Fréttablaðið - 09.07.2014, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 9. júlí 2014 | LÍFIÐ | 23
„Aðstæður til kvikmynda gerðar
voru ekki endilega jákvæðar en við
ætluðum að gera myndina í fyrra.
Það gekk ekki upp. Svo fengum við
smá styrk og ætlum að æða í þetta,“
segir Sverrir Þór Sverrisson, betur
þekktur sem Sveppi. Í vikunni var
skrifað undir samning um fjórðu
Sveppamyndina, Algjör Sveppi og
Gói bjargar málunum, en mynd-
in verður sýnd hjá Sambíó unum
í nóvember. Hætt var við fram-
leiðslu myndarinnar í fyrra því hún
fékk ekki styrk frá Kvikmyndasjóði
Íslands en í ár var annað uppi á ten-
ingnum.
„Við byrjum í tökum 21. júlí og
verðum að því fram í miðjan ágúst.
Það sem drífur okkur áfram er leik-
gleðin. Myndin verður í sama stíl og
fyrri myndirnar og viljum við fyrst
og fremst gera það að fara í bíó að
skemmtilegri upplifun fyrir krakka
eins og ég man eftir sjálfur þegar
ég var lítill,“ bætir Sveppi við. Hann
er dulur um söguþráðinn en getur
aðeins gefið upp um nýju myndina.
„Vonda kallinum sem var í fyrstu
myndinni, Algjör Sveppi og leitin að
Villa, bregður fyrir. Við Villi njósnum
aðeins um hann og þá kemur ýmis-
legt slæmt í ljós,“ segir Sveppi. Hann
skrifar handrit myndarinnar ásamt
leikstjóranum Braga Þór Hinriks-
syni. Nú leita þeir að skemmtilegum
aukaleikurum í myndinni.
„Við viljum ráða einhverja inn fyrir
fullorðna fólkið og vera með einhver
skrýtin andlit sem maður þekkir úr
einhverju öðru en bíómyndum. Það er
lykilatriði að skemmta fullorðnum, þá
fylgja börnin með.“ - lkg
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
GÓÐ KAUP
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
HÆSTA EINKUNN
Skrýtin andlit í nýrri Sveppamynd
Kvikmyndin Algjör Sveppi og Gói bjargar málunum fer í tökur 21. júlí næstkomandi.
SKRIFA UNDIR MEÐ BROS Á VÖR Bragi Þór, Alfreð Ásberg hjá Sambíó-
unum og Sveppi. MYND/ÚR EINKASAFNI
UN Women, samtök sem fara með
umboð Sameinuðu þjóðanna til
að vinna að jafnrétti kynjanna og
stuðla að því að stefnumótun í þró-
unarstarfi taki mið af jafnréttis-
sjónarmiðum og réttindum kvenna
í samræmi við alþjóðleg markmið,
útnefndu nýjan velgjörðarsendi-
herra samtakanna, Emmu Watson.
Watson er hvað best þekkt
fyrir hlutverk sitt sem Hermione
Granger í Harry Potter-kvikmynd-
unum. Hún er virt leikkona og
nýlega útskrifuð úr Brown-háskól-
anum í Bandaríkjunum, en er
einnig þekkt fyrir störf sín í þágu
hinna ýmsu góðgerðarsamtaka. - ósk
Emma Watson
til UN Women
EMMA WATSON AFP/NORDICPHOTOS
Tveimur mánuðum eftir lyftu-
atvikið mikla er Solange loksins
tilbúin að ræða slagsmálin við Jay
Z, en ekki í neinum smáatriðum.
Söngkonan var í viðtali við
tímaritið Lucky fyrir ágústhefti
blaðsins. Í viðtalinu vísar hún í
slagsmálin sem „atvikið“.
„Það sem er mikilvægt er að
ég og fjölskylda mín erum í góðu
sambandi,“ segir hún. „Það sem
við höfum að segja um atvikið
var allt sagt í yfirlýsingunni sem
við gáfum út og við höfum öll
fundið frið.“
Þann 5. maí síðastliðinn réðst
Solange Knowles, litla systir
söngkonunnar Beyoncé, á rappar-
ann Jay Z sem er jafnframt eigin-
maður Beyoncé, í lyftu á Stand-
ard-hótelinu í New York. - ósk
Solange ræðir
lyft uatvikið
SOLANGE KNOWLES AFP/NORDIC PHOTOS