Fréttablaðið - 11.08.2014, Síða 10

Fréttablaðið - 11.08.2014, Síða 10
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 FÓLK „Það er mjög óvenjulegt að geta skíðað niður þetta fjall, ekki síst í júlí en það var einmitt snilldin við þetta,“ segir Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungna- skurðlæknir, sem renndi sér nýverið niður Herðubreið á skíð- um en óvenju mikill snjór hefur verið í fjöllum á norðanverðu hálendinu í sumar. Þetta var í fimmtánda sinn sem Tómas gekk á Herðubreið en segir að þessi ferð hafi verið sú allra eftirminnilegasta enda löng og brött brekka niður fjallið. „Það var hópur frá Fjallafélaginu sem hafði gengið á fjallið helgina á undan og þau sögðu mér að þarna væri mikill snjór. Ég var með fjallaskíðin í bílnum og gat ekki hætt að hugsa um þetta, enda lengi dreymt um að skíða þarna niður. Síðan plataði ég konuna til þess að keyra með mér að rótum fjallsins,“ segir Tómas, sem var um tvo og hálfan tíma að kom- ast upp á topp með fjallaskíðin á bakinu. Tómas kveðst ekki vera sá fyrsti til þess að skíða niður Herðubreið en þó hafi ekki mjög margir látið á þetta reyna. Veðr- ið var gott á leiðinni og það tók Tómas ekki nema um korter að renna sér niður. „Það var ekki alveg heiðskírt en það var sól og frábært skyggni. Hlýtt veður olli þó grjóthruni í hamrabeltinu sem gerði gönguna varasama en það er hætta sem ég vissi af.“ Tómas er mikill fjallgöngumað- ur en hann starfaði sem fjallaleið- sögumaður á meðan hann var í læknanámi. Hann segir frábært að geta sameinað fjallgönguna og skíðaáhugann. „Mér finnst alveg magnað að geta prílað þarna upp og farið niður á skíðunum. Þetta er svolítið nýja æðið í fjalla- mennsku á Íslandi og sem betur fer eru sífellt fleiri að uppgötva fjallaskíðin. Í rauninni fara skíðin miklu betur með líkamann og þá sérstaklega hnjáliðina. Uppgang- an er auðveld en mest munar um minna álag á hnén, þegar gengið er aftur niður.“ Tómas lét ferðina á Herðubreið þó ekki nægja í sumar. „Þetta er annað sumarið í röð sem ég er með skíðin í bílnum á ferðalagi um landið. Ég skíðaði með Ólafi Má Björnssyni augnlækni niður Kverkfjöllin í sumar og svo skellt- um við okkur einnig niður Birnu- dalstind í sunnanverðum Vatna- jökli. Svo fór ég á gönguskíðum inn í Öskju að skoða hamfara- hlaupið svo sumarfríið mitt var í rauninni skíðafrí.“ kristjana@frettabladid.is Fór á skíðum niður Herðubreið Tómas Guðbjartsson, hjarta- og lungnaskurðlæknir, renndi sér á skíðum niður Herðubreið í sumar en afar mikill snjór hefur verið í fjöllum á norðanverðu hálendinu í júlí. Tómas segir það færast í aukanna að skíða niður hin ýmsu fjöll og kallar þetta nýjasta æðið á Íslandi. „SELFIE“ Á TOPPNUM Tómas var einn á ferð þegar hann fór upp Herðubreið og því engin önnur leið en að taka eina góða „selfie“ á toppnum. ÚR KVERKFJÖLLUM Hér sést Tómas á fleygiferð niður Kverkfjöllin en í baksýn má sjá Dyngjujökul. MYND/ÓLAFUR MÁR BJÖRNSSON Á TOPPI HERÐUBREIÐAR Hér sjást Kverkfjöll og Herðubreiðartögl í baksýn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.