Fréttablaðið - 09.07.2014, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 09.07.2014, Blaðsíða 21
KYNNING − AUGLÝSING Fyrirtækjalausnir í ferðaþjónustu9. JÚLÍ 2014 MIÐVIKUDAGUR 3 Við búum allt til eftir óskum hvers viðskiptavinar. Hér er allt smíðað frá grunni, bæði rúmbotnarnir og dýnurnar en allar okkar dýnur eru með tvöföldu fjaðrakerfi. Við saumum einnig dýnuhlífar og lök og seljum sængur fatnað og handklæði. Mörg hótel taka einnig höfðagaf la og náttborð og við smíðum það, í samvinnu við arkitekta sem starfa fyrir hótelin eða í samstarfi við rekstrar- aðila viðkomandi gististaðar. RB rúm bjóða í raun allt sem þarf nema gestina sjálfa,“ segir Birna Katrín Ragnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri RB rúma. Ferðaþjónustan blómstrar RB rúm að Dalshrauni 8 í Hafnarfirði hafa starfað í sjötíu ár og séð hótelum og gisti- stöðum um allt land fyrir rúmum og sæng- urfatnaði í tæp fjörutíu ár. Frá árinu 2008 segir Birna mikla aukningu hafa orðið sem ekkert lát sé á og fyrirtækið sé þegar með pantanir fyrir mörg hótel fram á næsta ár. Viðhaldsþjónusta RB rúm eru eitt fárra fyrirtækja sem veita áframhaldandi þjónustu með rúm sín og dýnur. Birna segir mikið um innflutt rúm á markaðnum en framleiðsla RB rúma sé meira en samkeppnishæf. „Eftir áralanga notkun er hægt að koma með dýnurnar til okkar og við endur- vinnum þær fyrir sama aðila aftur,“ út- skýrir Birna. „Þetta erum við að gera þegar rólegt er að gera á hótelunum eða frá nóvember til febrúar. Það marg borgar sig að koma með dýnur í viðgerð og ef vel er hugsað um dýnurnar og dýnu hlífar notaðar endast þær árum saman. Ef eitt- hvert slys verður eða eitthvað skemmist erum við til staðar til að gera við. Það er mikið f lutt inn af rúmum og þá leitað til okkar þegar þau bila, en oft eru það rúm sem ekkert er hægt að eiga við,“ segir Birna. „Við ábyrgjumst gæði okkar framleiðslu og eigum marga fasta viðskiptavini um allt land. Það segir sína sögu að RB rúm hafa verið valin „Framúrskarandi fyrirtæki“ af Creditinfo fjögur ár í röð,“ segir Birna. Allt sem þarf nema gestina sjálfa RB rúm hafa framleitt dýnur og rúm í sjötíu ár. Fyrirtækið þjónustar hótel og gististaði um allt land og sérsmíðar frá grunni eftir óskum viðskiptavina. Birna Katrín Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri ábyrgist gæði og endingu dýna og rúma frá RB rúmum. RB rúm sérsmíða rúmbotna og dýnur eftir óskum viðskiptavina. Allar dýnur eru með tvöföldu fjaðrakerfi. Þá fást rúmföt og handklæði einnig í RB rúmum. Einnig sérsmíða RB rúm höfðagafla og náttborð. RB rúm eru til húsa að Dalshrauni 8, Hafnarfirði. Nánari upplýsingar er að finna á www.rbrum.is. Birna Katrín Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri RB rúma. Það segir sína sögu að RB rúm hafa verið valin „Framúrskarandi fyrir tæki“ af Creditinfo fjögur ár í röð. M Y N D /D A N ÍE L

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.