Fréttablaðið - 11.08.2014, Síða 2

Fréttablaðið - 11.08.2014, Síða 2
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SPURNING DAGSINS 20%afsláttur Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. FÓLK „Læknarnir sögðu við okkur að þetta væri svo sjaldgæft að þeir gætu eiginlega ekki sagt neitt með vissu varðandi hætturn- ar,“ segir Jóhann Helgi Heiðdal en hann eignaðist eineggja þrí- buradrengi ásamt danskri konu sinni, Karin Kristensen, aðfara- nótt sunnudags. „Það er erfitt að átta sig á þessu, við erum enn að melta þetta.“ Þríburarnir voru í sama æða- belgnum en hver í sínum líknar- belg og höfðu allir sömu fylgju. Ekki var um tæknifrjóvgun að ræða hjá parinu og því var þung- unin náttúruleg. Líkurnar á því að þríburar verði til með þessum hætti eru um einn á móti hundrað milljónum samkvæmt tölum frá lækninum William Gilbert, for- stjóra fæðingardeildar Sutter- spítala í Kaliforníu. Erfitt er þó að ákvarða líkurnar nákvæmlega. Meðgangan gekk vel en eftir að í ljós kom að Karin gengi með eineggja þríbura sem deildu sömu fylgju fóru þau í vikulega skoðun. „Þetta var svolítið sjokkerandi,“ viðurkennir hinn nýbakaði faðir og hlær. „Ég var stressaður þegar ég hélt að þetta væri eitt barn og svo fórum við í sónar og þá kemur bara í ljós að við eigum von á þremur. Fram að 28. viku vorum við mjög stressuð en eftir það róuðumst við aðeins.“ Drengirnir þrír fæddust eftir tæplega 31 viku meðgöngu. „Þetta gerðist gríðarlega hratt. Hún missir vatnið og hríðirnar byrja mjög sterkt. En öllum heils- ast mjög vel núna, bæði móður og börnum.“ „Þetta er stórmerkilegt,“ segir nýburalæknirinn Þórður Þórkels- son. „Þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri um þetta þegar Íslend- ingar eru annars vegar.“ Þórður segir aukna hættu á vandamálum á meðgöngunni þegar fóstur deila sömu fylgju og sama æðabelg. Til að mynda geta komið upp kvillar í kjölfar þess að meira af næringu og blóðflæði fari til eins fósturs- ins en hinna. Fjölskyldan dvelst enn á spít- ala en fær að fara heim eftir mánuð ef allt gengur vel. Amma drengjanna þriggja, Brynja Siguróladóttir, segist hafa grátið af gleði í allan gærdag. „Það var talið að þetta gæti ekki gengið og þeim ráðlagt í upphafi að láta eitt fara en þau gátu ekki hugsað sér það. Þeir pluma sig vel, þessir strákar, það er alveg ljóst.“ nanna@frettabladid.is Íslenskum eineggja þríburum heilsast vel Íslenskur maður eignaðist með danskri konu sinni þríburadrengi aðfaranótt sunnudags eftir náttúrulega þungun. Líkurnar á því að slíkt gerist eru einn á móti milljón. „Ég var stressaður þegar ég hélt að þetta væri eitt barn,“ segir faðirinn. SMÁIR Þríburarnir eru smáir eins og sjá má. Sá stærsti fæddist sjö merkur, sá næst- stærsti sex og sá minnsti fimm og hálf mörk. Þeim heilsast vel þrátt fyrir smæðina. MYND/ÚR EINKASAFNI Þetta er stórmerkilegt. Þórður Þórkelsson nýburalæknir. SJÁVARÚTVEGUR Viðskiptabann Rússa á Norðmenn gæti haft mikil áhrif á íslensk fyrirtæki í fisk- framleiðslu og útflutningi á fiski. Þetta segir Jón Steinn Elíasson, formaður Samtaka fiskframleið- enda og útflytjenda. Ísland er sem kunnugt er ekki á viðskiptabannlista Rússa sem þeir gáfu út fyrir nokkrum dögum gagnvart nokkrum þjóðum í refsi- skyni vegna stuðnings við Úkraínustjórn. Norðmenn munu vegna bannsins stefna að því að verða mjög fyrirferðarmiklir á öðrum mörkuðum í Evrópu sem íslenskir seljendur eru á, aðallega í sölu eldislax og þorsks. Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFU) eru þau stærstu hér á landi í fisk- vinnslu og sölu án útgerðar. Að þeim eiga um fjöru- tíu fyrirtæki aðild, mest millistór fyrirtæki. Staðan er tvísýn fyrir þessi fyrirtæki, sagði Jón Steinn, formaður SFU, í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi. Búist er við að Norðmenn auki sölu sína um 5 til 10 prósent og geta það orðið allt að 80 þúsund tonn af fiski sem fara á markað umfram það sem þeir selja vanalega. Norðmenn selja mikið af laxi auk þorsks en íslensku fyrirtækin selja bolfisk sem ódýr lax frá Noregi keppir við. Með auknum umsvifum Norðmanna á Evrópumarkaði getur ferskfiskmark- aður Íslendinga orðið illa úti en Jón segir erfitt að meta hvert tapið gæti orðið. - lb Viðbrögð Norðmanna við viðskiptabanni Rússa gætu haft áhrif hér á landi: Útflytjendur orðnir uggandi ÁHRIFA GÆTIR VÍÐA Fiskútflytjendur í Noregi og á Bret- landi eru þegar farnir að finna fyrir viðskiptabanni Rússa. KABÚL, AP Að minnsta kosti fjórir óbreyttir borgarar fórust og rúm- lega 35 særðust í sjálfsmorðsárás í Kabúl, höfuðborg Afganistans, í gær. Talíbanar lýstu yfir ábyrgð á árásinni. Árásarmaðurinn sprengdi sig í bíl sínum í grennd við brynvarða bíla á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO). Talsmenn NATO segja engan úr sínum röðum hafa særst í árásinni, sem er til rannsóknar hjá þeim. „Við hörmum innilega mannfall afgönsku borgaranna vegna þessa sorglega atburðar,“ segir í yfirlýsingu NATO. - bá Maður sprengdi sjálfan sig í höfuðborg Afganistans í gær: Talíbanar gera á árás á NATO EFTIR SPRENGINGUNA Talíbanar hafa sagst ætla að fjölga árásum sínum á öryggis- sveitir Afgana. Hersveitir Bandaríkjamanna og NATO stefna á að yfirgefa landið um næstu áramót. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SUÐUR-KÓREA Suður-kóresk yfirvöld hafa mikinn áhuga á að fjárfesta í ísraelska Iron Dome-eldflaugavarnarkerfinu að sögn fram- leiðanda þess, Rafael Advanced Defense Syst- ems, í gær. Iron Dome, sem mætti íslenska sem „Járn- hvelfinguna“, notar fjarstýrðar eldflaugar til að granda Katyusha-flugskeytum sem eru mikið notuð af skæruleiðahreyfingum í Pal- estínu og Líbanon. Árangurshlutfall kerfisins hefur verið um 90 prósent í átökunum sem nú standa yfir fyrir botni Miðjarðarhafs og hefur það aukið áhuga erlendra fjárfesta á kerfinu. Formaður Rafael, Yedidia Yari, segir að áhuga suður-kóreskra yfirvalda megi rekja til hræðslu þeirra við flugskeyta- og eldflauga- árásir frá nágrönnum sínum í norðri. Iron Dome hefur grandað á þriðja þús- und flugskeyta síðan átökin milli Ísraels og Palestínu hófust fyrir liðlega mánuði. Hver og ein varnarflaug kostar á bilinu 30 til 50 þúsund bandaríkjadali, næstum 6 milljónir króna. Suður-Kóreumenn vilja fjárfesta í eldflaugavarnarkerfi Ísraelsmanna til að tryggja varnir gegn nágrönnum sínum í norðri: Vilja fá Járnhvelfinguna til Suður-Kóreu Gunnar, munu liðin vinna leiksigur? „Já, ef það er nógu mikið í þau spunnið.“ Gunnar Smári Jóhannesson stendur fyrir Íslandsmeistaramóti í spunaleik sem fer fram á Rifi í lok mánaðar. ÁRANGURSRÍK VÖRN Járnhvelfingin hefur grandað næstum níu af hverjum tíu eldflaugum sem skotið hefur verið á Ísrael undanfarnar vikur og mánuði. BJÖRGUN Leki kom að lítilli trillu sem stödd var utan við Hólahóla á Snæfellsnesi um fimmleytið í gær en einn maður var um borð í bátnum. Björgunarskipið Björg á Rifi var kallað út auk þess sem nærstaddir bátar sigldu á staðinn til aðstoðar. Þyrla Land- helgisgæslunnar var við æfing- ar skammt frá og var því einnig send til aðstoðar. Það liðu aðeins örfáar mínútur þar til aðstoð barst og því engin hætta lengur á ferðum. Björgunarskipið freistaði þess að bjarga bátnum en veður var ágætt á svæðinu. - ka Björgun gekk greiðlega: Leki í fiskibát SAMFÉLAGSMÁL Alls fengu 26 verkefni styrk úr Samfélagssjóði Landsbankans í gær. Tvö verk- efni hlutu hvort um sig eina millj- ón króna, átta verkefni 500 þús- und krónur hvert og loks fengu sextán verkefni 250 þúsund króna styrk. Í tilkynningu segir að um 400 umsóknir hafi borist sjóðnum en honum er ætlað að styðja við þá sem sinna mannúðar- og líkn- armálum, menntamálum, rann- sóknum og vísindum, verkefnum á sviðum menningar og lista, for- varnar- og æskulýðsstarfi og sér- tækri útgáfustarfsemi. - jhh Tveir fengu milljón í styrk: 26 fengu styrki JÓN STEINN ELÍASSON

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.