Fréttablaðið - 19.05.2014, Blaðsíða 15
Desloratadine ratiopharm er ofnæmislyf sem veldur ekki syfju. Það hjálpar við að hafa hemil á ofnæmisviðbrögðum og einkennum þeirra
með því að hindra verkun ofnæmisvakans histamíns.
Desloratadine ratiopharm er fljótt að virka og verkun
þess varir allan sólarhringinn, svo eingöngu er þörf á
að taka það einu sinni á dag.
Lyf sem innihalda virka efnið deslóratadín, eins og
Desloratadine ratiopharm, hafa eingöngu verið fáanleg
gegn lyfseðli hingað til. Mismunandi er á milli einstak-
linga hvaða ofnæmislyf hentar hverjum og því geta
einstaklingar þurft að prófa sig áfram með hvað hentar
þeim. Desloratadine ratiopharm er nú nýr valkostur í
lausasölu fyrir fólk sem hingað til hefur þurft að
fá lyfið ávísað af lækni.
Eins og nafnið gefur til kynna er virka
efnið deslóratadín talsvert skylt efninu
lóratadíni (innihaldsefni í meðal annars
Loratadin LYFIS), en lóratadín er óvirkt
efni sem umbreytist í líkamanum í virka
efnið deslóratadín. Með deslóratadíni
er búið að taka út umbreytingarskrefið
úr óvirku efni í virka efnið. Desloratadine
ratiopharm-munndreifitöflur leysast hratt
upp í munni eða maga.
Desloratadine ratiopharm er fáanlegt án lyfseðils
í 10 stk. og 30 stk. pakkningum og er ætlað fullorðnum
og unglingum eldri en 12 ára. Mikilvægt er að lesa fylgi-
seðil lyfsins fyrir notkun og kynna sér helstu varúðar-
reglur. Stutta samantekt um lyfið má sjá hér á eftir.
NÝTT OFNÆMISLYF
Í LAUSASÖLU
LYFIS KYNNIR LYFIS heldur áfram að auka úrval lausasölulyfja á Íslandi. Nýj-
asta lyfið í lausasölu er ofnæmislyfið Desloratadine ratiopharm og er það
eina ofnæmislyfið sinnar tegundar á Íslandi sem selt er án lyfseðils.
VALD ÖRLAGANNA
Elín Ósk Óskarsdóttir sópransöngkona kemur fram
á hádegistónleikum Íslensku óperunnar á morgun
kl. 12.15 ásamt píanóleikaranum Antoníu Hevesi.
Yfirskrift tónleikanna er Vald örlaganna. Flutt-
ar verða aríur eftir Verdi, Catalani og Puccini.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.
Desloratadine ratiopharm er
ætlað til að draga úr einkennum
ofnæmiskvefs og einkennum
ofsakláða
OFNÆMISKVEF, EINKENNI
■ hnerri
■ nefrennsli og kláði í nefi
■ kláði í efri gómi
■ kláði í augum
■ rauð eða tárvot augu
OFSAKLÁÐI, EINKENNI
■ kláði
■ ofsakláði
Léttir þessara einkenna varir
allan sólarhringinn.
DREGUR ÚR EINKENNUM
MEÐ TUTTI FRUTTI-BRAGÐI Desloratadine ratiopharm eru
litlar munndreifitöflur sem leysast hratt upp í munni eða maga
og má taka inn án þess að drekka vökva með, þó það henti
engu að síður líka. Munndreifitöflurnar eru með tutti frutti-
bragði og innihalda ekki laktósa.
OFNÆMISKVEF
OFSAKLÁÐI
24 KLST. VERKUN
SÉRFRÆÐINGAR Í RAFGEYMUM
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja