Fréttablaðið - 08.04.2014, Side 11

Fréttablaðið - 08.04.2014, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2014 | FRÉTTIR | 11 Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. boðar til aðalfundar í félaginu sem haldinn verður á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, þriðjudaginn 29. apríl 2014 og hefst stundvíslega kl. 16.00. Drög að dagskrá fundarins eru svohljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðastliðið reikningsár með athugasemdum endurskoðenda. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar eða taps félagsins á síðastliðnu reikningsári og framlög í varasjóð. 4. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins skal lögð fram og atkvæði greidd um hana. 5. Tillögur til breytinga á samþykktum, ef borist hafa. 6. Kosning stjórnar félagsins. 7. Kosning endurskoðanda eða endurskoðunarfélags. 8. Ákvörðun um þóknun stjórnar félagsins. 9. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur mál, sem löglega eru upp borin. Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verður endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfundinn. Hægt er að senda tillögur eða ályktanir fyrir fundinn á veffangið stjorn@sjova.is. Hluthafar geta einnig lagt fram spurningar er varða auglýsta dagskrárliði á aðalfundinum sjálfum. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa er að finna á vefsíðu félagsins www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir. Atkvæðagreiðslur á aðalfundinum verða ekki skriflegar nema ef einhver fundarmanna krefst þess. Stjórnarkjör skal þó vera skriflegt ef fleiri eru í kjöri til stjórnar en kjósa skal. Kveðið er nánar á um stjórnarkjör í samþykktum félagsins en kosið er eftir hlutfallskosningu. Athygli er þó vakin á ákvæðum samþykkta um hlutfall kynja í stjórn félagsins. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist félaginu a.m.k. fimm dögum fyrir auglýstan aðalfund. Hluthafar geta jafnframt vitjað atkvæðaseðla í höfuðstöðvum félagsins frá sama tíma og greitt þar atkvæði. Aðalfundur er lögmætur ef löglega er til hans boðað og mætt er fyrir helming hlutafjár í félaginu. Frestur til að tilkynna framboð til stjórnar lýkur fimm sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilis- fang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Framboðseyðublöð er hægt að nálgast á vefsíðu félagsins. Upplýsingar um frambjóðendur verða aðgengilegar á vefsíðunni www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir að lágmarki tveimur dögum fyrir aðalfund. Endanleg dagskrá aðalfundar og fundargögn, þ.á.m. tillögur stjórnar, sem lögð verða fyrir aðalfund eru birt á vefsíðu félagsins www.sjova.is/fjarfestar/hluthafafundir og liggja frammi á skrifstofu þess í Kringlunni 5, 103 Reykjavík. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á aðalfundinn á fundarstað frá kl. 15.30 á aðalfundardag. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík 3. apríl 2014 Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. verður haldinn 29. apríl 2014 SUÐUR-AFRÍKA, AP Oscar Pistorius hóf mál sitt við réttarhöldin í gær á því að biðja fjölskyldu Reevu Steenkamp, unnustu sinnar sem hann varð að bana fyrir rúmu ári, afsökunar. Hann sagðist vera í miklu áfalli, þurfa að nota róandi lyf og vakna reglulega upp við mar- traðir. Hann ítrekaði að hann hefði haldið að hann væri að skjóta innbrotsþjóf þegar hann skaut á kærustu sína í gegnum salernis- hurð á heimili sínu í Pretoríu. „Ég var bara að reyna að vernda Reevu,“ sagði hann. - gb Pistorius biðst afsökunar: Segist reglulega fá martraðir OSCAR PISTORIUS Barðist við tárin við réttarhöldin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SVÍÞJÓÐ Ástandið í Úkraínu hefur leitt til þess að njósnir Rússa í Sví- þjóð hafa aukist samkvæmt mati sænsku öryggislögreglunnar. Á fréttavef Dagens Nyheter segir að þetta snúist meðal ann- ars um undirbúning stríðs. Rússar eru sagðir afla sér ýmissa upplýsinga, eins og til dæmis með því að fá fólk til liðs við sig og með því að kaupa mikið magn af landakortum. Þetta er haft eftir Wilhelm Unge, sérfræð- ingi í gagnnjósnum. - ibs Sænska öryggislögreglan: Auknar njósnir Rússa í Svíþjóð DANMÖRK Nær eitt þúsund öku- menn sem voru á ferð nálægt Kristjaníu í Kaupmannahöfn frá því í september 2012 og þar til í mars á þessu ári reyndust vera undir áhrifum fíkniefna, þar af nær 700 undir áhrifum kannabis- efna. Að þessu komst lögreglan með aðstoð nýrra mælingatækja. Ekki er þó hægt að dæma við- komandi nema blóðpróf staðfesti fíkniefnaneyslu. Tólf lögregluumdæmi í Dan- mörku auk Færeyja hafa nú yfir að ráða fíkniefnamælum. - ibs Ökumenn afhjúpaðir: Eitt þúsund undir áhrifum Í KRISTJANÍU Fíkniefnaviðskipti eru algeng í Kristjaníu í Kaupmannahöfn. NORDICPHOTOS/AFP FERÐAÞJÓNUSTA Traustið skortir Ljóst virðist að ferðaþjónustan treystir því ekki að tekjur af einni sameigin- legri skattlagningu eða gjaldtöku skili sér á rétta staði, að því er fram kemur í Hagsjá Landsbankans. Allir viti að útvarpsgjald fari ekki alfarið til RÚV og að ýmis gjöld á eldsneyti skili sér ekki á tilætlaða staði. Sé hins vegar vilji til aukinnar skattlagningar á ferðamenn gæti nú verið heppilegur tími til slíks. SAMGÖNGUR Nýja upplýsingakerfið Safetravel var formlega tekið í notkun í gær og er því ætlað að auka upplýsingagjöf til ferðamanna á Íslandi og bæta þannig öryggi þeirra. Kerfið er verkefni á vegum Slysavarna- félagsins Landsbjargar en það felst í því að birta upplýsingar um færð og veður auk ýmiss konar ráðlegginga um góða ferðahegðun. „Við töldum það tímabært að færa upplýs- ingarnar til ferðamanna,“ segir Jónas Guð- mundsson, verkefnastjóri slysavarna ferða- manna hjá Landsbjörgu. Félagið hefur haldið úti vefsíðunni Safetravel undanfarin ár þar sem áþekkar upplýsingar er að finna. Ragnheiður Elín Árnadóttir, ráðherra ferða- mála, kveikti á fyrsta Safetravel-skjánum í gær hjá bensínstöð Olís í Norðlingaholti. Til stendur að Landsbjörg setji upp skjái á allt að þrjátíu eða fjörutíu helstu viðkomustöð- um ferðamanna víðsvegar um landið á næstu þremur árum. Upplýsingar á hverjum skjá fyrir sig verða staðbundnar og munu meðal annars sýna færð í nágrenninu í beinni útsendingu á vefmynda- vélum. „Það veitir ekki af þessu á Íslandi, þar sem aðstæður eru oft erfiðar,“ segir Jónas. „Við teljum þetta geta komið nokkur hundruð þús- und ferðamönnum að gagni á hverju ári.“ - bá Slysavarnafélagið Landsbjörg kynnir nýja upplýsingakerfið Safetravel sem bæta á öryggi ferðamanna: Sjónvarpsskjáir sýna veður og færð í beinni TEKINN Í NOTKUN Ragnheiður Elín Árnadóttir og Hörður Már Harðarson, forstjóri Landsbjargar, við fyrsta Safetravel-skjáinn í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.