Fréttablaðið - 09.07.2014, Page 16

Fréttablaðið - 09.07.2014, Page 16
9. júlí 2014 MIÐVIKUDAGUR| TÍMAMÓT | 16 1357 Hornsteinn er lagður að Karlsbrúnni í Prag. 1816 Argentína lýsir yfir sjálf- stæði. 1916 Vopnaður enskur togari tekur farþegaskipið Flóru á leið frá Reykjavík til Siglufjarðar með 100 farþega innanborðs og er því siglt til Bretlands. Farþegarnir voru sendir heim með öðru skipi síðar í sama mánuði. 1940 Mikið haglél gerir í Hruna- mannahreppi og lækir stíflast af aurburði. 1946 Skemmtigarðurinn Tívolí í Reykjavík opnaður. Þar eru meðal annars bílabraut, hring- ekja, Parísarhjól og danspallur. 1956 Tom Hanks, bandarískur leikari fæðist. 1964 Courtney Love, bandarísk tónlistarkona, fæðist. 2011 Suður-Súdan fær sjálfstæði frá Súdan. TÍMAMÓT MERKISATBURÐIR „Mér þótti í þessu tilfelli gott að nota andlitin, og svo er maður alltaf að hugsa um fólkið í kringum sig, alla kórana sína, vinkonur og vini. Það kviknar hugmynd og maður djassar sig einhvern veginn í gegnum þetta,“ segir listakonan Jóhanna V. Þórhalls- dóttir en hún opnar sína fyrstu mynd- listarsýningu á laugardaginn í lista- salnum Anarkíu í Kópavogi. Ásamt henni opnar myndlistarkonan Hulda Vilhjálmsdóttir einnig sýningu. Jóhanna, sem einnig er söngkona, stýrði hinum ýmsu kórum í rúm tuttugu ár og nýtir hún sér þá reynslu í mynd- listinni. „Andlitið er persónulegasta eign hverrar manneskju og flestir eyða stórum hluta ævi sinnar fyrir framan spegil. Fólk veltir fyrir sér nefi, eyrum, munni og augum og horfir gagnrýn- um augum á allar ójöfnur húð arinnar. Kór er samsafn af syngjandi andlitum þar sem séreinkennin hverfa inn í eina syngjandi heild og ég nýti mér það,“ segir Jóhanna, sem hefur á sínum langa ferli mikið spáð í andlit og svip einstak- linga. „Ég hef alltaf haft gaman af að vera með góðu fólki og alltaf verið með marga í kringum mig, og þá er einhvern veginn ekki annað hægt en að spá í and- litssvipinn. Annars er ég nú hálffeimin við að tala um þessi verk. Þetta er bara fyrsta vers. Ein lítil hugmynd. Bæði andlit og svo er líka slatti af brjóstum,“ segir Jóhanna og hlær. Sýningin dregur nafn sitt af stærsta verki Jóhönnu, sem hún kallar Þögla kórinn. „Ég reyni að finna tóninn í and- litum einstaklinganna. Það má líka örugglega greina að þetta er kvenna- kór enda stýrði ég þungavigtakórnum, Léttsveit Reykjavíkur með 120 konum, lengst af kórstjórnarferli mínum.“ Jóhanna hefur verið að mála í fimm ár. „Ég fór fyrst í Myndlistarskóla Kópa- vogs til Söru Vilbergsdóttur og svo í fornámið í Myndlistarskóla Reykja- víkur,“ segir Jóhanna spurð út í reynsl- una. Hún prófaði einnig nám í textíldeild Myndlistarskóla Reykjavíkur en kunni betur við sig í málningunni. „Ég er tengd olíunni, lyktin er svo góð og mér fannst hún bara skemmtilegri. Ég fór í Kópa- voginn aftur til Söru og líka til Bjarna Sigurbjörnssonar. “ Um tvö ár eru síðan að Jóhanna hætti sem kórstjóri en þýðir það að hún sé hætt að syngja? „Ég kenni söng í Söng- skóla Sigurðar Demetz og hætti nú seint að syngja. Ég er nýkomin úr stúdíói og verð með nýjan geisladisk í haust. Ég þagna ekki, þótt kórinn sé þögull,“ segir Jóhanna létt í lundu. Sýningin verður opnuð klukkan 15.00 í listasalnum Anarkíu í Kópavogi og stendur til 3. ágúst. gunnarleo@frettabladid.is Nýtir kórreynsluna í listaverkum sínum Listakonan Jóhanna V. Þórhallsdóttir stjórnaði mismunandi kórum í um tuttugu ár og nýtir sér þá reynslu í myndefni fyrir sýningu sem verður opnuð um helgina. Einn sögulegasti úrslitaleikur heimsmeistarakeppninnar í knatt- spyrnu fór fram þennan dag á Ólympíuleikvanginum í Berlín árið 2006. Þar mættust tvö evrópsk stórveldi, Ítalía og Frakkland, en bæði liðin eiga ríka sögu og knattspyrnuhefð. Leikurinn var gífurlega spennandi frá fyrstu mínútu en Frakkar voru fyrri til að skora og skoraði Zinedine Zidane fyrir Frakka úr vítaspyrnu á sjöundu mínútu leiksins. Einn mesti óvinur Zidanes, Marco Materazzi, varnarmaður Ítala, jafnaði leikinn á nítjándu mínútu leiksins en þeir tveir áttu eftir að eiga náin samskipti síðar í leiknum. Eftir níutíu mínútna leik var enn jafnt og því tók við æsi- spennandi framlenging. Í framlengingunni áttu þeir Zidane og Materazzi orðaskipti sem enduðu með því að Zidane skallaði Materazzi í bringuna og uppskar rautt spjald. Atvikið er fremur sorglegt þar sem leikurinn var sá síðasti sem Zidane lék á knatt- spyrnuferli sínum. Staðan var enn eitt mark gegn einu eftir framlengingu og víta- spyrnukeppni tók því við. Í henni nýttu Ítalir allar sínar spyrnur en Frakkinn David Trezeguet klúðraði sinni spyrnu og unnu Ítalir því leikinn og fögnuðu sínum fjórða heimsmeistaratitli. ÞETTA GERÐIST 9. JÚLÍ 2006 Ítalir verða heimsmeistarar í fj órða sinn FJÖLHÆF Jóhanna Þórhallsdóttir er hæfileikarík á hinum ýmsu sviðum listarinnar og opnar sína fyrstu listaverkasýningu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SÖGULEGT Hér sést Zinedine Zidane skalla Marco Materazzi í þessum sögulega úrslitaleik. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ESTHER ÁSGEIRSDÓTTIR Ferjuvaði 11, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 4. júlí. Útför hennar fer fram föstudaginn 11. júlí klukkan 13.00 frá Kapellunni í Fossvogi. Jóhann Einarsson Ásta Sigríður Stefánsdóttir Olga Jóhanna Stefánsdóttir Jón Þór Eyþórsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GYÐU ÞORSTEINSDÓTTUR Aflagranda 40, Reykjavík. Hildur Jóhannsdóttir Sveinbjörn Guðmundsson Garðar Jóhannsson Laufey Björnsdóttir Júlíus Björn Jóhannsson Martha Jensdóttir barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir og afi, ÞORVALDUR JÓNSSON framkvæmdastjóri, Kotárgerði 1, Akureyri, lést á heimili sínu 28. júní. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 14. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu á Akureyri eða Krabbameinsfélag Akureyrar. Harpa Viðarsdóttir Jón Viðar Þorvaldsson Anna Rósa Halldórsdóttir Karen Birna Þorvaldsdóttir Valþór Ingi Einarsson Sigrún Stella Þorvaldsdóttir Jón I. Þorvaldsson Sigrún Stella Jónsdóttir Helgi Jónsson Halla Harðardóttir Eiður Bekan og Egill Ernir og aðrir aðstandendur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÓLAFS HREIÐARS ÁRNASONAR Sóltúni 13. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 13G Landspítalanum við Hringbraut. Magnúsína Guðmundsdóttir Guðmundur Ólafsson Lára Erlingsdóttir Sjöfn Ólafsdóttir Erlingur Hjaltason Guðrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.