Fréttablaðið - 09.07.2014, Síða 34

Fréttablaðið - 09.07.2014, Síða 34
9. júlí 2014 MIÐVIKUDAGUR26 Fylgist með á Instagram Allar nánari upplýsingar veitir Svan G. Guðlaugsson sölufulltrúi sími: 697-9300 svan@miklaborg.is Glæsilegt 350 fm einbýlishús á sjávarlóð Húsið var nánast allt endurnýjað árið 2008 Vandaðar innréttingar, tæki og gólfefni Eigendur skoða skipti á ódýrara sérbýli eða hæð Lágmúla 4 www.miklaborg.is Gerðhamrar1 1 2 Reykjavík Óskar R. Harðarson hdl. og löggiltur fasteignasali Verð: 109 millj. Fyrsta flokks hús á besta stað visir.is Meira um heimsmeistara- mótið í Brasilíu. SPORT KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands- liðið spilar sinn fyrsta heima- leik í fimm ár í kvöld er stelp- urnar spila vináttulandsleik gegn Dönum að Ásvöllum klukkan 19.15. Liðin mætast svo í Stykkishólmi á morgun en leikirnir eru liður í undirbúningi fyrir Evrópukeppni smáþjóða sem fram fer í Austur- ríki um miðjan mánuðinn. „Það er frábært framtak hjá KKÍ að vera með þessa heima- leiki. Ein af ástæðunum fyrir því að ég tók þetta starf að mér er sú að KKÍ er að fara að leggja meira í kvennalandsliðið og styðja við bakið á stelpunum,“ segir Ívar Ásgrímsson landsliðsþjálfari en þetta verða hans fyrstu verkefni með liðið síðan hann tók við starf- inu af Sverri Sverrissyni. „Stefnan er sú að ná árangri og komast í Evrópukeppni. Það er nóg af verkefnum fram undan. Við stefnum að því að fá leiki um jólin og svo eru það smáþjóðaleik arnir. Ef við vinnum Evrópukeppni smá- þjóða þá bíður okkar sjálf Evr- ópukeppnin næsta sumar. Þangað ætlum við að komast.“ Ætla að komast á EM Rekstur KKÍ hefur lengi verið erfiður og árið 2009 var landsliðið lagt niður í þrjú ár. Nú eru breyttir tímar og á að spýta hraustlega í lófana. Hvað sér þjálfarinn samt fyrir sér að liðið geti náð langt á næstu árum? „Ég er nýtekinn við og svo þurf- um við að sjá hvernig gengur í sumar. Við erum samt með nokk- uð ungt lið í bland við leikreyndar stelpur. Eins og ég segi ætlum við okkur í Evrópukeppni A-liða næsta sumar og að vinna þetta mót sem við erum á leið í núna,“ segir Ívar ákveðinn. En er innistæða fyrir því að komast með þetta lið á EM A-þjóða? „Ég er á því. Í dag erum við sterkari í kringum teiginn en oft áður. Við erum með stærri stelp- ur. Hildur Björg úr Hólminum er á leið til Bandaríkjanna og ég býst við miklu af henni í framtíð- inni enda hefur hún verið að taka gríðarlegum framförum. Svo erum við líka með Bryndísi Guðmunds, Rögnu Margréti og Marín Lauf- eyju. Þetta eru mjög sterkar stelp- ur í teignum,“ segir þjálfarinn og bætir við að það muni síðan mikið um að eiga frábæran leikmann eins og Helenu Sverrisdóttur. „Helena er á heimsmælikvarða og það mun auðvitað mikið mæða á henni. Þetta er svo sannarlega eitt- hvað til þess að byggja á til fram- tíðar og verður gaman að byggja þetta lið upp.“ Nauðsynlegt að fá leiki Þar sem það er langt síðan stelp- urnar spiluðu síðast býst Ívar ekki við of miklu í leik kvöldsins og fagnar því að fá æfingaleikina. Þeir séu nauðsynlegir í undirbún- ingi fyrir mótið í Austurríki. „Það eru um þrír mánuðir síðan stelpurnar spiluðu síðast og því vantar eðlilega upp á leik formið. Við þurfum nauðsynlega að fá þessa leiki gegn Dönum og ég býst við því að í fyrri leiknum verði stelpurnar svolítið stirðar. Ég held að liðið verði strax orðið betra í seinni leiknum í Hólminum,“ segir landsliðsþjálfarinn en hann á von á tveimur hörkuleikjum gegn dönsku liði sem er undir stjórn íslenska þjálfarans Hrannars Hólm. „Hrannar kemur með mjög sterkt lið til landsins. Leikir þess- ara þjóða hafa verið mjög jafnir í gegnum tíðina þó svo að Danir hafi verið að vinna okkur á Norður- landamótinu. Ég mun keyra mikið á liðinu í þessum leikjum og við verðum að hugsa um að hlaupa rétt. Gera það sem við höfum verið að æfa. “ Ívar er ekki að stýra landsliðinu í fyrsta skipti en hann var síðast með liðið árið 2004. „Þá voru Helena, María Ben og Bryndís að spila sína fyrstu lands- leiki en nú eru þær leikreyndustu leikmennirnir.“ henry@frettabladid.is Helena í heimsklassa KKÍ er að spýta í lófana með kvennalandsliðið í körfuknattleik og stefnan er að koma liðinu á EM næsta sumar. Í fyrsta skipti í langan tíma er horft til framtíðar. KRAFTUR OG METNAÐUR Það er verið að blása í herlúðra hjá kvennalandsliðinu og liðið stefnir hátt. Ívar Ásgrímsson er þjálfari liðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI „Ég er afskaplega undrandi á þessu,“ sagði Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, við Fréttablaðið í gær þegar ljóst var að Þýskaland hefði komist inn bakdyramegin á HM sem fer fram í Katar í janúar á næsta ári. Þegar ljóst varð að ekkert lið frá Eyjaálfu tæki þátt ákvað Alþjóðahandknattleikssambandið, IHF, að hleypa inn þjóðinni sem náði besta árangri á síð- asta HM en komst ekki á mótið núna. Það var Þýska- land en liðið hafnaði í fimmta sæti HM 2013 á Spáni. EHF tilnefndi hins vegar þrjár varaþjóðir eftir að undankeppni HM 2015 lauk miðað við árangur lið- anna á EM í Danmörku í fyrra. Ísland hafnaði þar í fimmta sæti og var því fyrsta varaþjóð Evrópu. „Þýskaland var ekki einu sinni á meðal þátttökuþjóða í Danmörku,“ benti Einar á. „Frá því að síðasta heimsmeistarakeppni fór fram hafa álfukeppnir verið spilaðar um allan heim þar sem þátttökuréttur á HM hefur verið í húfi. Það hlýtur að koma í hlut handknattleikssam- bandsins í Evrópu að úthluta sætum til Evrópuþjóða.“ Málið var enn á frumstigi í gær en Einar sagði ljóst að HSÍ leiti allra leiða til að fá niðurstöðu í þessum málum. - esá Við viljum skýringar Þýskaland fékk óvænt sæti á HM í Katar á næsta ári. EINAR ÞORVARÐARSON Allt um HM á Vísi 20.00 HOLLAND–ARGENT- ÍNA Seinni undanúrslita- leikurinn á HM 2014 í fótbolta fer fram í kvöld þegar Argentína og Holland eigast við í Sao Paulo. Þessi sömu lið mættust í úrslitaleiknum í Argentínu árið 1978 þar sem heimamenn höfðu sigur. Augu heimsins verða á Lionel Messi sem hefur spilað vel á mótinu. Getur hann farið með argentínska liðið alla leið í úrslit og átt möguleika á að vinna HM líkt og Maradona? FÓTBOLTI Þýskaland tryggði sér sæti í úrslitaleiknum á HM í Brasilíu með stórsigri á heimamönnum, 7-1. Þjóðverjar gerðu út um leikinn með fjórum mörkum á sex mínútna kafla í fyrri hálfleik. Miroslav Klose skoraði sitt sextánda HM-mark, sem er met. Toni Kroos (2), Andre Schürrle (2), Thomas Müller og Sami Khedira skoruðu hin mörk Þýskalands en Oscar fyrir Brasilíu í blálokin. - esá Klose bætti metið er Þjóðverjar niðurlægðu Brasilíumenn á HM SEXTÁN MÖRK Nafn Miroslavs Klose er komið í sögubækur knattspyrnunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.