Fréttablaðið - 19.05.2014, Blaðsíða 48
19. maí 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Berglind
Pétursdóttir
1. Salma Hayek klæðist kjól frá
Saint Laurent á frumsýningu
myndarinnar The Prophet.
2. Eva Longoria á frumsýningu
myndarinnar Saint Laurent
er í kjól frá Gabriela Cadena,
skóm frá Brian Atwood og með
Damiani-skartgripi.
3. Lea Seydoux á frumsýningu
Saint Laurent og klæðist kjól frá
Prada með skart frá Chopard.
4. Freida Pinto á frumsýningu
Saint Laurent er hér í kjól frá
Michael Kors og skreytir sig með
skartgripum frá De Grisogono.
5. Rosario Dawson á frumsýningu
myndarinnar The Captive. Hún
valdi kjól frá Dolce&Gabbana af
því tilefni.
7. Jennifer Lawrence á leið í gleð-
skap. Hún er í Dior-Couture kjól,
skóm frá Christian Louboutin og
með skart frá Irene Neuwirth.
8. Julianne Moore er hér í
seiðandi grænum kjól en
hönnuðarins er ekki getið.
Seiðandi stjörnur
Söngvarinn Ed Sheeran er kom-
inn með kærustu en kappinn rat-
aði á lista tímaritsins People yfir
kynþokkafyllstu karlmenn heims
í fyrra. Sheeran fór í viðtal hjá
útvarpsstöðinni Kiis FM á dögun-
um og greindi þar frá því að hann
væri genginn út en vildi lítið ræða
sambandið. Hann kveðst þó ekki
syngja fyrir kærustuna. „Ég syng
aldrei fyrir hana í einrúmi. Mér
finnst það óþægilegt og skrítið.“
Genginn út
SYNGUR EKKI FYRIR KÆRUSTUNA
Sheeran finnst óþægilegt að syngja fyrir
framan kærustuna. GETTY/NORDIC PHOTOS
HAFIÐ þið verið stödd í útlöndum þegar
varað er við óveðri og stormi sem reyn-
ist svo vera léttvæg gola og 3-4 snjókorn?
Þegar ég var skiptinemi í Bretlandi var oft
frí í marga daga í skólanum ef það snjó-
aði magni sem dugði varla í almennilegan
snjóbolta. Það hvarflaði því ekki að mér
að fresta áætlaðri för minni til Aspen frá
Denver á handahófskenndu ferðalagi um
Bandaríkin. Því miður.
ÞESSI þanki er skrifaður á iPhone í
hvítum KIA, farþegasætinu samt, ein-
hvers staðar hátt uppi í Klettafjöllum.
Kunningjar mínir á þessum slóðum
hvöttu mig til að leigja mér sérútbú-
inn bíl eða fresta ferðinni, það væri
von á stormi. Ég horfði blíðlega á
kunningjana og sagði þeim vin-
gjarnlega að vanmeta ekki þekk-
ingu mína á veðrinu, ég væri
alin upp í Smáíbúðahverfinu
og þar væri nú ekki veðrátta
til að gera grín að.
SKÖMMU eftir að ég lagði af
stað skall á blindbylur og ég
er nú búin að keyra fram hjá
bílslysum þar sem vöruflutn-
ingabílar breyttust í harmóníkur og fólks-
bílar standa upp á annan endann á miðjum
veginum. Jeppar sem klesst hafa harkalega
á tré standa þar yfirgefnir og á tímabili var
eina umferðin á móti mér ýlfrandi sjúkra-
bílar og dráttarvélar.
ÉG er búin að hugsa allar neikvæðar hugs-
anir sem fyrirfinnast um endalok þessa
ferðalags og hellan í eyrunum á mér er svo
þykk að ég veit ekki hvort ég muni heyra
fagran þytinn í vindinum þegar bíllinn loks-
ins hendist fram af snjóhengju.
ÉG ætla aldrei aftur að gera grín að túrist-
unum á Íslandi sem fara á Yaris og hlýrabol
á Vatnajökul og þurfa að láta bjarga sér. Það
stefnir allt í að ég verði slíkur ferðamaður.
Á TÍMABILI hugsaði ég þó; ef bíllinn
bilar get ég vippað mér yfir þessa girðingu
sem grillir í í gegnum þykkt hríðarkófið og
hlaupið yfir í næstu huggulegu hjólhýsa-
þyrpingu. Kannski er þar einhver velvilj-
aður sem getur reddað mér. Hætti strax við
þegar ég rak augun í skiltið á grindverkinu.
AÐKOMUMENN í leyfisleysi verða
skotnir, án viðvörunar.
Af veðurhroka Íslendings
Hátíska á Cannes-hátíðinni
Það má með sanni segja að stjörnurnar skarti sínu fegursta á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Cannes, sem
haldin er í 67. sinn þessa dagana. Fréttablaðið kynnti sér glæsilegan klæðaburð nokkurra stjarna á hátíðinni.
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
THE
BATTLE FOR
THE STREET
BEGINS.
SETH ROGEN ZAC EFRON ROSE BYRNE
CHICAGO TRIBUNE ROGEREBERT.COM
VONARSTRÆTI 5, 8, 10:10
BAD NEIGHBOURS 5:50, 8, 10:20
LÁSI LÖGGUBÍLL 6
THE OTHER WOMEN 8, 10:40
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
“IT COULD BE HIS BEST FILM SO FAR” -
THE GUARDIAN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Miðasala á:
VONARSTRÆTI
BAD NEIGHBOURS
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
HARRÝ OG HEIMIR
GRAND BUDAPEST HOTEL
KL. 5.20 - 8 - 9 - 10.40
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 6
KL. 6 - 8
KL. 10
VONARSTRÆTI
VONARSTRÆTI LÚXUS
BAD NEIGHBOURS
THE OTHER WOMAN
THE AMAZING SPIDERMAN 2 3D
RIO 2 2D ÍSL. TAL
HARRÝ OG HEIMIR
KL. 3.30 - 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.50 - 8 - 10.35
KL. 8 - 10.25
KL. 5 - 10.10
KL. 3.30
KL. 6
-T.V., BÍÓVEFURINN.IS -V.G. DV
- HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, MBL
„ÞESSI NÝJA ÍSLENSKA
KVIKMYNDAVON VÍSAR
BJARTAN VEG TIL FRAMTÍÐAR!“
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
1 2 3
5
4
6 7