Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 1

Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 1
FRÉTTIR GÖMLU MEISTARARNIRTvær spennandi sýningar verða opnaðar á Kjarvalsstöð- um á laugardag. Annars vegar Reykjavík, bær, bygging, þar sem sjá má hvernig borgin kom íslenskum listmálurum fyrir sjónir frá 1891-1993. Falleg verk meistaranna verða til sýnis. Hin sýningin nefnist Hliðstæður og sýnir verk ólíkra listamanna á 73 ára tímabili. EITUREFNALAUS VÖRN FYRIR FJÖLSKYLDUNA GENGUR VEL KYNNIR sólarvörn sem hægt er að bera á sig og börnin sín með góðri samvisku. Derma Sun-sólarvörnin hefur verið mest selda sólarvörnin í Danmörku undanfarin ár og sló rækilega í gegn hér á landi síðasta sumar.H úðin er stærsta líffærið okkar og því er grundvallaratriði að vita hvað við erum að bera á okkur. Vörurnar eru prófaðar og vott-aðar af astma- og ofnæmissamtökunum í Danmö kásamt því að vera umh ÖRUGG VÖRNDerma-sólarvörn hentar allri fjölskyldunni. ÚTSKRIFTARGJAFIR Laugaveg i 178 - S ím i : 568 9955 www.tk.is - mikið af frábærum boðumtil %10 afsláttur IÐNMEISTARARFIMMTUDAGUR 29. MAÍ 2014 Kynningarblað Málarameistarafélagið, Meistaraskólinn, H. Árnason og Meistaradeild Samtaka iðnaðarins. Það er mikilvægt fyrir húseig-endur að huga að reglulegu viðhaldi fasteigna sinna til þess að rýra ekki verðgildi þeirra og koma í veg fyrir varanlegar skemmd- ir. Bjarni Þór Gústafsson, málara- meistari og formaður Málarameist- arafélagsins, segir mikilvægt að fá málarameistara til liðs við sig þegar þarf að mála. „Fólk þarf að kynna sér hvort sá sem fenginn er í verkið sé með öll réttindi og tryggingar sem á þarf að halda. Ef eitthvað gerist þá er verkkaupi ábyrgur ef viðkomandi málari er ekki tryggður. Með því að fá fagmann í verkið er verið að tryggja sér gæði, málarameistarinn getur leiðbeint við val á efni og litasam- setningu og hefur fagkunnáttu til að mæta öllum séróskum. Það er þó ekkert endilega ódýrara að nota ófag- lærða menn en þetta snýst ekki bara um verð. Málarameistarar eru með menntun í sínu fagi og vinna fag- tilskilin réttindi en á heimasíðu Mál- arameistarafélagsins er félagatal þar sem allir okkar félagsmenn eru skráðir.“ Erfitt að sækja réttinn Bjarni Þór segir gott að hafa ákveðin atriði í huga áður en hafist er handa við að fá einhvern til að mála fyrir sig. „Eins og áður segir ætti alltaf að ganga úr skugga um að sá aðili sem skipt er við hafi tilskilin réttindi. Á hverju ári leitar fjöldi fólks til Mál- arameistarafélagsins sem orðið hefur fyrir fjárhags- og eignatjóni vegna óvandaðra vinnubragða í viðhaldi fasteigna. Samkvæmt Iðnaðarlög- um skulu löggiltar iðngreinar ávallt reknar undir forstöðu meistara en alltaf er þó nokkuð um að réttinda- lausir verktakar bjóði þjónustu sína. Erfitt getur reynst fyrir viðskiptavin- inn að sækja rétt sinn ef vandkvæði koma upp ið kið þ Mikilvægt að hafa fagmenn í vinnuFólk ætti hiklaust að hafa samband við Málarameistarafélagið þegar það ákveður að ráða til sín málara, sama hvort verkið er lítið eða stórt. Mikilvægt er að kynna sér hvort viðkomandi hafi þau réttindi sem til þarf því erfitt getur reynst að sækja rétt sinn ef réttindalausir „verktakar“ vinna verkið og eitthvað fer miður. Gott er að fá tilboð áður en verk er hafið og gera svo verksamning. MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Fimmtudagur 16 2 SÉRBLÖÐ Iðnmeistarar| Fólk Sími: 512 5000 29. maí 2014 125. tölublað 14. árgangur Börnin borga heim Hópur barna er látinn nota þá peninga sem hann vinnur sér inn til að kaupa mat fyrir fjölskyldur sínar. 8 Rannsókn dregist Maður sem beðið hefur í fjögur ár eftir að rannsókn á fjársvikamáli þar sem hann er einn grunaðra segist óvinnufær vegna biðarinnar. 4 Krónan undankomuleið Íslend- ingar festast í vítahring verðbólgu og gengisfellinga haldi þeir í krónuna, segir hollenskur hagfræðingur. 10 Alger óvissa Íbúar lítilla sjávar- byggða sem treysta á sjávarútveg lifa í algerri óvissu frá degi til dags. 12 MENNING Listamenn úr ýmsum áttum eiga verk á sýningunni Píanó. 28 SPORT Sjeikinn kíkir stund- um á leikina hjá Róberti og félögum hans í PSG. 34 Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka ERLENT TÖKULIÐ Í FALLHLÍFARSTÖKKI Tökulið þáttanna 1 Way Ticket sem sýndir eru á sjónvarpsstöðinni Travel Channel fengu sérstakt leyfi til að fara í fallhlífarstökk yfir Klambratúni í gær. Vakti það talsverða athygli vegfarenda en tökuliðið hefur dvalið hér í nokkra daga á vegum íslenska framleiðslufyrirtækisins Sagafilm. Í þáttunum 1 Way Ticket er pörum komið á óvart með ókeypis ferð til framandi staða. Þegar á staðinn er komið fylgja pörin vísbendingum sem leiða þau í æsispennandi ævintýri. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL SKOÐUN Tollfrjálsan inn- flutning á nautakjöti, skrifar Jóhannes Gunnarsson. 18 LÍFIÐ Danshópurinn Fanclub sýnir söngleik um dauðann. 42 Bolungarvík 11° SSA 8 Akureyri 13° SSV 2 Egilsstaðir 14° SV 2 Kirkjubæjarkl. 11° SSA 2 Reykjavík 12° SSA 6 Bjart eða bjart með köflum víða um land en dálítil væta vestan til. Fremur hæg suðlæg átt og hiti 7 til 17 stig. 4 KÖNNUN Stuðningur við Framsókn- arflokkinn hefur aukist verulega, og virðist flokkurinn öruggur með að ná einum manni í borgarstjórn, samkvæmt niðurstöðum skoðana- könnunar Fréttablaðsins og Stöðv- ar 2 sem gerð var í gær og fyrradag. Framsóknarflokkurinn fengi samkvæmt könnuninni 9,2 prósent atkvæða og einn borgarfulltrúa. Í síðustu könnun Fréttablaðsins, sem gerð var í lok apríl, var flokkurinn með 5,2 prósent atkvæða. Fylgið mældist 5,3 prósent í könnun MMR sem gerð var dagana 20. til 23. maí. Flokkurinn hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga, eftir að Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir, oddviti framboðs Framsóknar og flugvallarvina, lýsti því yfir í sam- tali við fréttavefinn Vísi á föstudag, 23. maí, að hún vildi afturkalla lóð sem trúfélag múslíma fékk úthlutað í Sogamýri. Samfylkingin verður þrátt fyrir þetta stökk Framsóknar sigurveg- ari kosninganna, verði niðurstöður í takt við skoðanakönnun Fréttablaðs- ins og Stöðvar 2. Flokkurinn fær samkvæmt könnuninni 35,5 prósent atkvæða og sex borgarfulltrúa. Björt framtíð, arftaki Besta Framsókn með 9,2% og einn mann inni Allt stefnir í að Samfylkingin verði sigurvegari borgarstjórnarkosninganna. Flokkur- inn fær rúman þriðjung atkvæða og sex borgarfulltrúa samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Sjálfstæðisflokkurinn fær aðeins þrjá borgarfulltrúa. MENNTAMÁL Leikskólabörn í dag fá minna pláss í fermetrum talið en fyrir rúmum tveimur ára- tugum, samkvæmt rannsókn Kristínar Dýrfjörð, dósents við Háskólann á Akureyri. „Það er einfaldlega búið að troða fleiri börnum í húsnæðið og þar af leiðandi fær hvert barn minna rými,“ segir Kristín. Vandi sem skapast vegna þessa er til að mynda aukið álag, slæm loftskipti og sjúkdómasmit. - ebg / sjá síðu 2 Leikskólabörn fá lítið pláss: Eykur líkur á sjúkdómasmiti flokksins, tapar nærri helmingi þess fylgis sem Besti flokkurinn fékk í síðustu kosningum. Flokk- urinn mælist nú með stuðning 18,6 prósenta borgarbúa, og fengi sam- kvæmt því þrjá borgarfulltrúa. Sjálfstæðisflokkurinn nær aðeins þremur mönnum í borgarstjórn með 22,2 prósenta fylgi. Vinstri græn fá aðeins 5,8 prósent og rétt ná inn einum borgarfulltrúa. Píratar ná einnig inn einum manni með 7 pró- senta fylgi. Meirihluti Samfylkingarinnar og Bjartrar framtíðar, áður Besta flokksins, stendur því sterkur eftir kosningarnar þó valdahlutföllin hafi snúist á haus. - bj / sjá síðu 6 ➜ Fjöldi borgarfulltrúa samkvæmt könnun Kosningar 29.5.2010 Könnun 12.3.2014 Könnun 29.4.2014 Könnun 27. og 28.5.2014 1 5 3 4 5 3 6 4 4 1 1 1 1 1 1 1 3 6 4 5 Heimild: Könnun Fréttablaðsins 27. og 28. maí 2014.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.