Fréttablaðið - 19.05.2014, Blaðsíða 14
19. maí 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Eiginkona mín og móðir okkar,
dóttir og tengdadóttir,
GUNNUR ELÍSA STEFÁNSDÓTTIR
til heimilis í Þverbrekku 2 í Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 10. maí. Útför hennar verður
gerð frá Kópavogskirkju miðvikudaginn
21. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á styrktarsjóðinn fyrir börnin.
Bankanúmer hans er 331-13-110606 og kt. 310380-4159.
Davíð Karl Sigursveinsson og börnin
Kristlaug Björg Sigurðardóttir og fjölskylda
Stefán Ingólfsson og fjölskylda
Símon Elí Teitsson og fjölskylda
Gísli Ólafur Pétursson
Ragna Freyja Karlsdóttir og fjölskylda.
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORKELL GUÐJÓNSSON
múrari,
áður til heimilis að Jóruseli 9,
lést föstudaginn 9. maí. Útförin fer fram
frá Fossvogskapellu mánudaginn 19. maí
kl. 13.00.
Bergsveinn Þorkelsson Sigríður Jónatansdóttir
Guðjón Þorkelsson Helga Sigurmundsdóttir
Ingibjörg Þorkelsdóttir Helgi Þórisson
Ása Þorkelsdóttir Jóhann Ásmundsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA MARGRÉT CORTES
Silfurteigi 6, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi,
mánudaginn 12. maí, verður jarðsungin
frá Laugarneskirkju miðvikudaginn 21. maí
kl. 13.00.
Björg Cortes Stefánsdóttir Halldór I. Elíasson
Steinunn Guðbjörg Stefánsdóttir
Stefán Valdimar Halldórsson
Anna Margrét Halldórsdóttir Haraldur Darri Þorvaldsson
Steinar Ingimar Halldórsson Xue Li
Halldór Alexander, Jökull Ari og Hugrún Eva Haraldsbörn.
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Elín Sigrún Jónsdóttir
framkvæmdastjóri
Ísleifur Jónsson
útfararstjóri
Frímann Andrésson
útfararþjónusta
Þorsteinn Elísson
útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
útfararþjónusta
Guðmundur Baldvinsson
útfararþjónusta
Hugrún Jónsdóttir
útfararþjónusta
Ellert Ingason
útfararþjónusta
önnumst við alla þætti þjónustunnar
Þegar andlát ber
að höndum
Með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
Við þjónum allan sólarhringinn
Reynsla – Umhyggja – Traust
„Hvatningin að þessari útgáfu var
sú að áður hefur verið efnt ítarlega
til sögu Dómkirkjunnar sem kom út
1996 og var rituð af séra Þóri Steph-
ensen. Ég gat því haldið áfram þar
sem frá var horfið,“
segir séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson sem skráð
hefur sögu Dómkirkj-
unnar, þriðja bindi sem
kemur út í byrjun júní.
Meðal umfjöllunarefnis
eru breytingin sem nýja
safnaðarheimilið skap-
aði, 200 ára afmæli kirkj-
unnar 1996 og gagngerar
endurbætur á kirkjunni
um aldamótin.
„Okkur gafst tækifæri
til að efla mjög allt safn-
aðarstarf um tíma en svo
kom kreppan sem breytti
því aftur. Þess vegna er myndin dálít-
ið horfin sem verið er að lýsa í bók-
inni,“ segir séra Jakob Ágúst. Veiga-
mikinn þátt í starfi Dómkirkjunnar á
þessum tíma segir hann líknarstörf
og félagslegar aðgerðir, svo sem gegn
atvinnuleysi og miðborgarvandanum
sem Dómkirkjan tók á með KFUM og
KFUK.
„Skerðing sóknargjalda
um 40 prósent, sem varð
í kjölfar kreppunnar, er
alveg óskaplega afdrifaríkt
högg fyrir söfnuði landsins
og þeir sem voru komnir í
skuldbindingar á þessum
tíma eiga í miklum erfið-
leikum. Ég tel að þetta sé
helsti vandi þjóðkirkjunn-
ar í dag og hans sér víða
stað, í minnkuðu æsku-
lýðsstarfi sérstaklega,“
segir séra Jakob Ágúst.
Dómkirkjan í Reykja-
vík III, Á aldahvörfum
er 154 blaðsíður í papp-
írskilju, prýdd myndum
og kemur út í áskrift. Eintökin verða
númeruð eftir því sem áskriftarbeiðn-
ir berast í tölvupósti til domkirkjan@
domkirkjan.is. Eintakið mun kosta
5.000 krónur. gun@frettabladid.is
Skerðing sóknargjalda afdrifarík
Nýtt bindi sögu Dómkirkjunnar mun koma út í byrjun júní. Það er eft ir séra Jakob Ágúst
Hjálmarsson og nefnist Dómkirkjan í Reykjavík III, Á aldahvörfum.
FYRRVERANDI DÓMKIRKJUPRESTUR
Bókin spannar minn starfstíma við kirkjuna
og tímann eftir að ég hætti 2007,“ segir séra
Jakob Ágúst. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Ég ætla að flytja stórbombur óperu-
bókmenntanna, meðal annars aríur
úr Don Carlos og Á valdi örlaganna
eftir Verdi,“ segir Elín Ósk Óskars-
dóttir sópransöngkona spurð hvað
hún ætli að bjóða tónleikagestum
upp á í Hörpu í hádeginu á morgun.
„Svo er ég með fræga aríu úr Manon
Lescaut eftir Puccini og fleiri aríur í
þessum dúr.“
Elín Ósk vakti mikla athygli og
var tilnefnd til Íslensku tónlistar-
verðlaunanna fyrir túlkun sína á
Lafði Macbeth í óperunni Macbeth
eftir Verdi hjá Íslensku óperunni en
hún segist ætla að gefa lafðinni frí
á morgun. „Hún er dálítið grimm
svona í hádeginu,“ segir hún og hlær.
„Allavega á fastandi maga.“
Spurð við hvað hún sé að fást þessa
mánuðina segir Elín Ósk að hún sé
í fullu starfi sem söngkona, enda
hafi hún valið sér það sem lífsstarf
og aldrei dottið í hug að draga þá
ákvörðun til baka. Hún viðurkenn-
ir þó að það geti verið barningur að
hafa í sig og á með söngnum en það
hafi þó gengið upp hingað til.
„Ég nýti hvert tækifæri sem ég fæ
í söng. Ég er fyrst og fremst óperu-
söngkona og tækifærin hér heima eru
ekkert einstaklega mörg, sérstaklega
ekki þegar maður hefur eins drama-
tíska rödd og ég. Hins vegar tek ég
þátt í fullt af tónleikum, eða skipu-
legg þá sjálf ef því er að skipta og auk
þess hef ég stjórnað Óperukórnum í
Hafnarfirði, sem ég stofnaði, í þrett-
án ár.“
Elín Ósk segist ekki hafa nein nið-
urnegld verkefni erlendis eins og er,
en það sé ýmislegt í deiglunni. „Þegar
eitthvað dettur inn, hvort sem er hér
heima eða erlendis, þá verður maður
bara að vera tilbúinn.“
Tónleikarnir á morgun eru í Norð-
urljósasal Hörpu, hefjast klukkan
12.15 og það er Antonía Hevesi sem
leikur undir á píanó.
fridrikab@frettabladid.is
Lafði Macbeth of
grimm á fastandi maga
Elín Ósk Óskarsdóttir syngur óperuaríur á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í Hörpu á
morgun. Yfi rskrift tónleikanna er Á valdi örlaganna enda ein arían úr þeirri óperu Verdis.
ELÍN ÓSK ÁSAMT ANTONIU HEVESI „Ég er
fyrst og fremst óperusöngkona og tækifærin
hér heima eru ekkert einstaklega mörg.“
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1536 Anne Boleyn, önnur eiginkona Hinriks
VIII. Englandskonungs, er tekin af lífi vegna
hórdóms.
1604 Í Kanada er borgin Montreal stofnuð,
þá sem Ville-Marie eða Borg Maríu en nafn-
inu er síðar breytt.
1875 Fyrsta sláttuvélin kemur til Íslands frá
Noregi.
1917 Eimskipafélag Íslands fær sitt þriðja
skip og er það Lagarfoss.
1933 Í Vestmannaeyjum ræðst æstur múgur
inn í fangelsið og leysir þar fanga úr haldi.
Síðar eru tíu manns dæmdir til fangelsisvist-
ar fyrir tiltækið.
1950 Þúsundir Reykvíkinga fagna Gullfossi,
nýju farþegaskipi Eimskipafélagsins.
1983 Geimskutlan Enterprise hefur við-
komu á Keflavíkurflugvelli, borin af Boeing
747-þotu.
1990 Í Laugardal í Reykjavík er opnaður nýr
fjölskyldu- og húsdýragarður með tuttugu
tegundir húsdýra, sjávardýra og villtra dýra.
Meira en tíu þúsund gestir koma í garðinn
fyrsta daginn.
MERKISATBURÐIR