Fréttablaðið - 11.08.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 11.08.2014, Blaðsíða 8
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Prófaðu reiknivélina á www.on.is og sjáðu hvað ísskápurinn, frystikistan og önnur eldhústæki nota mikið rafmagn. Við erum heppin að náttúran skuli sjá okkur fyrir meira en nóg af orku til að létta okkur lífið svo um munar. Forsenda þess að við getum farið vel með auðlindirnar og lækkað kostnað er að vita hvað er í gangi og hversu mikla orku raftækin nota að staðaldri. Á on.is er handhæg reiknivél sem auðveldar þér að sundurliða orkunotkun heimilisins og meta kostnaðinn í heild og við einstaka þætti. Orka náttúrunnar framleiðir og selur rafmagn til allra landsmanna á samkeppnishæfu verði. Við viljum nýta auðlindir af ábyrgð og nærgætni og bæta lífsgæðin í nútíð og framtíð. ORKA NÁTTÚRUNNAR Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík · Sími 591 2700 · www.on.is · on@on.is HVAÐ FER MIKIL ORKA Í AÐ HALDA MJÓLKINNI KALDRI? Búist er við því að Seðlabanka- stjóri verði skipaður í vikunni, jafnvel í dag. Ekki er víst að sátt verði á meðal stjórnmálamanna um skipanina. Már Guðmundsson var skipaður til fimm ára þann 20. ágúst 2009, í ríkisstjórnartíð Sam- fylkingarinnar og Vinstri grænna. Hann tók við af Norðmanninum Svein Harald Øygard, sem hafði verið settur tímabundið eftir að lögum um Seðlabanka Íslands var breytt fyrr á sama ári. Ein af helstu breytingum í nýju lögun- um var að seðlabankastjórum var fækkað úr þremur í einn. Þar með varð ljóst að Davíð Oddsson, Eirík- ur Guðnason og Ingimundur Frið- riksson myndu ekki gegna stöðum seðlabankastjóra lengur. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við í fyrravor og frá þeim tíma hefur á köflum gætt pirrings hjá stjórn- inni í garð núverandi seðlabanka- stjóra. Þessi pirringur var ber- sýnilegur á Viðskiptaþingi þann 12. febrúar síðastliðinn, sama dag og Seðlabankinn birti greiningu á efnahagslegum áhrifum skulda- leiðréttingarinnar. „Það er út af fyrir sig áhugaverð forgangsröðun að Seðlabankinn skuli leggja mikla vinnu í slíka greiningu óumbeðinn, á meðan ríkisstjórn Íslands bíður enn eftir greiningu á greiðslujöfn- uði Íslands sem óskað var eftir fyrir nokkru síðan,“ sagði Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra í ræðu á þinginu. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tilkynnti síðar í febrúar að staða seðla- bankastjóra yrði auglýst að nýju. Bjarni rökstuddi ákvörðunina með því að hann vildi endurskoða þær breytingar sem gerðar voru á lögum um Seðlabanka Íslands í febrúar 2009 og fleiri þætti er varða lög um Seðlabanka Íslands. Staðan yrði auglýst að nýju, sam- hliða þessum breytingum. Nefnd var skipuð til þess að móta tillögur að breytingunum en þær tillögur hafa ekki verið gerðar opinberar. Af þeim tíu, sem sóttu um stöð- una, þóttu þeir Már Guðmundsson, Friðrik Már Baldursson og Ragnar Árnason vera hæfastir. jonhakon@frettabladid.is Bitbein í bankanum Fjármálaráðherra þarf að skipa í stöðu seðlabankastjóra fyrir 20. ágúst. Þeir Már Guðmundsson, Ragnar Árnason og Friðrik Már Baldursson koma allir til greina. Friðrik Már Baldursson fæddist árið 1957. Hann lauk B.Sc.-prófi í stærðfræði og stærðfræðilegri tölfræði frá Háskólanum í Gautaborg árið 1982. Árið 1985 lauk hann við Ph.D.-gráðu í tölfræði og hagnýtri líkindafræði frá Columbia-háskóla. Eftir það var hann lektor við Columbia til ársins 1988. Þá flutti Friðrik heim til Íslands og vann hjá Þjóðhagsstofnun árin 1988-1999. Síðasta árið þar var hann settur forstjóri. Árið 1994 lauk Friðrik Már M.Sc.-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands. Friðrik hefur unnið við fræðistörf og kennslu allt frá árinu 1999, bæði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Friðrik hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir íslensk stjórnvöld. Hann hefur meðal annars verið varamaður og aðalmaður í bankaráði Seðlabankans og leiddi samningavið- ræður við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn fyrir Íslands hönd árið 2008. Friðrik Már Baldursson Már Guðmundsson, núverandi seðlabankastjóri, er fæddur árið 1954. Hann lauk BA-gráðu í hagfræði frá háskólanum í Essex í Englandi árið 1979. Árið 1980 lauk hann svo M-phil.-gráðu í hagfræði frá háskólanum í Cam- bridge í Englandi. Már var hagfræðingur í Seðlabanka Ís- lands allt til ársins 1988. Það ár varð Ólafur Ragnar Gríms- son fjármálaráðherra og réð Má sem efnahagsráðgjafa sinn. Már starfaði fyrir ráðherrann allt til ársins 1991. Það ár var hann ráðinn forstöðumaður hagfræðisviðs Seðla- banka Íslands og gegndi því starfi til ársins 1994, þegar hann varð aðalhagfræðingur Seðlabankans. Hann var aðalhagfræðingur til ársins 2004. Már varð síðar aðstoðarframkvæmdastjóri peningamála- og hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans í Basel. Hann gegndi því starfi allt þar til hann varð skipaður seðlabankastjóri á Íslandi sumarið 2009. Már Guðmundsson Ragnar Árnason er fæddur 1949. Hann lauk Cand.Oecon.- prófi í hagfræði og BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1974. Hann lauk svo M.Sc.-prófi í hagfræði frá London School of Economics árið 1975 og M.Sc. í hagrannsóknum frá sama skóla tveimur árum seinna. Hann lauk Ph.D.-prófi frá Háskólanum í Bresku-Kólumbíu í Vancouver í Kanada árið 1984 með áherslu á auðlinda- hagfræði. Hann var stundakennari við sama háskóla á árunum 1977-1980. Hann var líka hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun á árunum 1974-1977. Hann hefur verið prófessor í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands frá 1989 en var fyrst ráðinn lektor við deildina árið 1980. Ragnar hefur gegnt fjölmörgum trún- aðarstörfum fyrir stjórnvöld. Hann situr í bankaráði Seðlabanka Íslands. Hann var einnig skipaður formaður ráðgjafaráðs fjármála- og efnahags- ráðherra fyrir ári. Ragnar Árnason Á ÁRSFUNDI SEÐLABANKA ÍSLANDS Það er Bjarni Benediktsson fjármálaráð- herra sem skipar seðla- bankastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ VILHELM.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.