Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 29.05.2014, Blaðsíða 29
Síðustu áratugi hefur hinn hefðbundni steypti útveggur verið einangraður að innan og múraður. Tæknilega er aðferðin röng því veggurinn er alsettur kuldabrúm þar sem engin einangrun hylur plötu- og veggjaskil. Sé einangrun staðsett innan á útvegg streymir orkan út um kuldabrýrnar og nemur orkutap vegna kuldabrúa við samskeyti í burðarvirki tugum prósenta af heildarorkutapi húss. Einfaldasta og fljótvirkasta aðferðin til að losna við þessar kuldabrýr er að einangra húsið að utanverðu. Ókostir kuldabrúa felast ekki eingöngu í orkutapi því einnig fylgir mikil hætta á steypuskemmdum og tæringu járnbendingar auk þess sem hætta er á myndun myglusvepps þar sem yfirborðshiti veggja og lofta getur farið niður fyrir viðunandi mörk. Sé útveggur einangraður að utanverðu er veggurinn jafnheitur allt árið og nær ekkert álag verður á burðarvirki vegna veðurfarslegrar áraunar í formi síendurtekinna hitabreytinga og slagregns. Rétt staðsett og rétt valin einangrun sparar orku og rekstrarkostnað til lengri tíma litið auk þess sem hægt er að uppfylla kröfur um orkunýtingu með mun þynnri einangrun. Samkvæmt byggingarreglugerð skulu fylgja hönnunargögnum útreikningar sem sýna að heildarleiðnitap byggingar að teknu tilliti til kuldabrúa og allra U-gilda uppfylli kröfur reglugerðarinnar KULDABRÚ GETUR VERIÐ GREINILEG VIÐ VISSAR AÐSTÆÐUR DÆMIGERÐ SKIPTING LEIÐNITAPS EF EINANGRAÐ ER AÐ INNAN DÆMI UM MYGLUSVEPP VEGNA RAKAMYNDUNAR 7% 7% 37% 13% 36% KULDABRÚ ÞAK GÓLF GLUGGAR OG HURÐIR VEGGIR ÚTVEGGUR KULDABRÚ MILLIPLATA EF EINANGRAÐ ER AÐ INNAN ÞARF MUN ÞYKKARI EINANGRUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.