Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 46
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 34
Sendiráð Bandaríkjana á Íslandi
og Ásbrú efna til tveggja keppna
í dag, sjálfan uppstigningardag.
Eru keppnirnar liður í árlegu
karnivali sem heitir Opinn dagur
á Ásbrú og þemað er All Ameri-
can County Fair.
Keppnirnar eru tvenns konar,
annars vegar chili-keppni sem
opin er öllum veitingahúsum og
hins vegar bökukeppni sem opin
er almenningi.
Bökur eru afar vinsælar í
Bandaríkjunum og eru nokkrar
útgáfur til af ekta, bandarískum
bökum. Ein þeirra er svokölluð
Key Lime-baka og á rætur sínar
að rekja til Flórída Keys í Banda-
ríkjunum. Þar voru engir ísskápar
þangað til Overseas-þjóðvegurinn
var tekinn í notkun árið 1938 og
því þurftu bakarar að nota dósa-
mjólk í baksturinn, eða „conden-
sed milk“. Því varð dósamjólkin
lykilhráefni í þessari böku Flór-
ída-fylkis.
Hefðbundin Key Lime-baka
10 hafrakex
1/2 bolli möndlur
6 msk. mjúkt smjör
4 eggjarauður
1 dós „condensed milk“ (fæst vanalega
í Kosti)
1/2 bolli súraldinsafi
2 tsk. rifinn súraldinbörkur
Þeyttur rjómi ofan á (valfrjálst)
Hitið ofninn í 175°C. Myljið kexið í
matvinnsluvél og setjið það í miðl-
ungsstóra skál. Myljið möndlurnar
í matvinnsluvél og blandið þeim
saman við kexmylsnuna. Því næst er
smjörinu blandað við og blöndunni
þrýst í botninn á tuttugu sentimetra
hringlaga formi. Bakið botninn í um
það bil tólf mínútur eða þangað til
hann er aðeins farinn að brúnast.
Leyfið botninum að kólna. Þeytið
eggjarauðurnar þangað til þær eru
ljósgular og aðeins farnar að þykkna,
um það bil tvær mínútur. Minnkið
hraðann og bætið „condensed milk“
við. Bætið súraldinsafanum rólega
saman við. Blandið síðan berkinum
saman við með sleif eða sleikju.
Hellið blöndunni ofan á botninn og
bakið í um það bil fimmtán mínútur
þannig að fyllingin sé enn örlítið
blaut. Leyfið bökunni að kólna,
setjið eitthvað yfir hana og kælið í
að minnsta kosti átta klukkustundir.
Berið hana fram kalda með þeyttum
rjóma ofan á ef vill. - lkg
Hver á bestu
böku Íslands?
Bandaríska sendiráðið og Ásbrú blása til keppni á upp-
stigningardag til að fi nna bestu bökuna á landinu.
LJÚFFENG Í SÓLINNI Key Lime-bakan er afskaplega sumarleg. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Skrautleg tíska á rauða
dreglinum í Mónakó
World Music-verðlaunin voru afh ent í Monte Carlo í Mónakó á þriðjudag. Stjörn-
urnar voru ófeimnar við að prófa sig áfram í fatavali á rauða dreglinum.
GLANS PAR EXELLANS
Nathalie La Rose og Flo
Rida voru glansandi græn.
NÝVÖKNUÐ
Pamela
Anderson
klæddist
hvítum
síðkjól á
hátíðinni.
AF HVERJU
ERTU SVONA
BLÁR?
Tinie Tempah
mætti í
sínum bestu
jakkafötum.
SEÐLA-
SÖNGVARI
Jason Derulo
bauð upp
á athyglis-
verðan sviðs-
búning.
HVÍTT Á HVÍTT
Ricky Martin
vel stíliseraður.
Kannski einum
of.
NORDICPHOTOS/GETTY
Kassamerkið #YesAllWomen hefur tröllriðið
Twitter síðan Elliot Rodger hóf skotárás í Kali-
forníu á föstudaginn sem endaði með því að
fjölmargir létu lífið og einnig Elliot sjálfur. Hann
birti myndbönd á YouTube fyrir andlátið og
sagðist meðal annars vera þreyttur á því að vera
sífellt hafnað af kvenfólki. Í færslum merktum
#YesAllWomen deilir fólk reynslu sinni og skoðun-
um á ofbeldi og kvenhatri.
Trend á Twitter Áhrifamikið kassmerkið á miðlinum er #YesAllWomen
Richelle Carey
@RichelleCarey
#YesAllWomen því
ég fór út að ganga í
fimmtán mínútur í
dag og var kölluð elsk-
an af þremur ókunn-
ugum mönnum.
Rylah
@JBRylah
„Ég á kærasta“ er auð-
veldasta leiðin til að
fá karlmann til að láta
þig í friði. Því hann
virðir annan karl-
mann meira en þig.
#yesallwomen
Callie
@CallieThorpe
Sem feit kona á ég
að vera þakklát þegar
karlmaður snertir mig
án leyfis. #YesAllWo-
men
Sophia Bush
@SophiaBush
Ég ætti ekki að þurfa
að halda á bíllyklunum
eins og vopni og líta yfir
öxlina á mér á nokkurra
sekúndna fresti þegar
ég rölti um á nóttunni
#YesAllWomen
Christina
@Interrobanggirl
Ég hafnaði einu sinni
strák því ég hafði ekki
áhuga, hann svar-
aði: Þú ættir að vera
almennileg við mig. Ég
gæti verið nauðgari.
#YesAllWomen
ÓVENJUMIKIÐ
KLÆDD
Miley Cyrus
þandi raddbönd-
in á verðlauna-
hátíðinni.
BLEIKUR BELGI
Belgíski tón-
listarmaðurinn
Stromae er
óhræddur við
litadýrð.
Gulur er aðallitur sumarsins ef
marka má sérfræðing tímaritsins
Glamour, Kat Thomsen. Kat mælir
með því að þeir sem vilja klæðast
litnum skelli sér þó ekki í skærgular
flíkur og velji sér frekar gylltan tón
eða fölgulan.
Þá segir hún einnig að smart sé
að velja sér áberandi fylgihluti. Hún
undirstrikar einnig að gul föt þurfa
að vera vel sniðin, helst aðsniðin, og
það sé ekki mjög smart að klæðast
gulum flíkum sem eru of víðar eða
íburðarmiklar. - lkg
Gulur er málið!
Sérfræðingur tímaritsins Glamour hvetur alla til að
klæðast litnum nú þegar sólin lætur á sér kræla.
GLÆSILEG
Í GULU
Leikkonan
Emma
Stone.
LÍFIÐ
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR