Fréttablaðið - 08.04.2014, Síða 16

Fréttablaðið - 08.04.2014, Síða 16
8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, KJARTAN KJARTANSSON málari, Fannafold 62, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 2. apríl sl. Útför hans verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. apríl kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþökkuð en þeir sem vilja minnast Kjartans eru beðnir um að láta blóðlækningadeild (11G) Landspítalans eða Karitas hjúkrunarþjónustu njóta þess. Guðrún Guðmundsdóttir Elísabet Kjartansdóttir Elí Sigursteinn Þorsteinsson Halldór Sigurður Kjartansson Hildur Sveinbjörnsdóttir Inga Björg Kjartansdóttir Jósef Heimir Guðbjörnsson Kjartan Safír, Karítas Perla, Þorsteinn Emerald, Sveinbjörn Þorri, Kolbeinn Jökull, Sigrún Diljá og Guðrún Lovísa. Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GEIR ZOËGA Ægisíðu 66, Reykjavík, andaðist 31. mars á Landspítalanum. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni 9. apríl, kl. 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Sigríður E. Zoëga Þórdís Zoëga Kristján Óskarsson Ragnhildur Zoëga Ásgeir Ásgeirsson Geir Magnús Zoëga Þóra Björg Dagfinnsdóttir Jakobína Birna Zoëga Anton Örn Bjarnason og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT HELENA MAGNÚSDÓTTIR Sauðármýri 3, Sauðárkróki, lést fimmtudaginn 3. apríl á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 14.00. Ingibjörg Sigfúsdóttir Gísli Pétursson Magnús Sigfússon Lára Gréta Haraldsdóttir Sjöfn Sigfúsdóttir Sigfús Sigfússon Jóney Kristjánsdóttir Helena Sigfúsdóttir Hermann Óli Finnsson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, FRIÐRIK HARALDSSON bakarameistari, sem lést 21. mars, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 9. apríl nk. kl. 13.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð, en þeir sem vilja minnast Friðriks eru beðnir um að láta hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð í Kópavogi njóta þess. Friðrik naut þar einstakrar umhyggju og alúðar starfsfólks, allt fram í andlátið, og fyrir það erum við afar þakklát. Steina Margrét Finnsdóttir Haraldur Friðriksson Ásrún Davíðsdóttir Finnur Þór Friðriksson Jóhanna Björnsdóttir Dröfn Friðriksdóttir Arnþór Þórðarson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, DAGBJÖRT BORG ÞÓRÐARDÓTTIR lést á krabbameinsdeild 11E mánudaginn 31. mars. Útför hennar fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 9. apríl kl. 13. Kristjana Guðbjörg Ágústsdóttir Skúli Hafsteinn Gíslason Óðinn Sörli Ágústsson Ingunn Péturs barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, BIRNA ÖGMUNDSDÓTTIR frá Flatey á Breiðafirði, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ föstudaginn 4. apríl sl. Birgir Magnússon Þórunn Björg Birgisdóttir Konráð Ægisson Guðlaug Halla Birgisdóttir Kristinn Nikulásson Birgir Már Ragnarsson Silja Hrund Júlíusdóttir Birna Hlín Káradóttir Björn Freyr Ingólfsson Kári Snær Kárason og barnabarnabörn. Ragna Ingólfsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari og atvinnumaður í badminton, er að næra sig þegar ég hringi í hana. Þó ég hafi samvisku- bit yfir að spilla matfriðnum bið ég hana að segja mér í örfáum orðum frá erindi sínu: Breytt mataræði – sem leið til árangurs í íþróttum, sem hún heldur á málþingi Náttúrulækn- ingafélagsins í kvöld. Get heldur ekki stillt mig um að spyrja hvað hún sé að borða. „Ég er með grænmetissalat,“ upplýsir hún glaðlega. „Þegar ég byrjaði að æfa sem atvinnumaður borðaði ég yfir höfuð hollt, en ef maður er að æfa mikið verður maður að vera með nánast full- komið mataræði svo að líkaminn vinni rétt, maður haldi sér frá meiðslum og sé alltaf 100% tilbúinn á æfingar. Ég lenti því í því fyrst að fá álagsmeiðsli, fór í smá vítahring á nokkrum mánuð- um og leitaði þá til næringarfræðings.“ Hverjar voru helstu breytingarnar sem þú gerðir? „Ég fór að borða mest lífrænt, mikið af grænmeti og ávöxtum, engar unnar kjötvörur, ekkert hvítt hveiti, engan hvítan sykur. Borða trefjaríkt fæði, fisk og ekki mikið kjöt. Tók þetta mjög alvarlega í eitt ár, slakaði svo kannski aðeins á, fann jafnvægið og hvað hent- aði mér. En ég get sagt að upp frá þessu hafi ég borðað hollt og tel það hafa hjálpað mér mikið á ferlinum.“ Ragna vakti athygli fyrir framgöngu sína á Ólympíuleikunum í London. Litlu mátti muna að hún gæti ekki tekið þátt því ári fyrir leikana sleit hún kross- band og var ráðlagt að gangast undir skurðaðgerð og leggja Ólympíudraum- inn á hilluna. Því hafnaði hún og náði markmiðum sínum. „Ég fór ekki í aðgerð heldur ákvað að styrkja bara vöðvana og spila með spelku. Svo var margt sem hafði áhrif eins og andleg líðan og styrktaræfingar. Þá skiptir miklu máli að næra sig þannig að þér líði vel og þú getir æft rétt. Þannig að mataræðið skilar manni langt.“ Málþingið á Hótel Natura hefst klukkan 19.30. gun@frettabladid.is Þannig að mataræðið skilar manni langt Máttur matarins er þema málþings Náttúrulækningafélags Íslands á Hótel Natura í kvöld klukkan 19.30. Ragna Ingólfsdóttir badmintonkona er þar meðal frummælenda. Axel Sigurðsson hjartalæknir kallar erindi sitt Má varast hjarta- og æðasjúkdóma með mataræði? Sif Garðarsdóttir, heilsumarkþjálfi frá IIN, fjallar um Réttu leiðina. Tryggvi Þorgeirsson, læknir og lýðheilsufræðingur, fjallar um Mátt skynseminnar í matarvali Fundarstjóri máþingsins verður Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Aðrir frummælendur á málþingi NLFÍ BADMINTONSTJARNA „Ég lenti í því fyrst að fá álagsmeiðsl, fór í smá vítahring á nokkrum mánuðum og leitaði þá til næringarfræðings,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Gos hófst í Heklu aðfaranótt þessa mánaðardags árið 1981. Það kom vísindamönnum og öðrum í opna skjöldu en nokkrir jarð- fræðingar sem voru að störfum inni á hálendinu brugðust skjótt við og voru komnir að hraunjaðrinum strax í morgunsárið. Hraunið virtist eiga upptök sín nálægt tindi Heklu. Það var þykkt og rann í tveimur kvíslum niður hlíðarnar. Tungurnar voru þó mjóar þannig að magnið var ekki ýkja mikið og krafturinn í gömlu Heklu með minna móti. Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur, sem rannsakað hafði Heklugos manna lengst og best, taldi líklegt að gosið stæði stutt og hann reyndist sannspár því hálfum mánuði síðar var það yfirstaðið. ÞETTA GERÐIST: 8. MARS 1981 Eldgos hófst í Heklu ELDGOS Hekla 2000 vetur suðurland fjöll fjall Eldgos, Hekla, fjöll, Heklugos, jarðhrærin- gar, jarðvá, skjálftar, kvikuinnskot, hraun, kvika. ¬ Mynd úr einkasafni má nota. ¬ Hexa MERKISATBURÐIR 1571 Guðbrandur Þorláksson er vígður biskup á Hólum, 29 ára gamall. 1663 Konunglega leikhúsið í London er opnað. 1783 Krímkanatið er innlimað í rússneska keisaradæmið. 1898 Stórveisla er í Reykjavík í tilefni áttræðisafmælis Kristjáns konungs níunda. 1989 Fyrsta Bónus-verslunin er opnuð við Skútuvog í Reykjavík.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.