Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 54
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 Tvær tónlistarhátíðir sem fram fara á Íslandi í sumar eru á lista yfir topp tíu tónlistarhátíðir í Evrópu í sumar, þetta kemur fram á hinni virtu tónlistarheimasíðu Consequence of Sound. Um er að ræða tónlistarhátíð irnar ATP-hátíðina sem fram fer á Ásbrú í Kefl avík dagana 10. til 12. júlí og Secret Solstice-hátíðina sem fram fer 20. til 22. júní í Laugar dalnum í Reykjavík. ATP er í sjöunda sæti listans og Secret Solstice er í tíunda sæti listans. „Það er mjög gaman að vera kominn á lista með svona stórum hátíðum. Þetta er mjög skemmtileg viðurkenning,“ segir Tómas Young, skipuleggjandi ATP-tónlistar- hátíðarinnar, en á sama lista má fi nna hátíðir á borð við Hróars kelduhátíðina í Danmörku sem er í þriðja sæti, Glastonbury á Bretlandi í öðru sæti og Prima vera Sound í Barcelona sem er í fyrsta sæti listans. Tómas segist þekkja til þessarar virtu síðu. „Þetta er nokkurs konar tónlistarblogg þar sem tónlist og tónlistarviðburðir fá umfjöllun,“ bætir Tómas við. Mikil aðsókn er að ATP-hátíðinni en að sögn Tómasar eru um 1.300 erlendir gestir væntan- legir á hátíðina. Helstu hljómsveitir á ATP eru Portishead, Interpol og Mogwai svo nokkrar séu nefndar. Á Secret Solstice koma fram hljómsveitir á borð við Massive Attack, Schoolboy Q og Disclos- ure svo nokkrar séu nefndar. Þá kemur fram fjöldi íslenskra hljómsveita á báðum hátíðunum. - glp ATP og Secret Solstice með þeim bestu í Evrópu Á lista yfi r topp 10 tónlistarhátíðir í Evrópu í sumar sem birtist á tónlistarheimasíðu Consequence of Sound. Á LEIÐINNI Hljómsveitin Portishead kemur fram á ATP-hátíðinni í sumar. MYND/EINKASAFN „Það er búið að velja sex stráka sem að koma til með að verja sumrinu í þjálfunarbúðum fyrir hlutverkið. Það verða svo tveir þeirra sem skipta hlutverkinu á milli sín. Það þurfa að vera tveir til þrír Billy-ar, sem skiptast á. Þetta er mikil keyrsla, það er bara svoleiðis með svona fyrir- ferðarmiklar sýningar,“ segir Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri uppfærslu Borgarleikhússins á söngleiknum um dansandi strák- inn Billy Elliott. Á fjórða þúsund manns mættu á skráningardaginn í leikhúsið, en fyrstu prufurnar fóru fram á þremur dögum. Berg- ur og danshönnuðurinn Lee Proud völdu úr í næsta hóp, en það voru um 80 krakkar sem voru boðaðir í næstu prufu. Síðan voru tíu valdir úr þeim hópi, og svo þeir sex sem eftir standa. ,,Mér finnst þó allir krakkarnir sem mættu í prufurn- ar vissulega vera sigurvegarar og deili ekki áhyggjum með þeim sem efast um framtíð Íslands. Strákarnir sex verða í svokall- aðri Billy-akademíu í sumar. Við erum að fá tvo erlenda kennara í búðirnar til þess að þjálfa strák- ana. Annar þeirra heitir Elizabeth Greasley, kölluð Dilly, en hún hefur prufað og þjálfað Billy-a á West End í London og fylgt þeirri sýn- ingu eftir og ferðast um allan heim í þeim tilgangi,“ útskýrir Bergur, sem segist spenntur fyrir fram- haldinu. „Strákarnir eru eins og ómótað- ur leir. Þeir koma sjálfir úr dans- senunni, en þurfa á alhliða þjálfun að halda, þannig að Dilly ætlar að kenna Billy allan ballett og fara með þeim í gegnum allan grunn. Þeir verða í fullum skóla í leiklist, söng og miklum dansi og teygjum í sumar,“ en drengirnir eru á bilinu 11–14 ára. Bergur segir drengina efnilega. „Það er vilji í þeim og neisti sem maður sér. Við erum að ráðast í stórt verkefni. Þegar við gerðum Mary Poppins í fyrra var okkur sagt að þetta væri ekki hægt, en það var hægt,“ útskýrir Bergur. „Þeir eru í þjálfun í tíu mánuði því við frumsýnum í mars. Við höfum tíu mánuði til að gera þá að stórkostlegum dönsurum og leikurum.“ Bergur bætir við að hann finni fyrir ákveðnum meðbyr eftir upp- færsluna á Mary Poppins. „Ég man ekki eftir það hafi verið lagst í svo metnaðarfullt verkefni á Íslandi með krakka í aðalhlutverki.“ olof@frettabladid.is Sex drengir berjast um að leika Billy Söngleikurinn Billy Elliott er sennilega metnaðarfyllsta uppfærsla Borgarleikhússins til þessa. Sex ungir drengir eyða sumrinu í þjálfunarbúðum fyrir hlutverkið. BILLY-AR FRAMTÍÐARINNAR Á myndinni má sjá Sölva Viggósson Dýrfjörð, Marinó Máni Mabazza, Benedikt Gylfason, Baldvin Alan Thorarensen, Hjörtur Viðar Sig- urðarson og Rúnar Bjarnason. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL VERK Í TVEIMUR HLUTUM Verkin heita Hi Scores og KLARA. MYND/ÚR EINKASAFNI Kvikmyndin Billy Elliot var frumsýnd árið 2000 en í henni fer leikarinn Jamie Bell með aðalhlutverkið. Myndin vakti gríðarlega lukku og hlaut þrjár tilnefningar til Óskarsverðlauna og tvær tilnefningar til Golden Globe-verðlauna. Þá vann hún þrenn BAFTA-verðlaun, fyrir bestu bresku myndina, leikara í aðalhlutverki og Julie Walters hreppti hnossið sem besta leikkona í aukahlutverki. Handrit myndarinnar var notað sem grunnur að söngleik á West End árið 2005 og var hann sýndur í Ástralíu árið 2007 og á Broadway árið 2008. Þrjár tilnefningar til Óskarsins „Dansað um dauðann er samvinnu- verkefni tveggja danshöfunda með mjög ólíkan bakgrunn og nálgun. Kim Hiorthøy er vel þekktur graf- ískur hönnuður, höfundur, ljós- myndari og tónsmiður, og kláraði mastersgráðu í kóreó grafíu í Stokk- hólmi árið 2012. Itamar Serussi hefur sterkan bakgrunn í dansi, og hefur meðal annars unnið fyrir Íslenska dansflokkinn og Bat cheva Dance Company, en býr nú og starfar í Amsterdam,“ segir Andr- ea Deres, einn fjögurra meðlima Fanclub, sem er norrænn danshóp- ur sem stendur fyrir sýningunni Dansað um dauðann, en fyrri hluti verksins er sýndur í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 20.00, og sá seinni annað kvöld á sama tíma. Upp- setningin í Tjarnarbíói er hluti af alþjóðlegri ferð hópsins: „Meðlimir Fanclub eru frá Sví- þjóð og Noregi, en starfa í Kaup- mannahöfn,“ segir Andrea, og bætir við að áhorfandinn muni sjá tvær ólíkar túlkanir á nútíma- dansi. „Þetta er sýning með við- fangsefni sem snertir okkur öll sem er dauðinn,“ segir Andrea jafnframt. Verk Kim Hiorthøy, Hi Scores, leitast við að staðfesta tilvist okkar með því að bera hana saman við dauðann. „Það er hægt að kalla þetta hversdags-söng- leik,“ útskýrir Andrea. Verk Itamar Serussi, KLARA, fjallar um fjórar konur. „Þær eru allar svartklæddar og þetta fjallar um síðustu stundirnar í lífinu og ferðalagið sem þær eiga fyrir höndum.“ olof@frettabladid.is Söngleikur um dauðann Danshópurinn Fanclub sýnir samvinnuverkefnið Dansað um dauðann í Tjarnarbíói. SUMARDRYKKURINN „Ég verð að segja að hvítvín og sour- kokteilar komi mér í sumarskapið.“ Hrefna Rósa Sætran, kokkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.