Fréttablaðið - 09.07.2014, Blaðsíða 10
9. júlí 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
DÝRALÍF Stóðhesturinn Spuni var
upp á sitt besta í fyrradag þegar
hann fékk loksins að hitta merar í
girðingu í Vesturkoti á Skeiðum.
Spuni sigraði í A-flokki á Landsmóti
hestamanna á Hellu í síðustu viku.
Finnur Ingólfsson, fyrrverandi
alþingismaður og ráðherra, býr í
Vesturkoti á Skeiðum þar sem fjöl-
skyldan er með hrossaræktarbú.
Dóttir Finns á stóðhestinn Spuna
sem hún fékk að gjöf frá foreldrum
sínum þegar hann var tveggja vetra
en hesturinn er átta vetra í dag.
Spuna var sleppt í gær út í girðingu
til mera en hann mun sinna 60–70
merum á næstu vikum. Gríðar-
leg ásókn er í að fá folald undan
honum og kostar folatollurinn 275
þúsund krónur. Eigendur Spuna
munu því hafa fengið rúmar 18
milljónir í folatoll þegar sumarið er
á enda. Spuni er hæst dæmdi hest-
ur í heimi. Hann fékk m.a. 10 fyrir
skeið, 10 fyrir vilja og 9 fyrir tölt
og brokk í dómi á sínum tíma, en
það er Þórarinn Ragnarsson hefur
séð um þjálfun Spuna. - mhh
Stóðhesturinn Spuni mun fylja á milli sextíu og sjötíu merar í sumar:
Fá allt að 20 milljónum í folatoll
VINSÆLL STÓÐHESTUR Spuni mun
sinna tugum mera í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ MHH
DÝRALÍF Gríðarlegar breytingar
hafa átt sér stað í stofnum sjófugla
á einum áratug hér við land. Fræði-
menn sem Fréttablaðið talaði við
segja að stofnhrun hafi sligað sumar
af þeim fuglategundum sem jafnvel
voru taldar helst til stofnstórar ekki
alls fyrir löngu.
Ástæðurnar geta verið af ýmsum
toga en þó ber fræðimönnum saman
um að hrun sílastofnsins árið 2005 sé
mikill áhrifa valdur
í þessari þróun.
Arnþór Garðarsson,
fuglafræðingur og
fyrrverandi pró-
fessor við Háskóla
Íslands, segir það
afar súrt í broti
að Hafrannsókna-
stofnun hafi hætt
rannsóknum sínum
á sílum. „Það er stundum eins og
menn haldi að gögnin komi fljótandi
til þeirra en því miður þarf að rann-
saka hluti til þess að afla þeirra,“
segir hann.
Ólafur S. Ástþórsson, sitjandi for-
stjóri Hafró, segir það vissulega rétt
að í ár hafi stofnunin ekki bolmagn
til að leggja í rannsóknarleiðangur
til að rannsaka síli eins og gert hefur
verið undanfarin ár. „Við höfum
þurft að draga saman og þetta er eitt
af því sem við sáum okkur ekki fært
að sinna, því miður,“ segir hann.
Rita, langvía og stuttnefja eiga orðið
erfitt uppdráttar hér við land eftir
magra tíð en einnig svartbakur, hvít-
mávur og sílamávur sem fyrir um
áratug þóttu víða
heldur margir og
fyrirferðarmiklir.
Ævar Petersen
fuglafræðingur
hefur í mörg ár talið
fjölda ritu, sérstak-
lega á Breiðafirði, og
hvítmávs á landinu
öllu. Benda þær tölur
til þess að hvít mávur
sé að hverfa og ritu hefur fækkað
sífellt í árafjöld á Breiðafirðinum.
Ekki eru gögnin hans Arnþórs meira
upplífgandi því þau bera það með sér
að svartfugl eigi í verulegum vand-
ræðum og hefur fækkað um helming
á tuttugu árum.
Eins og gefur að skilja hefur síla-
mávi fækkað verulega og má tala
um stofnhrun hjá honum. Það eru þó
ekki einungis sjófuglar sem berjast
í bökkum því snjótittlingur, sem
var einn útbreiddasti fugl landsins,
er orðinn frekar fátíður jafnvel á
stöðum sem áður voru hans mikil-
vægustu varpstöðvar.
Ekki er þó allt hábölvað því þessarar
þróunar hefur lítt orðið vart á Norð-
austurlandi. Þar virðist vera vin í
þessari eyðimörk sem við flestum
sjófuglum blasir. Þar að auki virðast
breyttar aðstæður vera súlu og díla-
skarfi í hag en þeim fjölgar og þríf-
ast fuglarnir vel. jse@frettabladid.is
Fuglalíf við landið
gjörbreytist á áratug
Fuglategundum sem töldust útbreiddar og jafnvel helst til áberandi fyrir nokkrum
árum fækkar svo að tala má um stofnhrun. Hrun sílastofnsins er talið hafa
mikil áhrif. Fræðimenn sýta að á sama tíma er rannsóknum á sílum hætt.
ÆVAR
PETERSEN
ARNÞÓR
GARÐARSSON
ÁGENGIR MÁVAR Það er víðast liðin tíð að menn kvarti yfir fjölda máva hér
við land en það hefðu þótt ótrúleg tíðindi ekki alls fyrir löngu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
1985 2005 til 2008
Langvía 1 milljón 700.000
Stuttnefja 500.000 300.000
Rita 650.000 570.000
(Heimild: Arnþór Garðarsson)
1990 2005 til 2009
Hvítmávur 8.000 2.400
(Heimild: Ævar Petersen)
(Fjöldinn mældur í pörum)
Fækkun nokkurra sjófugla
Skoðaðu úrvalið á Bilaland.is
BETRI BÍLAR Á
GÓÐU VERÐI
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
LAND ROVER DISCOVERY 3 HSE
Nýskr. 2005, ekinn 198 þús. km.
dísil, beinskiptur.
VERÐ kr. 3.590 þús.
Rnr. 281441.
Kletthálsi 11 -110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
RANGE ROVER SPORT HSE Dísil
Nýskr. 2008, ekinn 91 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Rnr. 281592
MERCEDES BENZ ML 320 4matic
Nýskr. 2007, ekinn 164 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 4.890 þús.
Rnr. 120318
TOYOTA LAND CRUISER 150GX
Nýskr. 2013, ekinn 16 þús km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð kr. 9.770 þús.
Rnr. 141959.
RANGE ROVER EVOQUE
Nýskr. 2012, ekinn 16 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 9.980 þús.
Rnr. 131092.
PORSCHE CAYENNE DÍSIL
Nýskr. 2011, ekinn 50 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
VERÐ kr. 11.900 þús.
Rnr. 142103.
MERCEDES BENZ GL320 CDI
Nýskr. 2008, ekinn 125 þús. km.
dísil, sjálfskiptur.
Verð kr. 7.950 þús.
Rnr. 131120.
Verð kr.
8.950 þús.
TÖKUM NOTAÐAN
UPPÍ NOTAÐAN!
GERÐU FRÁBÆR KAUP!
ALLT AÐ 80% LÁNAMÖGULEIKAR