.is
SKEMMTILEGASTI
KÓR LANDSINS
POPPKÓR Vocal Project er skemmtilegasti kór landsins að mati kórstjórans
og mikið stuð í kringum hann. Í kvöld verður kórinn með Hamagang í Hörpu.
HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 Kolbeinn
Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447 | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.is
Við erum á Facebook
Kjólar-bolir-peysur-mussur-buxur
Enn er hægt að gera góð kaup :-)
Útsala
Útsala
50% afsláttur
Nýtt korta
tímabil
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Verð nú
9.030 kr.
“Pleður -
Bikerjakki”
Nýtt kortatímabil.
ORKUSTANGIR
Innihald:
Möndlur (gott að rista þær í 160 gráðu heitum ofni í 10
mínútur og kæla)
Þurrkuð kirsuber (eða hvaða þurrkuðu ávextir sem er)
Döðlur
Einfalt er að skella einum bolla af hverju hráefni út í matvinnslu-
vélina og mauka vel saman í nokkrar mínútur eða þar til allt er
orðið að klesstum massa. Þá er massanum skóflað yfir á bökunar-
pappír á borði eða ofan í form og jafnað út. Gott er að leggja aðra
örk af bökunarpappír yfir massann og jafna út með höndunum
eða kartöflustappara eða rúlla yfir með kökukefli. Þá er „kakan“
kæld vel undir plastfilmu í ísskáp áður en hún er skorin niður í
litlar stangir í hentugri stærð. Vefjið stangirnar inn í plastfilmu og
geymið í kæli. Þær ættu að geymast í nokkrar vikur í ísskápnum
og allt upp í þrjá mánuði í frysti.
Gott að setja út í: chia-fræ, kókosmjöl, kakóduft, rifinn sítrónu-
börk, kanil eða dökkt súkkulaði.
EINFALDAR ORKUSTANGIR
Hollur og bragðgóður biti úr þremur hráefnum sem auðvelt er að búa til heima
og eiga í frysti. Möndlur, þurrkaðir ávextir og döðlur fara afar vel saman.
Skipholti 29b • S. 551 0770
NÝ sending
frá
Útsala í fullum gangi!
Hægt að gera góð
kaup á vandaðri vöru
Vertu velkomin! Sjáðu myndirnar á facebook.com/Parisartizkan!