Fréttablaðið - 11.08.2014, Blaðsíða 10
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
FÓLK „Það er mjög óvenjulegt
að geta skíðað niður þetta fjall,
ekki síst í júlí en það var einmitt
snilldin við þetta,“ segir Tómas
Guðbjartsson, hjarta- og lungna-
skurðlæknir, sem renndi sér
nýverið niður Herðubreið á skíð-
um en óvenju mikill snjór hefur
verið í fjöllum á norðanverðu
hálendinu í sumar.
Þetta var í fimmtánda sinn
sem Tómas gekk á Herðubreið en
segir að þessi ferð hafi verið sú
allra eftirminnilegasta enda löng
og brött brekka niður fjallið. „Það
var hópur frá Fjallafélaginu sem
hafði gengið á fjallið helgina á
undan og þau sögðu mér að þarna
væri mikill snjór. Ég var með
fjallaskíðin í bílnum og gat ekki
hætt að hugsa um þetta, enda
lengi dreymt um að skíða þarna
niður. Síðan plataði ég konuna til
þess að keyra með mér að rótum
fjallsins,“ segir Tómas, sem var
um tvo og hálfan tíma að kom-
ast upp á topp með fjallaskíðin á
bakinu. Tómas kveðst ekki vera
sá fyrsti til þess að skíða niður
Herðubreið en þó hafi ekki mjög
margir látið á þetta reyna. Veðr-
ið var gott á leiðinni og það tók
Tómas ekki nema um korter að
renna sér niður. „Það var ekki
alveg heiðskírt en það var sól og
frábært skyggni. Hlýtt veður olli
þó grjóthruni í hamrabeltinu sem
gerði gönguna varasama en það
er hætta sem ég vissi af.“
Tómas er mikill fjallgöngumað-
ur en hann starfaði sem fjallaleið-
sögumaður á meðan hann var í
læknanámi. Hann segir frábært
að geta sameinað fjallgönguna og
skíðaáhugann. „Mér finnst alveg
magnað að geta prílað þarna upp
og farið niður á skíðunum. Þetta
er svolítið nýja æðið í fjalla-
mennsku á Íslandi og sem betur
fer eru sífellt fleiri að uppgötva
fjallaskíðin. Í rauninni fara skíðin
miklu betur með líkamann og þá
sérstaklega hnjáliðina. Uppgang-
an er auðveld en mest munar um
minna álag á hnén, þegar gengið
er aftur niður.“
Tómas lét ferðina á Herðubreið
þó ekki nægja í sumar. „Þetta er
annað sumarið í röð sem ég er
með skíðin í bílnum á ferðalagi
um landið. Ég skíðaði með Ólafi
Má Björnssyni augnlækni niður
Kverkfjöllin í sumar og svo skellt-
um við okkur einnig niður Birnu-
dalstind í sunnanverðum Vatna-
jökli. Svo fór ég á gönguskíðum
inn í Öskju að skoða hamfara-
hlaupið svo sumarfríið mitt var í
rauninni skíðafrí.“
kristjana@frettabladid.is
Fór á skíðum niður Herðubreið
Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir, renndi sér á skíðum niður Herðubreið í sumar en afar mikill snjór hefur verið í fjöllum
á norðanverðu hálendinu í júlí. Tómas segir það færast í aukanna að skíða niður hin ýmsu fjöll og kallar þetta nýjasta æðið á Íslandi.
„SELFIE“ Á TOPPNUM Tómas var einn
á ferð þegar hann fór upp Herðubreið
og því engin önnur leið en að taka eina
góða „selfie“ á toppnum.
ÚR KVERKFJÖLLUM Hér sést Tómas á fleygiferð niður Kverkfjöllin en í baksýn má
sjá Dyngjujökul. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON
Á TOPPI HERÐUBREIÐAR Hér sjást Kverkfjöll og Herðubreiðartögl í baksýn.