Fréttablaðið - 08.04.2014, Side 20
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 8. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Sími 512 5457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Sala á rafmagnsbílum er hvergi
hlutfallslega meiri í heimin-
um en í Noregi. Söluhæsta bíl-
gerðin þar í marsmánuði var
Tesla Model S, en hann seld-
ist í 1.493 eintökum bara í þess-
um eina mánuði. Er það næstum
því jafn mikil sala og á fólks-
bílum á Íslandi það sem af er
ári. Í næsta sæti í Noregi á eftir
Teslunni var Volkswagen Golf,
en af honum seldist þó minna
en helmingur af Tesla Model
S. Í þriðja sæti var annar raf-
magnsbíll, Nissan Leaf, og seld-
ust af honum 425 eintök. Alls
hafa selst 2.056 eintök af Tesla
Model S í Noregi í ár, talsvert
meira en af Golf og Leaf. Til að
setja þessar tölur í enn meira
samhengi þá seldust fleiri Tesla
Model S en af öllum gerðum
Ford-bíla. Góð sala rafmagns-
bíla í Noregi skýrist að miklu
leyti af þeim ívilnunum sem
rafmagnsbílaeigendur njóta þar,
vörugjalda- og skattleysi, fríum
bílastæðum, forgangi á akrein-
um fyrir strætisvagna, fríum
vegtollum og fleiri þáttum. Ekki
skal þó litið fram hjá því að
Tesla Model S er samt dýr bíll,
en efnahagur íbúa Noregs leyfir
slíkan munað.
Tesla Model S söluhærri en
allar gerðir Ford í Noregi
Bílasala hefur aukist hérlendis á þessu ári og
heildarsalan vaxið um 18,1% fram til loka ný-
liðins mars. Alls hafa selst 1.574 bílar. Aukning-
in í mars einum var 8,9%. Þessar tölur segja þó
ekki alla söguna því færri bílar hafa verið keypt-
ir hlutfallslega af bílaleigum en í fyrra og salan
til einstaklinga þess meiri. Ef dregnir eru frá
bílar sem bílaleigurnar hafa keypt kemur í ljós
að aukning í bílasölu í mars til einstaklinga er
34,1%, en í mars í ár keyptu þeir 397 bíla í sam-
anburði við 296 bíla í sama mánuði í fyrra.
Chevrolet seldist mest til einstaklinga
Það bílamerki sem seldist mest af til einstaklinga
í mars er Chevrolet með 38 bíla og 9,6% hlut-
deild, en Volkswagen kemur þar rétt á eftir með
37 bíla. Næstu merki þar á eftir eru Kia með 32
bíla, Toyota með 31, Nissan 27, Skoda 26, Peugeot
24, Renault 22, Ford 21 og í tíunda sætinu er svo
Mazda með tuttugu selda bíla.
BL söluhæst til loka mars
Ef sala hvers umboðs fyrir sig er skoðuð, bæði
á seldum fólks- og sendibílum, sést að BL er nú
söluhæst með 431 seldan bíl til loka mars. Það er
24,5% hlutdeild. Næst á eftir kemur Hekla með
324 selda bíla og 18,4% hlutdeild. Þriðja söluhæsta
umboðið er Toyota með 296 bíla og 16,8% hlut-
deild. Næst á eftir koma svo Brimborg með 218
bíla og 12,4%, Askja 191 og 10,9%, Bílabúð Benna
121 og 6,9%, Bernhard 106 og 6,0% og Suzuki með
41 seldan bíl og 2,3% hlutdeild.
SALA TIL EINSTAKLINGA Í
MARS JÓKST UM 34,1%
BL var söluhæsta bílaumboðið með 24,5% hlutdeild.
Hann er sannarlega kominn til
ára sinna hinn ágæti jeppi Volvo
XC90, en það þýðir ekki að fram-
leiðslu hans verði hætt endan-
lega. Hann mun líklega eiga
framhaldslíf í Kína og fram-
leiðslu hans verður haldið áfram
þar. Stutt er orðið í næstu kyn-
slóð Volvo XC90, sem kemur á
markað seinna á þessu ári og
hafa margir lengi beðið eftir
þeim bíl, en kynningu hans
hefur verið frestað mörgum
sinnum. Það yrði núverandi eig-
andi Volvo, bílaframleiðand-
inn Geely í Kína, sem myndi
sjá áfram um framleiðslu eldri
gerðar XC90, þrátt fyrir að nýja
gerðin verði einnig til sölu þar.
Sá eldri verður í boði sem ódýr-
ari valkostur en nýi bíllinn. Að-
eins einn vélarkostur yrði í
eldri XCX90-bílnum, 2,5 lítra
og fimm strokka vél með for-
þjöppu. Nú eru þegar liðin 12 ár
frá framleiðslu fyrstu og einu
kynslóðar Volvo XC90 bílsins og
eru fá dæmi um slíkt á seinni
árum, en árin halda áfram að
telja með framleiðslunni í Kína.
Lifir gamli Volvo XC90 áfram í
Kína þó ný kynslóð sé á leiðinni?
Sammy Wasem var aðeins 15 ára er
hann stofnaði Ferrari-áhugamanna-
síðu á Facebook sem varð meðal
vinsælustu síðna á samfélagsvefn-
um. Nú sex árum síðar hefur hann
farið í mál vegna yfirtöku Ferrari-
fyrirtækisins á síðunni. Wasem,
sem er áhugakeppnisökumaður,
fékk ótrúlegan fjölda heimsókna
á síðu sína en hagnaðist ekkert
á henni. Einn daginn tók Ferrari
sér það vald að yfirtaka síðu hans
á þeim forsendum að Wasem not-
aði síðu sína til að láta vita af 18
ára afmælisdegi sínum og að aug-
lýsa varning á síðunni sem ekki var
framleiddur af Ferrari, þó svo hann
hefði ekki haft af því neinar tekjur.
Ferrari vildi meina að síða hans
skaðaði merki þeirra.
Ferrari fór ekki sömu leið og
Coca-Cola gerði er það réði tvo
stofnendur vinsællar Facebook-síðu
sem greindi frá vörum þess og fóru
aðdáendur þeirrar síðu úr tveim-
ur milljónum aðdáenda í 80 millj-
ónir fyrir vikið og bæði stofnendur
hennar og Coca-Cola una nú glað-
ir við sitt. Þess í stað réði Ferrari
lögfræðinga til að gæta merkis
síns og stendur nú í harðri baráttu
gegn unga manninum og síðu hans.
Ungi maðurinn og faðir hans hafa
nú einnig ráðið lögfræðinga til að
gæta réttar síns og vilja meina að
ekkert fyrirtæki geti tekið sér það
vald að taka yfir áhugamannasíður,
þar sem ekkert brotlegt hefur verið
gert á síðunni frá upphafi. Fara þeir
fram á 11 milljón dollara bætur
frá Ferrari vegna yfirtöku síðunn-
ar, eða 1.240 milljóna króna. Verð-
ur mál þeirra tekið fyrir nú í apríl
og verður forvitnilegt að sjá hverj-
ar lyktir þess verða.
FERRARI KÆRT VEGNA
YFIRTÖKU Á FACEBOOK-SÍÐU
Fimmtán ára unglingur hélt úti geysivinsælli Ferrari-síðu.
Chevrolet seldist mest allra bílamerkja.
Tesla Model S rafmagnsbíllinn var söluhæstur og Nissan Leaf í þriðja sæti.
Volvo XC90.
Það eru ágætir tímar í þýskri
bílaframleiðslu nú um stundir.
Bæði hafa Audi og Mercedes
Benz tilkynnt að fyrir-
tækin hafi aldrei
áður selt fleiri bíla
í einum mánuði
en í mars ný-
liðnum. Sala
Audi var 15%
meiri en í
mars í fyrra
og seldi Audi
170.450 bíla.
Mercedes Benz
seldi 158.523
bíla í mars og á
því enn nokkuð í
land með að ná Audi
í sölu, en Mercedes Benz
stefnir að því ekki seinna en
við lok þessa áratugar. Vöxtur
í sölu Benz var einnig fimmtán
prósent. Audi seldi 412.850 bíla
á fyrsta ársfjórðungi og er það
líka met hjá Audi. Mjög
góð sala á Audi A3 á
vænan þátt í þessu
ágæta gengi Audi
og jókst sala
þess bíls um
53% milli ára í
mars. Af Audi
Q7 jeppanum
seldist einnig
39% meira og
af stóra A8-
fólksbílnum 49%
meira. Sala Audi
í Kína jókst um 37
prósent milli ára, en
aðeins um átta prósent í
Bandaríkjunum og sjö prósent í
Evrópu.
Aldrei selt fleiri bíla en í mars
Ferrari F430.