Fréttablaðið - 08.04.2014, Page 41
ÞRIÐJUDAGUR 8. apríl 2014 | LÍFIÐ | 25
Danski blaðamaðurinn Lars
Hedebo Olsen hjá Politiken
lofsamar HönnunarMars í
grein sem birtist á dögun-
um á vef miðilsins. Þetta er
annað árið í röð sem blaða-
maðurinn gerir viðburð-
inum skil í danska blaðinu.
Fyrirsögnin er „Íslensk hönn-
un er miklu meira en lopapeys-
ur“ en Olsen er yfir sig hrifinn
af HönnunarMars. Hann segir
efniviðinn, hlutina og hönnuð-
ina vera í brennidepli á Hönn-
unarMars, og það kann hann
vel að meta. Sérstaklega hrifn-
ingu vakti hönnunarfyrirtækið
Vík Prjónsdóttir en prjónaheil-
gallinn þeirra heillaði blaða-
manninn sem helst vildi smygla
honum með sér strax heim í
ferðatöskunni.
Greinin endar á þeim nótum
að hönnun frá Norðurlöndunum
sé á hraðri uppleið þessa dag-
ana og að „Íslendingunum sé
svo mikil alvara að það sé næst-
um til að vera hræddur við“.
Íslensk hönnun er miklu meira en lopapeysur
Blaðamaður danska Politiken fer fögrum orðum um HönnunarMars.
VAKTI
ATHYGLI
Danskur
blaðamaður
Politiken var
hrifinn af
HönnunarMars
og sérstaklega
af hönnun frá
Vík Prjóns-
dóttur.
Leikstjórinn Richard Donner
hefur í hyggju að gera framhald
að kvikmyndinni The Goonies
sem sló í gegn árið 1986. Hann
stefnir á að fá alla leikara úr
fyrri myndinni aftur í hlutverk
sín, en meðal leikara í The Goon-
ies voru Corey Feldman, Josh
Brolin, Sean Astin, Jeff Cohen og
Martha Plimpton.
„Þetta mun gerast. Ég er þús-
und prósent viss um að það verð-
ur framhald. Ég legg börnin mín
að veði,“ er haft eftir Richard á
vefsíðunni Variety. - lkg
Framhald
í bígerð
MARGIR GLEÐJAST The Goonies er ein
af klassísku kvikmyndunum frá níunda
áratugnum.
Format-þátturinn Got Talent
er kominn í Heimsmetabók
Guinness sem vinsælasti format-
þáttur allra tíma. Format-þátt-
ur þýðir í raun að Got Talent er
þáttur sem fylgir vissri uppskrift
sem hægt er að staðfæra í hvaða
landi sem er.
Þátturinn fór fyrst í loftið í
Bretlandi undir nafninu Britain‘s
Got talent. Síðan þá hafa 58 lönd
gert sína útgáfu af þáttunum,
meðal annars Ísland, en sjón-
varpsþátturinn Ísland Got Talent
hefur átt góðu gengi að fagna síð-
ustu vikur á Stöð 2.
Tónlistar- og raunveruleika-
sjónvarpsmógúllinn Simon
Cowell á heiðurinn að formati Got
Talent en þátturinn skákaði þætt-
inum Strictly Come Dancing sem
var hingað til talinn vinsælasti
format-þáttur heims af Heims-
metabók Guinnes. - lkg
Got Talent í
Heimsmeta-
bók Guinness
ÍSLAND GOT TALENT Ísland og Brasilía
eru nýjustu löndin til að framleiða Got
Talent. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
Tónlistarmaðurinn og verðandi
Íslandsvinurinn Justin Timber-
lake er búinn að bæta við þrettán
tónleikum í Norður-Ameríku
á tónleikaferðalagi sínu 20/20
Experience World Tour. Nýju
tónleikarnir eru í nóvember og
desember og fara til dæmis fram
í Portland og Atlanta.
Miðar fara í sölu þann 14. apríl
en meðlimum í aðdáendaklúbb
Justins, Tennessee Kids, gefst
kostur á að kaupa miða í forsölu
8. apríl.
Mikil spenna ríkir hér á landi
fyrir komu Justins en hann held-
ur tónleika í Kórnum þann 24.
ágúst. Allir miðar á tónleikana
seldust upp á svipstundu. - lkg
Bætir við fl eiri
tónleikum
VINSÆLL Justin er einn vinsælasti
tónlistarmaður heims. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
LÆKKUN HÚSNÆÐISLÁNA
OG VIÐBÓTARLÍFEYRISSPARNAÐUR
Fræðslufundur í Arion banka, Borgartúni 19,
miðvikudaginn 9. apríl kl. 17.15.
Á fundinum verður farið yfir fyrirhugaðar aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar til höfuðstólslækkunar húsnæðislána. Auk
þess verða kostir viðbótarlífeyrissparnaðar kynntir.
Aðgerðirnar skiptast í þrennt:
· Niðurfærslu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána
eða með sérstökum persónuafslætti.
· Skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar inn á
höfuðstól húsnæðislána.
· Skattfrjálsa greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar upp
í útborgun á íbúð.
Fyrirlesari er Snædís Ögn Flosadóttir, sérfræðingur á
eignastýringarsviði Arion banka.
Fundurinn stendur yfir í rúmlega klukkustund.
Léttar kaffiveitingar í boði.
Allir velkomnir – skráning á arionbanki.is