Fréttablaðið - 29.05.2014, Síða 50
29. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 38
Ég held að yfirmenn
félagsins séu að átta sig
á því að við erum ekki
alveg jafn stór nöfn og í
fótboltanum.
Róbert Gunnarsson, leikmaður PSG.
SPORT
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
14 DAGAR Í FYRSTA LEIK
HANDBOLTI Línu- og landsliðsmað-
urinn Róbert Gunnarsson hefur
fengið að upplifa ýmislegt nýtt
eftir að hann gekk til liðs við stór-
lið PSG í Frakklandi. Þetta rót-
gróna knattspyrnufélag tók yfir
rekstur Paris Handball á sama
tíma og þeir Róbert og Ásgeir Örn
Hallgrímsson gengu til liðs við
félagið sumarið 2012 og síðan þá
hefur uppgangur félagsins verið
mikill, þó svo að liðið hafi orðið af
franska meistaratitlinum í vor.
Róbert neitar því ekki að það
hafi verið vonbrigði fyrir stjörnum
prýtt lið PSG að þurfa að sætta sig
við annað sæti deildarinnar.
„Það var engan veginn nógu
gott. Við stefndum líka á að komast
í undanúrslit Meistaradeildarinn-
ar en drógumst gegn Veszprem frá
Ungverjalandi og áttum einfald-
lega ekki möguleika gegn þeim.“
Liðið varð svo bikarmeistari nú
um helgina og segir Róbert að það
hafi verið sárabót. „Það var þó
ágætt að ná einum titli. En við ætl-
uðum okkur miklu meira.“
Róbert segir erfitt að benda á
eina ástæðu fyrir misjöfnu gengi
liðsins í vetur en að það hafi tekið
langan tíma að finna jafnvægi í
leikmannahópnum. „Sumir leik-
menn byrjuðu á að spila mikið en
voru svo teknir úr liðinu og fengu
allt í einu ekkert að spila. Þetta fór
ekki að ganga almennilega fannst
manni fyrr en undir lok tíma-
bilsins og þá var það orðið allt of
seint.“
Sjeikinn mætir stundum
PSG er í eigu eignarhaldsfélags
frá Katar en á bak við það standa
moldríkir olíufurstar, líkt og þeir
sem fylgjast með knattspyrnuliði
PSG vita mætavel.
„Þetta er risastórt,“ útskýrir
Róbert en handboltaliðið byrjaði
að spila undir merkjum PSG árið
2012. Með þeirri breytingu hafi í
raun verið markað nýtt upphaf á
sögu félagsins og umhverfi þess
gerbreyttist.
„Sjeikinn mætir stundum á leiki
og framkvæmdastjórinn [Jean-
Claude Blanc] nánast alltaf. Leik-
menn fótboltaliðsins láta stundum
sjá sig og maður skynjar því að
þetta er ansi stór klúbbur og hefur
vaxið mjög hratt á þessum tveimur
árum,“ segir hann en bætir við að
stórstjarnan Zlatan Ibrahimovic
eigi enn eftir að kíkja á leik með
handboltaliðinu.
Róbert segir að um tíma hafi
einnig komið til greina að stofna
öfluga körfuknattleiksdeild í
félaginu en það hefur ekki enn
orðið að veruleika. „Hugmyndin
er að gera þetta á svipaðan máta
og Barcelona hefur gert,“ segir
Róbert en Börsungar hafa verið í
fremstu röð með fótbolta-, hand-
bolta- og körfuboltalið sín undan-
farin ár og áratugi.
Fjórir landsliðsmenn í deildinni
Róbert á tvö ár eftir af samn-
ingi sínum við PSG og verður því
áfram í frönsku höfuðborginni.
Hann segir hlutverk sitt í liðinu
hafa verið hefðbundið þó svo að
hann hafi spilað í stöðu horna-
manns í einum hálfleik. „Ég var nú
aðallega bara í því að leysa inn á
línu. Ég læt Luc Abalo og hina um
að svífa inn úr hornunum. En þetta
var gaman – ég átti nokkrar stoð-
sendingar og reyndi hvað ég gat í
hraðaupphlaupunum,“ segir hann.
Liðsfélagi hans Ásgeir Örn
Hallgrímsson er á leið til Nimes í
sumar og þá er Snorri Steinn Guð-
jónsson búinn að semja við Seles-
tat. Arnór Atlason verður áfram
í Saint-Raphäel. Róbert segir að
franska deildin sé að styrkjast
með hverju árinu.
„Það sást best á því að það voru
allir að vinna alla í deildinni í
vetur. Þegar við Ásgeir komum
fyrir tveimur árum óraði okkur
ekki fyrir að deildin yrði svona
sterk. Ég sé því ekki eftir því að
hafa tekið þetta skref.“
Meðal þeirra leikmanna sem eru
á leið til PSG í sumar eru Thierry
Omeyer, Xavier Barachet og Willi-
am Accambray – allt lykilmenn í
ógnarsterku landsliði Frakklands.
„Það er auðvitað frábært fyrir
liðið að fá þessar frönsku stór-
stjörnur. Ef við værum að gera
þetta heima á Íslandi vildi maður
sameina allar landsliðsstjörnurnar
okkar í Fylki og búa til stórveldi
í Árbænum,“ segir hann í léttum
dúr.
Með lífvörðum í Makedóníu
Róbert kom til PSG frá Rhein-
Neckar Löwen í Þýskalandi, sem
er eitt stærsta handboltafélag
Þýskalands. „En þetta er bara svo
miklu stærra í París. Öll umgjörð
getur verið nánast hálfkjánaleg,
sérstaklega í kringum ferðalög
okkar utan Frakklands,“ útskýrir
Róbert.
„Þegar við fórum til Makedóníu
að spila í Meistaradeildinni voru
lífverðir sendir með okkur. Það
er auðvitað engin þörf fyrir það,“
segir Róbert og hlær. „Ég held
reyndar að yfirmenn félagsins
séu að átta sig á því að við erum
ekki alveg jafn stór nöfn og í fót-
boltanum.“
Róbert segir að það hafi verið
sérstök upplifun að fagna franska
meistaratitlinum í fyrra eftir
sigur PSG í deildinni. „Við vorum
á einhverjum næturklúbbi í París
ásamt her lífvarða – þó svo að við
værum einir í klúbbnum,“ segir
hann og hlær.
eirikur@frettabladid.is
Sjeikinn kemur stundum við
Róbert Gunnarsson og samherjar hans í handboltaliði PSG upplifðu hálfgert vonbrigðatímabil í Frakklandi
þrátt fyrir að hafa orðið bikarmeistarar um helgina. Hann segir alla umgjörð í kringum félagið risavaxna.
DUGLEGUR AÐ MÆTA Framkvæmdastjóri PSG, Jean-Claude Blanc, er einn
hæstráðenda félagsins og mætir á alla leiki. Hér heilsar hann upp á Róbert.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Þjóðverjar geta á HM í Brasilíu orðið fyrsta þjóðin í sögu
heimsmeistarakeppninnar í fótbolta til að komast í undan-
úrslit í fjórum HM í röð. Þjóðverjar urðu í öðru
sæti 2002 og hafa síðan fengið bronsið á síðustu
tveimur keppnum.
Þjóðverjar voru fyrstir til að ná í undanúrslit
í þremur keppnum í röð (1966–1974) og hafa
síðan náð því tvisvar (líka 1982–1990) alveg eins og
Brasilíumenn (1970–1978 og 1994–2002).
Þjóðverjar töpuðu í 8 liða úrslitunum fyrir Búlgaríu á
HM 1994 (5. sæti) og duttu út í milliriðli á HM 1978
(6. sæti) þegar þeir áttu síðast möguleika á því að kom-
ast í undanúrslitin í fjórðu heimsmeistarakeppninni í röð.
MMA Gunnar Nelson hefur fengið nýjan mótherja fyrir UFC-bardagakvöldið
í Dyflinni 19. júlí en staðfest var í gær að Zak Cummings tekur pláss Ryans
LaFlare og berst við Gunnar. LaFlare meiddist á hné og þurfti að hætta við
bardagann.
„Zak er glímumaður eins og Ryan og ósigraður í UFC þar sem hann hefur
barist tvisvar. Hann er ekki jafnhátt skrifaður og LaFlare en alls ekki síðri
bardagamaður,“ segir Haraldur Dean Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars,
í samtali við Fréttablaðið.
Zak Cummings er öllu reyndari þrátt fyrir að vera árinu yngri en LaFlare, 29
ára. Hann á að baki 20 bardaga í MMA (17-3), þar af tvo í UFC. Annan vann
hann á dómaraúrskurði en hinn með hengingu í fyrstu lotu.
„Við hefðum væntanlega getað hafnað bardaganum en það er engin ástæða
til þess. Zak er verðugur andstæðingur þó svo að það hefði verið gaman að
berjast við LaFlare. Zak hefur unnið 17 bardaga og náði á sínum tíma að vinna
tíu bardaga í röð. Hann er mun reyndari andstæðingur og hefur rotað fleiri,“
segir Haraldur Dean Nelson. - tom
Nýr og verðugur andstæðingur
SAMA HVER ER Gunnar Nelson getur
barist við hvern sem er. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
HANDBOLTI HK-ingar halda áfram
að bæta leikmannahópinn fyrir
átökin í Olís-deild karla í hand-
bolta næsta vetur en félagið fékk
til sín fimmta leikmanninn á
nokkrum dögum í gær.
Guðni Már Kristinsson, leik-
stjórnandi ÍR, skrifaði undir
samning við liðið í gær en í síð-
ustu viku sömdu þeir Daði Laxdal
Gautason, Þorkell Magnússon,
Þorgrímur Smári Ólafsson og
bróðir hans, Lárus Helgi Ólafs-
son markvörður, við Kópavogs-
liðið.
HK endaði í neðsta sæti Olís-
deildarinnar á síðasta tímabili og
innbyrti aðeins þrjú stig í 21 leik.
Bjarki Sigurðsson tók við þjálfun
liðsins eftir tímabilið en honum
til aðstoðar verður Guðmundur
Helgi Pálsson. - tom
HK safnar liði
FÓTBOLTI Dregið var til 16 liða
úrslita Borgunarbikars kvenna
í fótbolta í gær en á því stigi
keppninnar koma inn liðin tíu úr
Pepsi-deild kvenna og blandast
með liðunum sex sem komast í
gegnum forkeppnina.
Bikarmeistarar Blika voru
nokkuð heppnir með drátt en þeir
mæta Hetti frá Egilsstöðum á
heimavelli.
Þrjár viðureignir Pepsi-deildar
liða eru á dagskrá en það eru: Sel-
foss - ÍA, Afturelding - Valur og
Þór/KA - Fylkir.
Aðrir leikir eru: KR - FH,
Álftanes - ÍBV, Þróttur - ÍR og
Víkingur Ólafsvík - Stjarnan. - tom
Höttur heim-
sækir Blika
HEPPNAR Bikarmeistarar Blika eiga að
fara áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÓTBOLTI Malcolm Glazer, eig-
andi enska úrvalsdeildarliðsins
Manchester United og bandaríska
NFL-liðsins Tampa Bay Bucca-
neers, lést í gær 85 ára að aldri.
Glazer eignaðist fyrst hluta
í Manchester United árið 2003
en var svo kominn í meirihluta
tveimur árum síðar. Synir hans,
Joel og Avram Glazer, eru stjórn-
arformenn félagsins.
Undir eignarhaldi
Glazers vann Tampa
Bay Ofurskálarleik-
inn árið 2002 og flest-
ir þekkja velgengni
Manchester United
eftir að hann
eignaðist félagið.
Hann skilur
eftir sig konu og
sex börn. - tom
Glazer látinn
www.tskoli.is
Margmiðlunarskólinn
Kynntu þér námið á tskoli.is/margmidlunarskolinn
Opið fyrir umsóknir á haustönn á menntagatt.is til 31. maí.
Átt þú samleið með okkur?
Tveggja ára nám á fagháskólastigi með möguleika á viðbótarári í erlendum
skóla (BA Hons). Þrívíddarvinnsla, eftirvinnsla og tölvuleikir.