Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 12

Fréttablaðið - 29.05.2014, Page 12
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | Endanlega virðist komið á hreint að markmið stjórnvalda með úrræðum til að mæta óvissu og tryggja stöðugleika sjávar- byggða meðfram núverandi fisk- veiðistjórnunarkerfi nást ekki. Byggðastofnun hefur þegar breytt aðferðafræði sinni við að deila út byggðakvóta. Framtíðarsýn sér- fræðinga til að uppræta óvissuna sem fylgir kerfinu snýr að skýrt afmörkuðum vinnusóknarsvæðum í stað þess að plástra vandamálin jafnóðum og þau koma upp í ein- stökum sjávarbyggðum. Í dag, ekki á morgun Gauti Jóhannesson, sveitar stjóri Djúpa vogs hrepps, sagði í kjöl- far ákvörðunar Vísis hf. á þriðju- dag, um að halda áfram vinnslu á Djúpavogi næsta árið, eitthvað á þá leið að staðan væri betri í dag en hún var 28. mars. Áfangasigur hefði verið unninn. Þarna vísar hann til þess dags að Vísir birti á heimasíðu sinni tilkynningu um að fyrirtækið áformaði að flytja alla sína fiskvinnslu til Grindavíkur. Í þessum orðum Gauta felst auð- vit að að Djúpavogsbúar fóru sátt- ir að sofa að kvöldi 27. mars til þess eins að vakna við þær fréttir að framtíðin væri sveipuð mikilli óvissu. Tvær hliðar á peningnum Ein fyrirferðarmesta röksemd útgerðarinnar gegn ýmsum hug- myndum við endurskoðun fisk- veiðistjórnunar hér á landi, skilj- anlega, hefur lotið að óvissu um framtíðarskipulag greinarinnar. Fullyrt er að þessi óvissa hafi tafið hagræðingu og framþróun í sjáv- arútvegi og ítrekað bent á nauðsyn þess að þær reglur sem sjávarút- vegsfyrirtækjum eru settar gildi til langs tíma. Þegar gildandi lög um stjórn fiskveiða og hugmyndir um breyt- ingar þeirra eru krufnar má þar finna skýra markmiðasetningu; verndun auðlindarinnar með sjálf- bærri nýtingu, arðsemi fyrirtækja og stöðugt rekstrarumhverfi auk þess sem tryggja á þjóðinni sann- gjarna rentu af sjávarauðlindinni. Hart er tekist á um þessi atriði og svo verður áfram, en markmiðin eru allavega skýr. En í lagatext- um er líka talað um að tryggja trausta atvinnu og byggð í landinu og allra síðustu ár er markmið að stuðla að farsælli samfélagsþróun með hagsmuni komandi kynslóða í huga. Um þetta tvennt samanlagt og í hnotskurn má segja að tekist hafi að tryggja sjálfbæra nýtingu nytjastofna og arðsemi greinar- innar fer ekki fram hjá neinum, þótt misjafnlega gangi á milli ára. En þegar hin hliðin á peningnum er skoðuð má spyrja hvort mark- miðum um trausta atvinnu og byggð í landinu hafi verið sinnt af alúð. Og því frekar má spyrja hvort ekki megi snúa kröfu útgerð- arinnar um fyrirsjáanleika kerfis- ins upp á sjávarbyggðirnar í land- inu. Það er skiljanleg krafa að vita hvað er fram undan þegar kaupa á atvinnutæki og byggja upp fyrir- tæki. En sú krafa ætti að vera jafn sjálfsögð þegar fjölskylda kaupir sér hús eða stofnar fyrirtæki sem byggir á sjávarauðlindinni þótt með óbeinum hætti sé. Þessu mætir löggjafinn með því sem nefnt er önnur aflahlutdeild; byggðakvóti, línuívilnun, rækju- og skelbætur og strandveiðar svo fátt eitt sé talið. Þóroddur Bjarnason, prófess- or við Háskólann á Akureyri og Óvissuna verður að uppræta Ekkert bendir til annars en að byggðalegar lausnir meðfram núgildandi fiskveiðistjórnun hafi brugðist með öllu. Íbúar lítilla sjávarbyggða sem treysta á sjávarútveg lifa í algjörri óvissu frá degi til dags. Byggðastofnun hefur þegar tekið upp nýja aðferðafræði við úthlutun kvóta, og horfir til lausna fyrir stærri vinnusóknarsvæði en ekki fyrir einstakar sjávarbyggðir eins og hingað til hefur verið. Svavar Hávarðsson svavar@frettabladid.is Það verður eitt stærsta viðfangsefni á komandi þingvetri að landa endurskoðuðum lögum um stjórn fiskveiða. Sigurður Ingi Jóhannsson ræddi það á borgarafundi á Djúpavogi að stjórnvöld yrðu að finna skynsamlegri leiðir til að nýta aflaheimildir ríkisins til byggðaverkefna. Hann sagði stjórnvöld þurfa að móta leikreglur sem héldu bæði blómlegri byggð um allt land en tryggðu líka samkeppnisfærni sjávarútvegsfyrirtækja, eins og kom fram í fréttaflutningi Austurfrétta af fund- inum. Í viðtali við Fréttablaðið eftir fundinn sagði Sigurður ljóst að reynsla þeirra úrræða sem hingað til hefur verið beitt væri ekkert til að hrópa húrra fyrir. Þess vegna lúti endurskoðunin að því að koma byggðum út úr vanda en ekki „hjakka í sama farinu“ eins og Sigurður orðar það. „Þessi vinna mun kallast á við endurskoðun laga um stjórn fiskveiða en við köllum eftir því hvernig atvinnugreinin ætlar að koma að málinu. Það er mín skoðun að það sé heppilegast að gera þetta í sameiningu. En ef þetta lendir eingöngu á ríkinu þarf ríkið að hafa til þess burði, nægilegar aflaheimildir. Þess utan er áætlað að fara yfir félags-, byggða- og atvinnulega potta til að skýra hverju við ætlum að ná með þeim,“ sagði Sigurður. ALLT TIL SKOÐUNAR Á NÆSTA ÞINGVETRI Það er afla mark skráð á 67 stöðum á landinu en á sama tíma er klárt að það verða ekki fiskvinnslur á þeim öllum, það er óraun- hæft að halda því fram. Þóroddur Bjarnason, prófessor og stjórnarformaður Byggðastofnunar Á STÖÐVARFIRÐI Bent er á að tími sé kominn til þess að menn viðurkenni þá staðreynd að útgerð verður ekki byggð upp aftur í mörgum litlum þorpum á landsbyggðinni. Tækifæri þeirra felist hins vegar í uppbyggingu ferðaþjónustu eins og dæmi eru um. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA stjórnarformaður Byggðastofn- unar, segir að þessar aðgerðir eigi það sammerkt að vera fremur ómarkvissar og ólíklegar til að ná því markmiði að efla sjávarbyggð- ir til framtíðar. Ómarkvissar leikreglur „Sá sjávarútvegur sem við höfum núna er afurð fiskiveiðistjórnun- arkerfisins. Leikreglurnar hafa mótað greinina. Þetta sem við höfum verið að gera til að viðhalda fjölbreytni, t.d. byggðakvóti, hefur verið mjög ómarkvisst, og aldrei byggt á sýn til lengri tíma,“ segir Þóroddur, og bendir á að aldrei hafi verið reynt að skilgreina hvaða sjávarbyggðir geti vaxið og hverjar ekki. „Það er aflamark skráð á 67 stöðum á landinu en á sama tíma er klárt að það verða ekki fiskvinnslur á þeim öllum, það er óraunhæft að halda því fram,“ segir Þóroddur. Í skrifum sínum hefur Þóroddur spurt hvort leggja eigi af byggða- kvóta og aðrar sporslur en einfald- lega svæðisbinda hluta aflaheim- ilda ríkisins. Hluti kvótans sé t.d. bundinn á Vestfjörðum og svæðis- bundinni hagræðingu sé að öðru leyti leyft að eiga sér stað. Hug- myndafræðin byggir á því að um skýrt markmið sé að ræða; það er að segja, hvernig mun byggðin á viðkomandi svæði líta út eftir tvo áratugi en ekki á sama tíma að ári. Þessar svæðis bundnu heim- ildir yrðu fyrir hvern sem er. „Þá skiptir ekki máli hvort um ræðir heimamenn eða ekki, því starf- semin væri bundin á svæðinu hvort sem er,“ segir Þóroddur og spyr hvort það skipti máli hvort aflinn er unninn í Bolungarvík eða á Ísafirði. Með þessu væri snúið frá því að reyna að jafna stöðu sjávarbyggða innbyrðis, þeirra sem standa verst, en reynt að efla útgerð svæðisbundið sem kæmi þessum sömu byggðum til góða. Þessi svæðisbinding myndi fela í sér að að aflaheimildir gengju kaupum og sölum líkt og í stóra kerfinu. Munurinn væri sá að þeim fylgdu kvaðir um fullvinnslu á tilteknu vinnusóknarsvæði, litlu eða stóru. Lægra verð á slíkum kvóta myndi endurspegla meint óhagræði af dreifðari og smærri vinnslum og þannig gera þær sam- keppnisfærar. Þetta myndi þýða að svæðisbundnu heimildirnar yrðu í höndum þeirra sem sæju tækifæri til arðbærrar vinnslu á smærri svæðum en þær yrðu ekki seldar í burt. Þetta væri því eins konar markaðslausn á byggðavanda núverandi kerfis. Þetta ætti ekki aðeins við um stærri og öflugari svæðin, t.d. eru Djúpivogur og Borgarfjörður eystri skilgreind sem örsmá vinnusóknarsvæði sem fengju þá sínar svæðisbundnu heimildir. En samgöngubætur sem stækka og styrkja vinnusóknar- svæði myndu jafnframt leiða til svæðisbundinnar hagræðingar í sjávarútvegi. Hér ber til þess að líta að flest- ar landsbyggðir Íslands standa nokkuð vel. Byggðastofnun hefur undanfarin tvö ár unnið sam- kvæmt þeirri hugmyndafræði að gera greinarmun á sterkum vinnu- sóknarsvæðum og litlum sjávar- byggðum sem byggst hafa upp í kringum sjávarútveg og eiga fáa möguleika aðra. Þegar vinnusókn- arsvæðin eru skoðuð kemur í ljós að fáar sjávarbyggðir falla utan þeirra vinnusóknarsvæða sem skilgreind hafa verið. Því telur Þóroddur að sjávarútvegur geti orðið ein af meginstoðum færri og stærri atvinnu- og þjónustusvæða. Að því sé hægt að vinna með sam- göngubótum, stuðningi við aðrar atvinnugreinar en sjávarútveg til viðbótar við svæðisbundnar afla- heimildir, eins og áður sagði. Tvær útfærslur Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávar- útvegs- og byggðamálaráðherra, er nýkominn að austan þar sem hann ræddi við sveitarstjórnarmenn á Djúpavogi um aðsteðjandi vanda vegna fráhvarfs Vísis. Hann segir að meðal þess sem þar var kynnt hafi verið ný nálgun Byggðastofn- unar, eða að öflug fyrirtæki axli byggðaverkefni með stjórnvöldum til tiltekins tíma. Nýbreytnin felst í að auglýst er eftir samstarfs- aðilum um eflingu sjávarútvegs í nokkrum byggðarlögum sem falla undir reglur um ráðstöfun afla- marks Byggðastofnunar og nær til lengri tíma en eins árs. Þetta fyrirkomulag mætti kalla skrefið í áttina til þess að leggja af nálgun fyrri ára og svæðisbinda aflaheim- ildir eins og Þóroddur mælir með. Þetta er kannski skásta leiðin til að vinna hlutina á nýjan hátt innan núgildandi kerfis. Segja má að ef þetta fyrirkomulag Byggðastofn- unar hefði verið í gildi á Djúpa- vogi, þótt dæmið varpi ekki réttu ljósi á vandann sem þar er við að eiga, þá hefði fyrirtækið verið aðili að samningi um ákveðinn stuðning, þá hefði fyrirvari verið á því að fyrirtækið drægi sig út með skipulögðum hætti. „Ég hef séð þetta sem tvær mögulegar útfærslur. Innan núverandi kerfis sé hægt að nýta byggðakvóta markvisst með því að auglýsa eftir samstarfsaðilum til lengri tíma um byggðaeflingu í fámennum sjávarþorpum sem eiga litla möguleika á öðru en sjávar- útvegi. Fjölbreyttari svæði verði þá að bjarga sér sjálf. Slík tilraun er þegar í gangi. Hins vegar væri róttækari breyting að leggja af allar núverandi mótvægisaðgerð- ir og svæðisbinda þess í stað hluta kvótans,“ segir Þóroddur. ASKÝRING | 12 1 2BYLTING Í SJÁVARÚTVEGI OG STAÐA SJÁVARBYGGÐA

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.