Fréttablaðið - 09.07.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 09.07.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Miðvikudagur 12 ÞJÓÐDANSAMÓTÞjóðdansafélagið í samvinnu við Nordlek stendur fyrir norrænu þjóðdansa- og þjóðlaga-móti í Mosfellsbæ dagana 9. til 12. júlí. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni við Varmá. Nánar á www.mosfellsbaer.is. M aturinn í Perú var ljúffengur og fengum við meðal annars að prófa þjóðarrétt Perúmanna sem er steiktur naggrís “ segi Ásem skyldu Sigrúnar Klöru um gamalkunnar slóðir,“ útskýrir Ásgerður sem ásaþremur öð NAGGRÍS Í MATINNFERÐIR Ásgerður Kjartansdóttir bókasafnsfræðingur er vinur Perú. Hún hekl- aði 145 gullfallegar húfur sem hún færði fátækum börnum í Andesfjöllunum. MACHU PICCHU DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGISÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara Amerískgæðavara Frábær ferðamáti Í dag eru þrjár leigur starfandi hérlendis sem sérhæfa sig í Segway-ferðum. SÍÐA 2 Flókið ferli Þeir sem leigja út heimili sín til ferða manna gegn greiðslu þurfa að hafa þar til gert starfsleyfi . SÍÐA 2 Smíða frá grunni RB rú h f f FYRIRTÆKJALAUSNIR Í FERÐAÞJÓNUSTUMIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 2 SÉRBLÖÐ Fyrirtækjalausnir í ferðaþjónustu | Fólk Sími: 512 5000 9. júlí 2014 159. tölublað 14. árgangur YFIRBURÐASIGUR André Schürrle skoraði síðustu tvö mörk Þjóðverja í leiknum gegn Brasilíumönnum í gær. Það ræðst í kvöld hvort Þjóðverjar mæta Argentínumönnum eða Hollendingum. FRETTABLAÐIÐ/GETTY MENNING Sagan af bláa hnettinum hlaut bresku UKLA-verðlaunin. 20 LÍFIÐ Sigurður Anton Frið- þjófsson frumsýnir sína fyrstu kvikmynd, Ísabella. 30 SPORT Kvennalandsliðið í körfubolta spilar loksins aftur hér á landi. 26 Íbúfen® 400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Auglýst verð gildir frá fimmtudeginum 10. júlí til og með miðvikudeginum 16. júlí 2014. TJALD STAR 200 Svefnpláss 2. Vatnsheldni: 2000 mm Innra tjald: 100% pólýester með öndun. Þyngd 3,9 kg. 9.995.- SKOÐUN Kjartan Jóhanns- son skrifar um Seðlabanka og skopkeppni. 13 DÓMSTÓLAR Hanna Birna Krist- jánsdóttir innanríkisráðherra stefnir að því að leggja fram frumvarp um millidómstig á haustþingi. Á Íslandi er nú tveggja dóm- stiga kerfi, þar sem héraðsdóm- ar dæma í málum á neðra stigi en Hæstiréttur á efra stigi. Sam- kvæmt þeim tillögum sem nefnd á vegum innanríkisráðherra er að leggja lokahönd á breytist starfsemi hér- aðsdómstóla ekki. Mál koma til með að fara frá þeim til millidómstigsins þar sem lagt verður nýtt mat á vitnisburði og hægt verður að leggja fram ný sönnunargögn í málum. Gert er ráð fyrir að Hæstiréttur veiti áfrýj- unarleyfi en í því felst að rétturinn ákveður hvort hann tekur mál til með- ferðar eða ekki. Fastlega má gera ráð fyrir að málum fyrir Hæstarétti muni fækka verulega og hæstaréttar- dómurum mun einnig fækka. - jme / sjá síðu 6 Hæstiréttur fær ákvörðunarrétt um hvort hann tekur mál til meðferðar: Breytingar á dómskerfinu FASTEIGNIR „Það er búið að draga okkur á asnaeyrunum í á þriðja ár,“ segir Jóhannes Haukur Hauksson, einn fjögurra eigenda sem hyggjast á næstu dögum auglýsa 72 prósenta hlut í Grímsstöðum á Fjöllum til sölu á Evrópska efnahagssvæðinu. Eins og kunnugt er höfnuðu stjórnvöld því að heimila Kínverj- anum Huang Nubo að kaupa hlut fjórmenninganna í Grímsstöðum. Þá stóð til að jörðin yrði seld eignar- haldsfélagi sveitarfélaga á svæðinu sem síðan myndi gera samning við Nubo um leigu á Grímsstöðum til langs tíma. Ríkið á um 23 prósent í jörðinni á móti fjórmenningunum og nokkrir einkaaðilar afganginn. Jóhannes bendir á að fyrir lang tímaleigunni til Nubos þurfi undan þágu frá lögum sem ekki hafi fengist. „Því var raunveru- lega ekki neitað en ríkisstjórnin sagðist þurfa að endurskoða lögin. Sú nefnd er búin að skila af sér til innanríkisráðherra og ráðherra er búinn að vera með niðurstöðuna í þrjár vikur en við fáum ekkert að vita og það veit enginn hvernig það fer,“ segir Jóhannes. Hver sem er á Evrópska efna- hagssvæðinu hefur rétt til að kaupa fasteign hér og Jóhannes segir að hugsanlegir kaupendur hafi þegar sett sig í samband. „Það hafa aðilar sýnt þessu mikinn áhuga en við vitum náttúrlega ekki hvað er á bak við það,“ segir Jóhannes sem kveðst ekki vita nákvæmlega um fyrirætlanir þessara aðila á Gríms- stöðum. „Við ætlum ekki að loka neinum möguleikum. Við ætlum bara að kanna hvað annað er í boði á Evr- ópska efnahagsvæðinu.“ - gar Grímsstaðir á Fjöllum til sölu á EES-svæðinu Eigendur 72 prósenta hlutar í Grímsstöðum á Fjöllum segjast fullsaddir af því að vera dregnir á asnaeyrunum af stjórnvöldum vegna áhuga Huangs Nubo á jörðinni og munu auglýsa hana til sölu á Evrópska efnahagssvæðinu. Fyrirspurnir hafi borist. Okkur finnst vera komið nóg. Jóhannes Haukur Hauksson, landeigandi á Gríms- stöðum á Fjöllum. FÓTBOLTI Þýskaland vann ótrú- legan 7-1 sigur á gestgjöfum Brasilíu í fyrri undanúrslita- leik keppninnar sem fór fram í Belo Horizonte í gær. Er það stærsta tap í sögu brasilíska landsliðsins. Miroslav Klose kom sér einnig í sögu- bækurnar með því að skora sextánda mark sitt í úrslita- keppni HM frá upphafi en það er met. Úrslitin eru einhver þau ótrú- legustu í ríkri sögu heimsmeist- arakeppninnar en Þýskaland mætir annaðhvort Hollandi eða Argentínu í úrslitaleiknum. - esá Ótrúlegur sigur Þýskalands: Heimamenn niðurlægðir Bolungarvík 10° SA 4 Akureyri 14° S 5 Egilsstaðir 16° S 5 Kirkjubæjarkl. 11° SA 6 Reykjavík 12° SA 9 Bjartviðri A-lands en rigning S- og V-til. SA-strekkingur SV-til í fyrstu en dregur svo úr. Fremur hæg S-læg átt A-til. Hiti 8-18 stig, hlýjast A-lands. 4 Sími 512 4900 landmark.is HANNA BIRNA KRISTJÁNS DÓTTIR Fuglalíf við landið gjörbreytt Á sama tíma og fuglastofnar hrynja er rannsóknum á sandsílum hætt. 10 Minjastofnun vill Þorláksbúð burt Talsmaður Þorláksbúðarfélagsins hafnar flutningi. 2 Mikið tjón Forstjóri Reita, sem á Griffilshúsið, segir að aldrei sé hægt að tryggja sig svo vel að menn komist tjónalausir frá bruna. 2 Gjaldeyrishöft í tæp sex ár Samtök atvinnulífsins segja óttann við gengishrun og verðbólgu orsakir fyrir aðgerðaleysi stjórnvalda. 8 ORKUMÁL Ragnheiður Elín Árna- dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð- herra, mun leggja fram frumvarp um breytingu á raforkulögum í haust. Þar verður með ýtarleg- um hætti kveðið á um hvernig standa skuli að gerð áætlunar um uppbygg- ingu flutnings- kerfis raforku. Í drögum að frumvarpi er sveitarfélögum skylt að sam- ræma skipulags- áætlanir sínar vegna verkefna í kerfis áætlun. Guðmundur Ingi Ásmunds- son, aðstoðarforstjóri Landsnets, segir tilganginn með þessum nýju lögum vera þann að auka þetta samráð við sveitarfélög. Hann telur að sveitarfélögin séu ekki að missa skipulagsvald sitt þegar kemur að raflínum. - sa / sjá síðu 4 Nýtt frumvarp um raforku: Aukið samráð við sveitarfélög RAGNHEIÐUR E. ÁRNADÓTTIR MIROSLAV KLOSE

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.