Fréttablaðið - 08.04.2014, Qupperneq 4
8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
ÁRÉTTING
Í frétt í blaði gærdagsins um veiðigjöld
og framlög ríkisins til hafrannsókna
var aðeins miðað við veiðigjald sem
lagt var á útgerðina. Við það bættist
sérstakt veiðigjald síðustu tvö ár. Það
var 5,1 milljarður árið 2012 og 4,8
milljarðar í fyrra.
HALDIÐ TIL HAGA
Í umfjöllum um Samfélagsverðlaun
Fréttablaðsins, á síðu 14 í blaði gær-
dagsins, féllu niður nöfn í myndatexta.
160.400 gistinætur voru á
hótelum í febrúar síðastliðnum.
Það er 13 prósenta aukning frá sama
mánuði í fyrra. Heimild: Hagstofa Íslands
KOSNINGAR Samfylkingin í Reykja-
vík ætlar að hækka frístundastyrk
barna í fimmtíu þúsund krónur,
samkvæmt málefnaskrá flokksins
fyrir komandi
borgarstjórnar-
kosningar. Frí-
stundastyrkur
nemur nú þrjátíu
þúsund krónum.
Dagur B. Egg-
ertsson, oddviti
listans, segir að
hækkunin muni
kosta 250 millj-
ónir króna til viðbótar við þær 467
milljónir sem styrkurinn kostar
nú. Hækkunin rúmist innan fimm
ára áætlunar borgarinnar sem
samþykkt hafi verið í haust. „Við
höfum fengið nóg af loforðaglöðum
stjórnmálaflokkum sem geta ekki
rökstutt hvaðan peningarnir eiga
að koma,“ segir hann. - ssb
Kynna málefnaskrá:
Vilja hækka
frístundastyrk
DAGUR B.
EGGERTSSON
STJÓRNMÁL Stuðningur við ríkis-
stjórnina minnkar milli kannana
MMR. Í könnun sem gerð var 28.
mars til 1. apríl mældist stuðning-
urinn 38,7 prósent. Í mælingu sem
lauk þann 28. febrúar síðastliðinn
studdu stjórnina 40,9 prósent og
46,6 prósent í könnun sem lauk
15. febrúar.
Fylgi Sjálfstæðisflokks mæld-
ist nú 23,9 prósent, borið saman
við 29 prósent í lok febrúar. Fylgi
Bjartrar framtíðar mældist nú 17,1
prósent (var 16,4), Samfylkingar
15,1 prósent (var 14), Framsókn-
arflokks 14,4 prósent (var 14,6) í
síðustu könnun, Vinstri-grænna
11,5 prósent (var 10,4), Pírata 11
prósent (var 9,3). Fylgi annarra
flokka mældist undir tveimur pró-
sentum. - ibs
MMR kannar fylgi flokka:
Dregur úr
stuðningi við
Sjálfstæðisflokk
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
LITLAR BREYTINGAR Fremur rólegt verður á landinu næstu daga. Yfirleitt hæg
suðlæg átt og skýjað með köflum. Stöku skúrir um sunnanvert landið. Á fimmtudag
snýst í hæga norðlæga átt með éljum fyrir norðan en bjartviðri syðra.
6°
6
m/s
6°
7
m/s
7°
6
m/s
8°
8
m/s
Hæg
breytileg
átt.
3-8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
16°
24°
9°
14°
19°
5°
15°
12°
12°
23°
13°
23°
23°
20°
14°
18°
11°
15°
8°
3
m/s
7°
5
m/s
7°
4
m/s
8°
6
m/s
9°
4
m/s
7°
5
m/s
3°
8
m/s
8°
5°
7°
0°
10°
6°
7°
3°
9°
2°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
FÉLAGSMÁL Verkfall flugvallar-
starfsmanna var skipulagt frá
klukkan fjögur í nótt og til níu í
morgun. Þeir hafa um nokkurra
vikna skeið reynt að ná samningum
við Isavia án árangurs.
Samkvæmt
heimildum blaðs-
ins vildi Félag
flugmálastarfs-
manna ríkis-
ins (FFR) fá sex
prósenta launa-
hækkun í samn-
ingi sem gilti til
eins árs. Isavia
samþykkti launa-
hækkunina með þeim skilyrðum að
samningurinn gilti í tvö sumur eða
samtals átján mánuði. Á þetta vildi
samninganefnd Flugvallarstarfs-
manna ekki fallast. Formaður FFR
er Kristján Jóhannsson. „Þetta er
eldgömul hugmynd. Það er að verða
hálfur mánuður síðan við hættum að
ræða hana. Við fengum þau skilaboð
frá okkar félagsmönnum að breyt-
ingin myndi ekki ganga í gegn.“
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
hafa flugöryggisverðir um 450 þús-
und krónur í meðalheildarlaun og
aðrir flugvallarstarfsmenn um 550
þúsund krónur.
Kristján segir að álag á starfs-
menn hafi aukist mjög með auknum
ferðamannastraumi. „Sumir hafa
setið eftir allt of lengi en aðrir hafa
gengið í gegnum rosalegar breyting-
ar. Öll fjölgun á farþegum bitnar á
þessu fólki því það er meira álag. Á
venjulegum degi fara fjögur þúsund
manns þarna í gegn og þurfa að fá
þjónustu frá okkar fólki.“
Launakröfurnar segir Kristján
ekki óraunhæfar „Við ætlumst til
þess að það sé komið til móts við
það fólk sem vinnur þarna. Ljósi
punkturinn er þó að á fundi í morg-
un [í gær] fengum við í fyrsta skipti
opnun á kröfugerð okkar sem við
lögðum fram í desember og er
byggð á margra mánaða vinnu
okkar fólks. En sú opnun kemur of
seint og gengur of skammt þó hún
sé í þá átt sem við hefðum viljað
vera byrjuð að ræða fyrir mörgum
vikum.“
Félag flugmálastarfsmanna fékk
meiri hækkun en almennt gerðist
árið 2011. Kristján segir ekki þýða
að horfa í baksýnisspegilinn. „Það
er allt í lagi að skoða fortíðina á ein-
hvern hátt en við mótmælum því
algjörlega að við eigum að hengja
okkur í það. Af hverju skyldu starfs-
menn ekki fá að njóta þess að starfa
hjá fyrirtæki sem er vel stætt og er
greinilega á þeim stað í tilverunni
að eiga „bunch of money“ eins og
Megas sagði. Þetta eru ekki óraun-
hæfar kröfur.“
snaeros@frettabladid.is
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Frábært
verð!
FÓLKIÐ Á FLUGVELLINUM
Þetta fólk er á leið í verkfall:
Flugvallarstarfsmenn Slökkviliðsmenn, snjómokstursfólk, smiðir, rafeinda-
virkjar og margt fleira.
Fluggagnafræðingar Þeir vakta flugstjórnarkrefi í flugstjórnarmiðstöðinni.
116
18
Flugöryggisverðir Sinna vopnaeftirliti og öryggisgæslu í flugstöð og á flugvelli.
158
63
Skrifstofufólk Sinnir almennum skrifstofustörfum.
Vilja meira en sex
prósent sem buðust
Fyrsta verkfall flugvallarstarfsmanna var skipulagt snemma í morgun. Fundað var í
gær hjá ríkissáttasemjara. Þá var opnað á kröfur sem ekki höfðu verið skoðaðar áður.
Fulltrúar starfsfólksins segja óánægjuna margþætta. Álag fylgi fjölgun ferðamanna.
KRISTJÁN
JÓHANNSSON
HEILBRIGÐISMÁL Greiðsluþátttaka
Sjúkratrygginga Íslands vegna
öryggiskallkerfa lækkar um 1.200
krónur á mánuði samkvæmt nýrri
reglugerð sem tók gildi 1. janúar
síðastliðinn.
Öryggismiðstöðin sendi við-
skiptavinum sínum bréf í gær til
að benda á þessa lækkun, en hún
hefur í för með sér að þeir sem
notast við neyðarhnapp vaktstöðv-
arinnar munu koma til með að
borga 1.200 krónum meira á mán-
uði fyrir aðstoðina.
Í reglugerð 1155 frá því í fyrra
segir að Sjúkratryggingum Íslands
beri að greiða Öryggismiðstöðinni
5.500 krónur fyrir mánaðarlega
þjónustu vegna notkunar neyðar-
hnappsins og viðbragða við boðum.
Samkvæmt fyrri reglugerð var
þessi upphæð 6.700 krónur.
Ómar Örn Jónsson, markaðs-
stjóri Öryggismiðstöðvarinnar,
segir að aldraðir og örykjar nýti
sér fyrst og fremst niðurgreiðslu
vegna neyðarhnappsins.
„Það er ekki spurning að þetta
er hækkun á aldraða og öryrkja,“
segir Ómar. „Okkur finnst þetta
afskaplega óheppilegt.“
Hækkunin kemur að sögn
Ómars ekki í gegn fyrr en í júlí.
Mánaðarleg greiðsla hnappþega
nemur um 1.350 krónum á mánuði
en sú upphæð mun nánast tvöfald-
ast við breytingarnar.
„Við höfum ekki hækkað verð
frá því að menn muna,“ segir
Ómar. „Þannig að þetta er langt
frá því að vera skemmtileg
aðgerð.“ - bá
Lækkun greiðsluþátttöku vegna öryggiskallkerfa kemur fyrst og fremst niður á öldruðum og öryrkjum:
Kostnaður vegna neyðarhnapps tvöfaldast
AF HRAFNISTU Margir eldri borgarar
treysta á neyðarhnappinn sem niður-
greiddur er að miklu leyti af Sjúkra-
tryggingum Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HOLLAND, AP Réttarhöld hófust í
gærmorgun við hollenskan dóm-
stól þar sem ekkjur og mæður frá
borginni Srebrenica í Bosníu hafa
kært hollenska friðargæslumenn
fyrir að hafa brugðist þegar fjölda-
morðin þar voru framin árið 1995.
Serbneskar hersveitir myrtu um
átta þúsund karla, marga á barns-
aldri, á verndarsvæði Sameinuðu
þjóðanna í Srebrenica meðan Bos-
níustríðið stóð sem hæst.
Ekkjur og mæður hina myrtu
fara nú fram á skaðabætur frá
Hollandi. Þær reyndu upphaflega
að sækja Sameinuðu þjóðirnar til
saka, en dómstóllinn vísaði kær-
unni frá á þeim forsendum að Sam-
einuðu þjóðirnar nytu friðhelgi að
lögum. Fallist var á að hollenska
stjórnin svaraði til saka. - gb
Hollendingar svara til saka:
Mæður vilja
skaðabætur
FYRSTU VERÐLAUNAHAFARNIR Þráinn
Hafsteinsson og Þórdís Lilja Gísladóttir,
uppfræðarar ársins, Sigríður Björnsdóttir
fyrir hönd Blátt áfram hjá UMFÍ, Alma
Geirdal og Edda Ýrr Einarsdóttir fyrir hönd
Forma, samtaka átröskunarsjúklinga, Tho-
siki Toma, vegna atlögu gegn fordómum,
Gylfi Bragi Guðlaugsson, ung hetja og
Guðbjörn Magnússon hvunndagshetja.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI