Fréttablaðið - 11.08.2014, Blaðsíða 16
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Ástkær bróðir minn og frændi okkar,
JÓN ÁRNI VILMUNDARSON
loftskeytamaður og fyrrv.
deildarstjóri hjá Landssímanum,
Dunhaga 11,
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
miðvikudaginn 13. ágúst kl. 13.00.
Þórunn Vilmundardóttir
Kolbrún Baldursdóttir Guðmundur Fr. Ottósson
Guðmundur Einarsson Alda Elíasardóttir
Guðmundur B. Salómonsson Svava Benediktsdóttir
önnur frændsystkini og makar.
Ástkær eiginmaður, faðir
og tengdafaðir okkar,
GUÐMUNDUR S. JÓNSSON
læknir og eðlisfræðingur,
lést á Landspítalanum þann 3. ágúst.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þann
12. ágúst klukkan 13.00. Blóm og kransar
eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Parkinsonsamtökin.
Sigríður Ingvarsdóttir
Ingvar Guðmundsson
Hrefna Guðmundsdóttir
Rut Steinsen
Jens Páll Hafsteinsson
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Elskulegur eiginmaður minn og vinur, faðir,
tengdafaðir, tengdasonur og afi,
GUÐJÓN BREIÐFJÖRÐ ÓLAFSSON
lést á gjörgæsludeild Landspítalans 1. ágúst.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju 13. ágúst
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð. Þeim sem vilja minnast hans er
bent á að styrkja Ljósberasjóð Vídalínskirkju.
Finnbjörg Skaftadóttir
Erna Rós Ingvarsdóttir Hörður Óskarsson
Guðrún Karólína Guðjónsdóttir Birgir Már Guðmundsson
Tinna Breiðfjörð Guðjónsdóttir Gunnar Þór Bergsson
Erna Hannesdóttir Helgi Arnlaugsson
og barnabörn.
MERKISATBURÐIR
1580 Katla gaus.
1794 Sveinn Pálsson og maður með honum gengu á Öræfajök-
ul. Var þetta önnur ferð manna á tindinn. Talið er að Sveinn hafi
fyrstur manna gert sér grein fyrir eðli og hreyfingum skriðjökla í
þessari ferð.
1951 Á Bíldudal var afhjúpaður minnisvarði um Pétur J. Thor-
steinsson og konu hans, Ásthildi, en Pétur rak þar verslun og þil-
skipaútgerð og gerði síðar út frá Reykja-
vík.
1973 Austurstræti í Reykjavík var gert
að göngugötu til reynslu. Síðar var það
opnað bílaumferð aftur að hluta.
1979 Flak af Northrop-flugvél sem
nauðlenti á Þjórsá og sökk þar 1943 var
tekið upp og gefið safni í Noregi.
2006 Síðustu þrjár F15-þoturnar yfir-
gáfu Keflavíkurstöðina og þar með var
Ísland herþotulaust í fyrsta skiptið síðan
1953.
„Læknirinn sagði að venjulegt ferli
væri aðgerð, geislameðferð og lyf. Ég
stoppaði hann aðeins og sagðist vilja
skoða málið aðeins og strax eftir þrjá
daga var ég byrjaður á 40 daga djús-
föstu með ákveðnum efnum í sem eiga
að hafa áhrif,“ segir Gunnar L. Frið-
riksson, nuddari og sjúkraliði, sem
greindist með krabbamein á 2. stigi í
byrjun júní í sumar. Hann kveðst hafa
fengið leiðbeiningar hjá góðu fólki með
reynslu af því að bæta ristilvandamál,
jafnvel krabbamein, með sérstöku mat-
aræði, og einnig lesið ógrynnin öll af
efni á netinu um ýmsar aðferðir. „En ég
hef hvergi hitt fólk sem hefur læknast
með óhefðbundnu aðferðunum eða
fengið svör um hvar það fólk sé. Mig
langar að lýsa eftir því,“ segir hann.
Meðal þess sem Gunnar hefur
fræðst um á síðustu vikum er matar-
sódameðferð, nálastungur og notkun
fæðubótarefna gegn ristilvandamálum.
„Það er enginn að láta mig gera neitt
– enginn sem segir: „Ekki fara hefð-
bundnu leiðina,“ fólk kemur bara með
hugmyndir í púkkið en ég útbjó sjálfur
þann pakka sem ég er að prófa. Lækn-
irinn minn leyfir mér að ráða ferðinni
en leynir því ekki að ef hann fengi að
ráða mundi hann skera mig strax. Ég
mun hitta lækninn aftur í byrjun sept-
ember og þá kemur í ljós hvernig stað-
an er.“
Auk þess að vera nuddari er Gunn-
ar í 40% vinnu á Grund sem sjúkra-
liði en er í sjúkraleyfi þaðan núna. Svo
hefur hann líka kennt nudd og núvit-
und í Hugleiðslu-og friðarmiðstöðinni.
Hann á konu og samanlagt eiga þau sjö
börn, þó engin saman.
Gunnar kveðst sofa meira en áður
og hafa minna starfsþrek. Hann neit-
ar því ekki að mikinn andlegan styrk
þurfi til að standa í svona baráttu. „Í
þessu ferli legg ég áherslu á að halda
voninni og trúa á bata. Ég hef hug-
leitt mikið síðustu ár, nú hugleiði ég
enn meira. Það tók mig þrjá daga að fá
óttann í burtu með ákveðnum aðferð-
um. En ég finn óttann hjá fjölskyld-
unni og út um allt, líka hjá heilbrigð-
isstarfsfólki. Ég segi bara: „Slakið á,
þetta er mitt líf og minn líkami. Ég
verð að díla við vandamálið á minn
hátt“,“ segir Gunnar. „Ég vona að ein-
hver sem getur miðlað mér af reynslu
sinni hafi samband við mig í gegnum
netfangið gunnar@dao.is. Einhver
sem hefur læknað sig með svipuðum
aðferðum og ég er að reyna, eða látið
þær hjálpa hefðbundnu leiðinni.“
gun@frettabladid.is
Legg áherslu á að halda
voninni og trúa á bata
Gunnar L. Friðriksson, nuddari og sjúkraliði, greindist með krabbamein í ristli en hefur
ekki farið í hefðbundna meðferð heldur freistar þess að ná bata með óhefðbundnum
aðferðum. Hann langar að ná sambandi við fólk sem hefur reynt það sama og haft sigur.
GUNNAR „Það
tók mig þrjá
daga að losna
við óttann með
ákveðnum aðferð-
um,“ segir hann.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Upphafsmaður skátahreyfingarinnar,
Robert Baden-Powell lávarður, kom
til Íslands ásamt konu sinni, Olave St.
Claire Baden-Powell, og dóttur þeirra
þennan dag árið 1938. Baden-Powell
var þá áttatíu og tveggja ára en kona
hans fimmtug. Þau komu með breska
skátaskipinu Orduna til Reykjavíkur
eftir þriggja daga siglingu frá Liverpool.
Á skipsfjöl voru hvorki meira né minna
en 464 skátaforingjar frá Englandi.
Mest bar á kvenskátaforingjum en þó
voru drengjaforingjar einnig með í för.
Bandalag íslenskra skáta og stjórn
kvenskáta tóku virðulega á móti
Powell-fjölskyldunni og fylgdarliði
hennar í borginni. Að því búnu steig
öll hersingin upp í bifreiðir sem fluttu
hana austur í Árnessýslu að skoða nátt-
úruperlurnar Gullfoss og Geysi.
Baden-Powell gerði sér far um að
koma til sem flestra landa veraldar og
var nýlega kominn frá Afríku þegar
hann lagði upp í Íslandsferðina.
ÞETTA GERÐIST 11. ÁGÚST 1938
Baden-Powell skátahöfðingi kom til Íslands