Fréttablaðið - 09.07.2014, Blaðsíða 22
KYNNING − AUGLÝSINGFyrirtækjalausnir í ferðaþjónustu MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 20144
STJÓRNENDANÁM FYRIR
AÐILA Í FERÐAÞJÓNUSTU
Samtök ferðaþjónustunnar,
í samstarfi við Opna háskólann
í HR, bjóða upp á hagnýtt
stjórnendanám fyrir aðila í
ferðaþjónustu.
Námið byggir á greiningu sem
gerð var á fræðsluþörf stjórnenda
innan ferðaþjónustunnar en
hún var unnin af sérfræðingum
Háskólans í Reykjavík, SAF og
stjórnendum innan greinarinnar.
Um er að ræða nám sem kennt
er í lotum frá 8. september til 8.
desember en félagsmenn í SAF
njóta sérstakra afsláttarkjara.
Námið skiptist upp í sjö lotur;
áætlanagerð, netmarkaðssetning,
sala og þjónusta, mannauðsmál
og árstíðasveiflur, sjálfbærni og
ábyrg ferðaþjónusta, verkefna- og
viðburðastjórnun og stefnumótun.
Nánari upplýsingar um loturnar
má finna á vef Opna háskólans í
HR www.hr.is/opnihaskolinn/
ferdathjonusta.
NÝTT GÆÐAKERFI Í FLOKKUN GISTISTAÐA
VAKINN er nýtt gæðakerfi Ferðamálastofu sem tekið var í notkun á
þessu ári. Með því eru meðal annars gististaðir flokkaðir með stjörnu-
gjöf.
Allir gististaðir á Íslandi með tilskilin leyfi geta óskað eftir að vera
flokkaðir. Panta þarf úttekt og að henni lokinni hefur staðurinn tvo
mánuði til að gera úrbætur ef þarf. Mikilvægt er að kynna sér hvað
stendur að baki hverjum flokki og koma upp þeirri aðstöðu og
þjónustu og spara þannig seinni heimsókn úttektaraðila.
Flokkunin er ekki lögboðin en henni fylgja margir kostir. Ferðamenn
styðjast gjarnan við stjörnugjöf þegar þeir velja gistingu á áfangastað.
www.ferdamalastofa.is
FERÐASÝNINGAR OG
VINNUSTOFUR
Íslandsstofa skipuleggur viðburði
erlendis og þátttöku á ýmsum
erlendum ferðasýningum og
landkynningum.
Má þar nefna sýningar á borð
við World Travel Market og
Scandinavia Show í Lundúnum,
Top Resa í París, JATA í Tókýó,
MITT í Moskvu, Fitur í Madríd,
TUR-sýninguna í Gautaborg,
ITB-sýninguna í Berlín og fleiri
áhugaverðar og gagnlegar
sýningar.
Þá heldur Íslandsstofa vinnu-
stofur og kynningarfundi erlendis
fyrir söluaðila Íslandsferða.
Lista yfir ferðasýningar og
vinnustofur sem Íslandsstofa
stefnir að þátttöku í frá hausti
2014 til vors 2015 er hægt að
skoða á islandsstofa.is.
Heimild: islandsstofa.is