Fréttablaðið - 19.05.2014, Blaðsíða 54
19. maí 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 26
Don’t You Worry Bout a Thing með
Stevie Wonder. Gott lag til að sigla
áhyggjulaus inn í vikuna.
Jón Stefán Sigurðsson leikari
MÁNUDAGSLAGIÐ
,,Við leggjum mikla áherslu á 90‘s stílíseringu og
grafík,‘‘ segir tónlistarkonan Rakel Mjöll Leifs-
dóttir en hún stofnaði stelpusveitina Dream Wife
sem lokaverkefni á öðru ári sínu í Listaháskólanum
í Brighton.
,,Síðan komum við fram á lokasýningunni og
fengum svo góð viðbrögð að við vorum allt í einu
bókaðar á nokkra tónleika í Bretlandi. Fólk hélt
greinilega að við værum alvöru hljómsveit,‘‘ segir
Rakel Mjöll og hlær en hún fékk í kjölfarið hæstu
einkunn í bekknum fyrir verkefnið. Stelpnasveitin
samanstendur af Rakel og tveimur breskum vinkon-
um hennar en þær spila draumkennt brimbretta-
popp með áhrifum frá gruggsenu tíunda áratugar-
ins. Sveitin hefur gefið út tónlistarmyndband við
öll lög sín en nýjasta myndband Dream Wife kom
út á dögunum við lagið Chemistry og fer ofurfyrir-
sætan Kolfinna Kristófersdóttir með aðalhlutverkið
í myndbandinu.
,,Lagið fjallar um kemistríu á milli fólks,‘‘ segir
Rakel. ,,Í myndbandinu er Kolfinna að upplifa þessa
strauma á milli allra sem hún hittir inni á bar í
Brighton,‘‘ segir söngkonan en stúlkurnar í Dream
Wife leika hin þrjú hlutverkin ásamt einum klæð-
skiptingi.
,,Það var gaman að hafa Kolfinnu í myndbandinu,
það er mjög gott að vinna með henni,‘‘ segir Rakel
Mjöll en myndbandið má nálgast á heimasíðu hljóm-
sveitarinnar, dreamwife.co.uk.
baldvin@frettabladid.is
Upplifi r strauma á milli fólks
Söngkonan Rakel Mjöll Leifsdóttir stundar nám í Brighton en hún stofnaði 90’s
stelpusveitina Dream Wife sem gaf nýlega út myndband við lagið Chemistry.
FLOTTAR STELPUR allir meðlimir dream wife stunda listnám
í brighton.
„Þetta gekk virkilega vel en við vissum í
raun ekkert hvað við vorum að fara út í upp-
hafi,“ segir Andri Snær Þorsteinsson, en hann
og bróðir hans, Bragi Fannar skipa dúettinn
Harmonikkubræður og luku þeir nýverið við
upptökur á plötu sem inniheldur lög hljóm-
sveitarinnar Nýdönsk. Um er að ræða plötu
þar sem lög Nýdanskrar hafa verið sett í
nýjan og hressan harmonikkubúning. „Það er
allavega eitt þekkt lag sem er komið í valstakt
og svo eru önnur í tangó,“ bætir Andri við
léttur í lundu.
„Ég er geysilega mikill harmonikkuunn-
andi og hefur alltaf dreymt um að heyra
lögin okkar flutt á harmonikku. Við kunnum
ekkert á nikkur þannig að við fengum aðra í
þetta,“ segir Björn Jörundur Friðbjörnsson,
bassaleikari og söngvari Nýdanskrar, sem er
spenntur fyrir nýju plötunni.
Platan ber heitið 12 íslensk Nýdönsklög en
samstarf bræðranna og Nýdanskrar má rekja
til tónleika þeirra síðarnefndu í Hörpu á síð-
asta ári. „Við hituðum upp fyrir þá í Hörpu
og eftir það vildu þeir endilega gefa út með
okkur disk,“ segir Andri Snær.
Ólafur Hólm Einarsson, trommuleikari
Nýdanskrar, sá um æfingar fyrir plötuna og
stjórnaði einnig upptökum ásamt Gunnari
Árnasyni. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er við
stjórnvölinn, það var mjög sérstakt að vera að
segja mönnum til og þar á meðal trommuleik-
ara. Það var pínu skrítið að koma mínum hug-
myndum til annars trommara. Það var gaman
að setja þetta í allt öðrvísi búning og þetta
skotgekk,“ segir Ólafur Hólm um ferlið.
Hugmyndin að plötunni varð til þegar
Nýdanskir voru staddir í Berlín fyrir skömmu
að hljóðrita plötu. „Þegar við eyðum svona
löngum tíma saman þá verða til alls kyns
skemmtilegar hugmyndir,“ bætir Björn
Jörundur við.
Gert er ráð fyrir að platan komi út um miðj-
an júní. „Plötunni verður líklega fagnað með
harmonikkudansleik, þar sem við verðum
hressir á dansgólfinu,“ segir Björn Jörundur.
gunnarleo@frettabladid.is
Harmonikkan
hertekur Nýdanska
Harmonikkubræðurnir Andri Snær og Bragi Fannar Þorsteinssynir hafa tekið
upp plötu með lögum Nýdanskrar og sett í hressan harmonikkubúning.
ANNAR BLÆR Lög hljómsveitarinnar Nýdanskrar eru komin í nýjan
búning. MYND/EINKASAFN
SÁTTIR SAMAN Harmonikkubræðurnir Bragi Fannar Þorsteins-
son og Andri Snær Þorsteinsson og Stefán Hjörleifsson, gítarleikari
Nýdanskrar, eiga gott samstarf. MYND/EINKASAFN
„Við höfum verið að spila á
grunnskólaböllum mjög stíft
undan farin ár en höfum þó tekið
eftir því að það er ekkert mikið
af viðburðum skipulagðir fyrir
þennan aldurshóp nema Samfés.
Þess vegna vildum við skipuleggja
almennilegan viðburð fyrir krakk-
ana,“ segir Bjarni Hallgrímur
Bjarnason en hann, ásamt Grími
Óla Geirssyni, skipuleggur stóra
tónleika fyrir unglinga í áttunda
til tíunda bekk sem haldnir verða
í Kaplakrika. Þeir skipa einnig
plötusnúðateymið og viðburða-
fyrirtækið Basic House Effect.
Þeir félagar segjast hafa fengið
góð viðbrögð við uppátæki sínu en
þeir hafa gengið með hugmyndina
í kollinum í um þrjú ár. „Ég bjóst
alveg við verri viðbrögðum frá til
dæmis félagsmiðstöðvum og opin-
berum aðilum en allt hefur gengið
vel,“ bætir Bjarni við.
Þá hafa þeir einnig birt bréf til
foreldra á vefsíðu sinni til þess að
foreldrar geti kynnt sér viðburð-
inn vel.
Þeir hafa einnig skipulagt
keppni fyrir unglingana til að
hvetja tónlistaráhugann. „Við
erum með dj-keppni, krakkar geta
skráð sig í hana og sent okkur mix
og svo verðum við með dómnefnd
skipaða þekktum plötusnúðum
sem velur sigurvegarann.“ Sigur-
vegarinn kemur svo fram á tón-
leikunum ásamt fjölda þekktra
listamanna, en Páll Óskar, Friðrik
Dór og Steinar eru á meðal þeirra
sem fram koma.
Allur ágóði tónleikanna, sem
haldnir verða 12. júní, verður gef-
inn til Barnaspítala Hringsins og
Rauða krossins. - glp
Stærsti viðburðurinn utan Samfés
Bjarni Hallgrímur og Grímur Óli telja skort vera á viðbuðrum fyrir unglinga og skipuleggja því stóra tónleika.
GÓÐGERÐARTÓNLEIKAR Bjarni
Hallgrímur og Grímur Óli skipuleggja
stærðarinnar góðgerðartónleika fyrir
unglinga. MYND/ GEIR ÓLAFSSON