Fréttablaðið - 09.07.2014, Page 8
9. júlí 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR |
Afnám gjaldeyrishafta gæti leitt
til veikingar krónunnar með til-
heyrandi verðhækkunum hér
innan lands og aukinni verðbólgu.
Þrátt fyrir það telja Samtök
atvinnulífsins (SA) að sú efnahags-
lega áhætta sem fylgir höftunum,
og mun líklega skapast, sé meiri en
sú sem gæti falist í afnámi þeirra.
Þetta kom fram í grein Þorsteins
Víglundssonar, framkvæmda-
stjóra SA, í Fréttablaðinu í gær.
Þar rekur Þorsteinn verkefnið við
afnám haftanna sem hann segir
það mikilvægasta sem íslensk
stjórnvöld standi frammi fyrir í
dag. Þorsteinn segir aðstæður til
afnáms mjög hagstæðar þar sem
efnahagslífið sé í ágætu jafnvægi.
„Lykilforsenda þess að hægt
verði að koma í veg fyrir ofhitnun
hagkerfisins er hratt afnám fjár-
magnshafta. Efnahagsleg áhætta
afnáms hafta er mun minni en
hættan sem fylgir enn einni rússí-
banareið íslensks efnahagslífs
með kunnuglegri kollsteypu í lok
ferðar,“ segir Þorsteinn.
Höftunum var komið á í nóvem-
ber 2008 eftir að landið hafði orðið
fyrir barðinu á bankakreppu.
Gengi krónunnar hafði þá lækk-
að og hætta á stórfelldu útstreymi
fjármagns skapast. Það hefði
getað valdið enn meiri gengis-
lækkun og verðbólgu og því ákvað
Seðlabankinn að hefta tímabundið
útflæði gjaldeyrisins. Upphaflega
áttu höftin að falla úr gildi haustið
2010. Afnám þeirra hefur dregist
og vegur þar þyngst töf við uppgjör
þrotabúa föllnu bankanna, eins og
kemur fram í nýrri Skoðun Við-
skiptaráðs Íslands.
Á þeim rúmu fimm og hálfu ári
sem liðin eru hefur ítrekað verið
bent á þann efnahagslega kostnað
sem höftunum fylgir. Viðskipta-
ráð hefur til dæmis áætlað að
þau hafi kostað íslensk fyrirtæki
um 80 milljarða króna í útflutn-
ingstekjur á síðasta ári. Höftin
eru einnig sögð draga úr nýliðun
og vexti íslenskra fyrirtækja og
leiða til þess að sprotafyrirtæki
færi starfsemi sína úr landi. Höft-
unum hefur því oft verið líkt við
girðingu sem erlendir fjárfestar
vilji ekki festast innan með fjár-
muni sína.
Þorsteinn segir í grein sinni að
óttinn við gengislækkun og með-
fylgjandi verðbólgu sé líklegasta
skýringin á „aðgerðaleysi stjórn-
valda“ þegar komi að afnámi haft-
anna.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, hefur að
undanförnu svarað spurningum
um afnám haftanna á þann veg
að þau verði jafnvel afnumin í ár.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðasta
mánuði sagði hann stjórnvöld hafa
nýtt tímann vel til að kortleggja
vandann.
„Ég er með væntingar um að það
verði stórir áfangar stignir á þessu
ári,“ sagði Bjarni.
Styttist í sex ára afmæli haftanna
Samtök atvinnulífsins segja óttann við gengislækkun og verðbólgu líklegustu skýringuna á „aðgerðaleysi stjórnvalda“ við afnám gjaldeyris-
hafta. Höftunum var komið á í nóvember 2008. Fjármálaráðherra hefur sagst vona að „stórir áfangar verði stignir á þessu ári“.
Höft in fæla í burtu erlenda fj árfesta sem vilja ekki festast
innan þeirra. Íslensk fyrirtæki og frumkvöðlar þurfa því í
auknum mæli að færa alla sína starfsemi, eða hluta hennar, til
útlanda með tilheyrandi afl eiðingum fyrir íslenskt efnahagslíf.
Þau takmarka
virkni íslenska
hlutabréfamarkað-
arins þar sem fj ár-
festar eiga erfi ðara
með að átta sig á
verðlagningu bæði
hluta- og skuldabréfa.
Skerða
samkeppn is-
hæfni landsins
og hafa neikvæð
áhrif á láns-
hæfi smat
ríkisins.
Draga úr út-
fl utningstekjum
landsins og fækka
störfum í þekkingar-
tengdum greinum.
Gjaldmiðillinn gæti veikst
þegar fj ármagn fer að
streyma úr landi við losun
haft anna.
Stór hluti innkaupakörf-
unnar kemur frá útlönd-
um og því myndi veiking
krónunnar leiða til þess að
verð körfunnar hækkaði og
verðbólga ykist.
Húsnæðisskuldir gætu
hækkað umfram tekjur
heimilanna með meðfylgj-
andi skuldavanda.
Hágæða múrefni í Múrbúðinni
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Deka Acryl grunnur
1 kg 1.395,-
5 kg 4.995,-
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 9-12 & 13-18
Munið 5% Pallaafsláttinn.
Leitið tilboða í meira magn.
Látið fagmenn vinna verkin!
Serpo 261 trefjamúr
Fyrir múrkerfi
25 kg 3.840,-
Weber Milligróf
múrblanda
25 kg 1.850,-
Weberdur 629
gipsmúr
30 kg 2.495,-
Weber REP 980
þéttimúr grár
25 kg 3.590,-
Weber Gróf
Múrblanda
25 kg 1.695,-
Deka Latex
5 lítr. 4.690,-
Deka Hrað
viðgerðarblanda
25 kg 4.290,-
Deka Fíber trefja-
styrkt múrblanda
25 kg 3.390,-
og
GJALDEYRISHÖFTIN EFNAHAGSLEG ÁHÆTTA
AFNÁM HAFTA MÖGULEG ÁHÆTTA
Lykilfor-
senda þess að
hægt verði að
koma í veg
fyrir ofhitnun
hagkerfisins er
hratt afnám
fjármagnshafta. Efnahags-
leg áhætta afnáms hafta er
mun minni en hættan sem
fylgir enn einni rússíbana-
reið íslensks efnahagslífs
með kunnuglegri koll-
steypu í lok ferðar.
Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Fáir fj árfest-
ingar kostir eru
innan haft anna
og því skapa þau
hættu á eigna-
bólu.
„Ein helsta áhættan væri meðal annars þrýstingur á
krónuna og Seðlabankinn þyrfti þá að nota hluta af
gjaldeyrisforðanum til að sporna gegn falli hennar,“ segir
Regína Bjarnadóttir, forstöðumaður Greiningardeildar
Arion banka, spurð um þá efnahagslegu áhættu sem gæti
falist í afnámi haftanna.
„En ég tel að bankinn sé ágætlega í stakk búinn til að
takast á við þrýsting á krónuna. Við erum á góðum stað,
með góðan afgang af viðskiptajöfnuði, hallalaus fjárlög
og aukningu í innstreymi ferðamanna. Þannig að það
virðist vera góður tímapunktur fyrir okkur til takast á við
þær áhættur sem skapast við að aflétta höftunum,“ segir
Regína.
Hún bendir á að höftunum yrði aldrei aflétt eins og
hendi væri veifað.
„Það yrði alltaf gert varfærnislega og Seðlabankinn hefur
keypt mikið af gjaldeyri á síðastliðnum tólf mánuðum.“
ASKÝRING | 8
ÁHRIF GJALDEYRISHAFTA OG AFNÁMS ÞEIRRA
Haraldur
Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
80
MILLJARÐAR
Viðskiptaráð Íslands gerir ráð fyrir að
útfl utningstekjur ársins 2013 hefðu
verið um 80 milljörðum króna hærri
án haft a en raunin varð.
Björn Brynjúlfur Björnsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs
Íslands, segir ráðið sammála Samtökum atvinnulífsins
um mikilvægi þess að höftin verði afnumin. Hann segir
áhættuna við afnám gjaldeyrishafta fyrst og fremst
tengjast mögulegri veikingu krónunnar.
„Ef þessi veiking verður mikil þá getur hún skapað sama
vanda og myndaðist hérna árið 2008. Þá urðu einstaklingar
og fyrirtæki sem voru með verð- eða gengistryggð lán fyrir
búsifjum og starfsemi margra fyrirtækja raskaðist. Það er
hægt að standa að afnámi án þess að þetta verði raunin
með því að takmarka þessa áhættu. Það er annars vegar
hægt að halda útboð á erlendum gjaldeyri þar sem magnið
er takmarkað. Hins vegar væri hægt að hafa skatt á fjár-
magnsútflæði sem færi síðan smám saman lækkandi með
tímanum. Því er hægt að takmarka gengisveikingaráhætt-
una ef staðið er að afnáminu með skynsamlegum hætti,“
segir Björn.
Regína
Bjarnadóttir
forstöðumaður
Greiningardeildar
Arion banka.
Björn Brynjúlfur
Björnsson
hagfræðingur
Viðskiptaráðs
Gæti skapað sama vanda og árið 2008
Seðlabankinn ágætlega í stakk búinn