Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 4
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
DNP var markaðssett sem megrunarlyf upp úr 1930 en var fljótlega tekið
af markaði vegna alvarlegra aukaverkana. Undanfarinn áratug hefur á ný
borið á notkun þess.
Menn
eiga rétt á
greiðri máls-
meðferð bæði
á rannsóknar-
stigi og dóm-
stigi og ef brotið er á þeim
rétti sakborninga þá leiðir
það iðulega til þess að það
hefur áhrif á refsiákvörð-
unina.
Ragnar Aðalsteinsson
hæstaréttarlögmaður
LÖGREGLUMÁL Rannsókn á
umfangsmiklu skattsvikamáli, þar
sem starfsmaður ríkisskattstjóra
er grunaður um að hafa svikið út
270 milljónir úr virðisaukaskatts-
kerfinu, hefur dregist í nærri fjög-
ur ár.
Málið kom upp í september
2010 þegar sex voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald. Starfsmaður ríkis-
skattstjóra, einn grunaðra, var
vistaður í einangrun á grundvelli
rannsóknarhagsmuna í fimm vikur
en samtals sat hann í gæsluvarð-
haldi í tólf vikur. Eignir hans og
eiginkonu hans voru frystar þegar
málið kom upp og hafa verið síðan.
Manninum var tjáð í september
í fyrra að rannsókn málsins væri
að klárast. Sömu svör fékk hann
í apríl á þessu ári en þegar mað-
urinn grennslaðist aftur fyrir um
málið síðastliðinn þriðjudag fékk
hann þau svör að málið væri enn
í höndum lögreglu og ekki komið
til málsmeðferðar hjá ríkissak-
sóknara. „Staða mín er bara á bið,“
segir maðurinn. „Það eru allir í
fjölskyldunni í rusli eftir þetta en
við getum ekki annað en beðið.“
Manninum var sagt upp störfum
í kjölfar þess að málið komst upp
og segist hann hafa verið óvinnu-
fær síðan. „Ég er bara andlegur
öryrki,“ segir hann.
Verjandi mannsins, Björgvin
Þorsteinsson, segir að dráttur
málsins sé með ólíkindum. „Það
eru sjálfsagt komin þrjú ár síðan
þetta mál lá ljóst fyrir og hægt var
að gefa út ákæru.“
Ragnar Aðalsteinsson hæsta-
réttarlögmaður segir að drátt-
urinn geti haft áhrif á ákvörðun
dómstóla þegar málið kemst loks
þangað.
„Menn eiga rétt á greiðri máls-
meðferð bæði á rannsóknarstigi og
dómstigi og ef brotið er á þeim rétti
sakborninga þá leiðir það iðulega
til þess að það hefur áhrif á refsi-
ákvörðunina. Það getur haft áhrif á
fjárhæð sektar og lengd fangelsis-
vistar eða miklu frekar að dómstól-
ar hafa verið að skilorðsbinda fang-
elsisrefsingar,“ segir Ragnar.
Hann bendir á að ríkið geti orðið
skaðabótaskylt verði maðurinn
sýknaður. Þá geti löng bið eftir
niðurstöðu máls haft slæm áhrif á
andlega heilsu sakborninga. Fólk
verði þunglynt og aðgerðalaust.
Ragnar bendir á að þegar dómur
fellur taki við lengri bið eftir því
að komast að í fangelsi. Í lok árs
2012 höfðu 102 einstaklingar beðið
lengur en í þrjú ár eftir því að sitja
af sér sinn dóm. snaeros@frettabladid.is
Dráttur á rannsókn
getur létt refsinguna
Maður sem beðið hefur í fjögur ár eftir að rannsókn á fjársvikamáli sem hann
tengist ljúki segist óvinnufær vegna biðarinnar. Enn er beðið og málið ekki komið
til saksóknara. Eigur mannsins og konu hans hafa verið frystar frá árinu 2010.
STARFSMAÐUR RÍKISSKATTSTJÓRA Maðurinn er grunaður um að hafa nýtt sér
aðstöðu sína til að endurgreiða virðisaukaskatt af húsum sem aldrei voru byggð.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
NEYTENDUR Þrír Svíar hafa lát-
ist af völdum megrunarefnis-
ins DNP sem er til sölu á netinu.
Í handtösku eins hinna látnu, 44
ára konu, fannst ómerkt dolla með
stórum, gulgrænum hylkjum sem
innihéldu efnið DNP. Konan hafði
pantað hylkin á netinu og notað sem
megrunarlyf, að því er greint er frá
í sænska læknablaðinu.
Matvælastofnun varaði í fyrra
við notkun fæðubótarefna eða
megrunarvara sem innihalda efnið
2,4-dínítrófenól eða DNP. Katrín
Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá
Matvælastofnun, segir efnið hafa
þau áhrif á efnaskipti líkamans
að í stað þess að orku sé breytt og
hún geymd í frumum eða notuð af
frumum líkamans þá breytist hún
í varma. Líkamshitinn geti hækk-
að það mikið að það verði banvænt.
Ekki eru til nein mótefni við eitrun
af völdum dínítrófenóls.
Samkvæmt reglum um fæðubót-
arefni er innflytjendum skylt að
tilkynna til Matvælastofnunar um
ný fæðubótarefni. Ekki hefur verið
tilkynnt um vörur sem innihalda
dínítrófenól, að sögn Katrínar. „Við
myndum stoppa það. Við höfum
heldur ekki heyrt af því að einstak-
lingar séu að reyna að kaupa þetta
en það segir ekki alla söguna. Það
er ekki útilokað að íslenskir neyt-
endur hafi keypt vöru sem inni-
heldur efnið.“
Katrín segir dæmi um að seldar
séu vörur með efninu án þess að
efnisins sé getið á umbúðum. Dæmi
um slíkt er varan „Pure Caffeine
200“ sem reyndist innihalda DNP
þó þess væri ekki getið á umbúð-
um. Það er talið afar hættulegt þar
sem þá veit neytandinn ekki að
hann er að neyta efnisins. - ibs
Matvælastofnun á Íslandi og sænskir læknar vara við megrunar- og fæðubótarefni sem selt er á netinu:
Þrír Svíar létust af völdum megrunarefnis
BYLTINGARKENNDUR Nýr bíll Google
gæti haft byltingarkennd áhrif á sam-
göngur og umferð. NORDICPHOTOS/AFP
TÆKNI Google hefur svipt hul-
unni af nýrri bifreið sem keyrir
af sjálfu sér. Ekkert stýri er í
bílnum né heldur bensíngjöf eða
hemlar, enda engin þörf á slíku,
segir í tilkynningu fyrirtækisins.
Bíllinn hefur aðeins einn hnapp
sem segir honum hvort hann eigi
að keyra eða stansa. Bíllinn hefur
farþegarými fyrir tvær mann-
eskjur og nær hámarkshraðanum
40 kílómetrum á klukkustund.
Skynjarar nema bifreiðir og
aðskotahluti í 200 metra radíus
kringum bílinn, sem nýtist vel
við stór gatnamót á háannatíma.
- kóh
Ekkert stýri eða bensíngjöf:
Sjálfvirk bifreið
frá Google
BANDARÍKIN Ljóðskáldið, rit-
höfundurinn og aðgerðasinninn
Maya Angelou lést í gær, 86 ára
gömul. Angelou er best þekkt
fyrir ævisögu sína, I Know Why
The Caged Bird Sings.
Í ævisögu sinni skrifar hún um
misnotkun og kúgun í suðurríkj-
um Bandaríkjanna á fjórða ára-
tugnum. Angelou var söngkona,
leikkona og dansari áður en hún
varð rithöfundur. - kóh
Lýst sem þjóðargersemi:
Skáldkonan
Angelou látin
BLÓMVÖNDUR Angelou átti litríkan og
fjölbreyttan feril. Hún snerti við mörg-
um með skrifum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
17 þúsund ferðamenn komu með Norrænu
til Seyðisfjarðar á síðasta ári.
Það var 2,1% af öllum ferðamönnum
sem komu til landsins.
TAÍLAND Taílenski herinn segist
hafa látið 124 stjórnmálamenn og
aðgerðasinna lausa úr varðhaldi í
gær. Talsmaður hersins sagði 253
manns hafa verið boðaða í varð-
hald en 53 hafi ekki svarað skip-
unum um að gefa sig fram. Eftir
sitji því 76 í varðhaldi.
Fólkið var látið laust með þeim
skilyrðum að það léti herinn vita
um ferðir sínar og tæki ekki
þátt í nokkurri stjórnmálalegri
athafnasemi. Fyrrverandi for-
sætisráðherra landsins, Yingluck
Shinawatra, er laus úr varðhaldi
en þó gegn einhverjum skilyrðum.
Herinn tók völdin í Taílandi fyrir
viku, þann 22. maí, og sagðist þá
vilja koma á friði og reglu í land-
inu þar sem óeirðir hafa geisað
mánuðum saman. - kóh
Stjórnmálamenn látnir lausir:
Alls 124 lausir
úr haldi í gær
SAKAMÁL Vodafone hyggst ekki
vísa ákvörðun Persónuverndar í
lekamálinu til dómstóla, en fyrir-
tækið áréttar að um gagnastuld
hafi verið að ræða.
Vodafone sendi frá sér yfirlýs-
ingu þar sem greint er frá þessu.
Í yfirlýsingunni segir meðal
annars að með því að vista sam-
skiptasögu notenda á læstu heima-
svæði hafi fyrirtækið aðeins
ætlað að þjónusta notendur.
Því snúist málið um gagnastuld
fremur en brot á lögum um per-
sónuupplýsingar. Því ætli Voda-
fone ekki að vísa málinu til dóm-
stóla. - rkr
Segja málið um gagnastuld:
Vodafone ekki
fyrir dómstóla
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
THE MORE YOU USE IT
THE BETTER IT LOOKS
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
BEST NORÐAUSTANLANDS. Næstu daga verður veðrið best á norðausturhorninu,
mesta sólin, hæstur hitinn og minnsta rigningin þar um helgina þegar rigningin ræður
ríkjum sunnan og vestan til.
11°
8
m/s
11°
10
m/s
12°
6
m/s
10°
6
m/s
Vaxandi
vindur og
úrkoma
SV-lands
undir
kvöld.
Minnkandi
vindur
vestan til
annars
fremur
hægur
vindur.
Gildistími korta er um hádegi
18°
30°
21°
20°
20°
13°
20°
17°
17°
23°
18°
22°
23°
29°
24°
14°
17°
19°
11°
2
m/s
11°
2
m/s
14°
2
m/s
11°
3
m/s
13°
2
m/s
12°
5
m/s
7°
5
m/s
12°
10°
11°
8°
11°
9°
19°
10°
15°
11°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
➜ Markaðssett sem megrunarlyf