Fréttablaðið - 11.08.2014, Side 48
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 24
Ofurfyrirsætan Kate Moss þén-
aði 5 milljónir punda, eða tæpan
milljarð, á síðasta ári en hin
fertuga Moss gerði góða samn-
inga við fatakeðjurnar Topshop
og Matchless, ásamt snyrtivöru-
framleiðandanum Rimmel.
Heimildarmaður sagði við breska
dagblaðið The Sun að að tekjur
hinnar fertugu ofurfyrirsætu
aukist bara með árunum og að
fyrirtæki vilji borga háar fjár-
hæðir fyrir að fá hana í auglýs-
ingaherferðir sínar. Kate Moss er
tekjuhæsta ofurmódel Bretlands
en hún hefur starfað í fyrirsætu-
bransanum frá árinu 1988.
Tekjuhæsta
ofurmódelið
VELLAUÐUG Það væsir ekki um
tekjuhæstu ofurfyrirsætu Bretlands.
Spunahópurinn Haraldurinn frumsýnir sína
fyrstu íslensku spunasýningu á Menningar-
nótt þann 23. ágúst næstkomandi.
Stöllurnar og leiklistarnemarnir Þuríður
Blær Jóhannsdóttir og Vala Kristín Eiríks-
dóttir taka þátt í uppfærslunni.
„Dóra Jóhannsdóttir leikkona býr í New
York þar sem hún rambaði inn á námskeið hjá
leikhúsi sem heitir Upright Citizens Brigade
(UCB) og kennir svokallaðan langspuna eða
„long-form improv“. Henni fannst þetta svo
ótrúlega skemmtilegt og var viss um að það
væri pláss fyrir þessa týpu af leikhúsi hérna
heima, þannig að hún byrjaði að halda nám-
skeið á Íslandi þegar hún gat og nú hafa um
það bil 150 manns farið á námskeiðin hjá
henni,“ segir Vala.
Spunaaðferðin sem um ræðir hefur verið
grundvöllur fyrir fjölmargt hæfileikafólk
úti í heimi sem allir þekkja líkt og Tinu Fey,
Steve Carrell og Amy Poehler. „Svona leikhús
hefur aldrei verið gert áður á Íslandi og það
er sjúklega spennandi að sjá hvernig Íslend-
ingar taka í þetta,“ segir Blær.
Frumsýningin á Menningarnótt verður í
Kassanum við Þjóðleikhúsið á milli 18.00 og
22.00 og aðgangur verður ókeypis. „Þetta
verður eitthvað rosalegt,“ segir Blær.
Engin ákveðin hlutverk eru í spunahópnum
fyrir utan að Dóra er kennarinn og leiðbeinir
nemendunum.
„Svo hjálpumst við líka öll að við að gera
þetta að möguleika með því að redda húsnæði,
skipuleggja æfingar og þess háttar. Mjög flat-
ur strúktúr og allir vinir,“ útskýrir Blær.
„Enda ekki annað hægt í Haraldinum því að
við vitum aldrei hvaða sögu við erum að fara
að segja eða hvaða persónur verða til. Við
þurfum á öllum hópnum að halda því að við
byggjum söguna saman,“ bætir Vala við.
„Og það er það sem er svo fallegt við spun-
ann. Þetta snýst um að hlusta, taka áhættur,
vera í núinu, styðja aðra og vera jákvæður.
Það er mjög mannbætandi heimspeki á bak
við þetta.“ nanna@frettabladid.is / olof@frettabladid.is
Mannbætandi heim-
speki í spunalistinni
Fyrsta íslenska spunaleiksýningin verður fl utt í Kassanum á Menningarnótt. Hópurinn
byggir söguna saman og því þarf hver að hlusta á annan og vera jákvæður.
SKAPA PERSÓNUR
Þátttakendur í Har-
aldinum eru úr öllum
áttum. Þeir skapa
söguna og persón-
urnar í sameiningu.
Forvarnasplatter
Fyrir rúmlega ári sat ég einn heima hjá mér að gera ekki neitt þegar ég tók þá
ákvörðun að nú væri komið að því. Ég hafði
slegið þessu á frest þar sem ég taldi mig
ekki nægilega andlega undirbúinn. En nú
skyldi ég reyna að finna ljósmynd af ein-
hverjum sem hefði lent undir valtara.
GOOGLE var vinur minn og innan
nokkurra mínútna var ég kominn inn
á vafasama vefsíðu sem virtist geta
svalað forvitni minni. Ég fann myndir
af manni sem hafði að vísu bara lent
með annan handlegginn undir valtara
en myndirnar voru eins og við var að
búast. Handleggurinn var flatur,
eiginlega meira eins og væng-
ur, og svo lak eitthvert sull
meðfram hliðunum. Því-
líkur hryllingur! Þetta
var miklu fyndnara í
teiknimyndunum.
EN ég hætti ekki þarna.
Næstu tvær klukku-
stundirnar horfði ég
á eina óhuggulegustu
myndbandasyrpu sem
nokkur hefur horft á. Ég ætla að hlífa
ykkur við smáatriðunum svo þið missið nú
ekki morgunmatarlystina en flest mynd-
böndin enduðu á því að einhver varð að
klessu.
ÞAÐ má færa rök fyrir því að þessi áhugi
minn á sundurtættum mannslíkömum sé
ástæða til þess að leita sér hjálpar fagfólks.
Ég lít þó eilítið öðrum augum á þetta. Þetta
eru forvarnir.
Á hverjum degi hugsa ég um eitthvað af
myndböndunum. Ég keyri hægar og mér
dettur ekki í hug að labba fram hjá still-
önsum. Ég er dauðhræddur við skotvopn
og ég lít að minnsta kosti þrisvar til beggja
hliða þegar ég geng yfir götu. Ég er hættur
að treysta umhverfinu því að það er hrein-
lega stórhættulegt. Sá eini sem heldur mér
á lífi er ég sjálfur. Daglegt líf mitt er orðið
eins og síðasta borðið í erfiðum tölvuleik.
Hlutir detta og þjóta, velta og springa. Og
mannslíkaminn er svo viðkvæmur. Það má
svo lítið út af bera og þá er maður orðinn
að klessu. Dauðri klessu. Game over.
EKKI ég.
F
AC
EB
O
O
K/
IM
PR
O
V-
H
AR
AL
D
U
RI
N
N
BAKÞANKAR
Hauks Viðars
Alfreðssonar
LUCY 6, 8, 10:35(P)
SNOWPIERCER 8
NIKULÁS LITLI 3:50
HERCULES 8, 10:10
AÐ TEMJA DREKAN SINN 2D 5
22 JUMP STREET 5
THE PURGE: ANARCHY 10:10
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
LUCY LÚXUS
GUARDIAN. . . GALAXY 3D
GUARDIAN. . . GALAXY 3DLÚXUS
SEX TAPE
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D
VONARSTRÆTI
KL.. 3.10 - 5.40 - 8 - 10.10
KL. 10.40
KL. 3.10 - 5 - 8 - 10.40
KL. 5 - 8
KL. 8 - 10.10
KL. 8 - 10.45
KL. 3.30 - 5.45
KL. 5.20
LUCY
NIKULÁS Í FRÍI
SEX TAPE
DAWN . . . PLANET OF THE APES 3D
22 JUMP STREET
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI
VONARSTRÆTI
KL. 5.50 - 8 -10.10
KL. 5.45 - 8
KL. 5.40 - 8 - 10.10
KL. 10.15
KL. 10.40
KL. 5.20
KL. 8
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
MOVIEPILOT.COM
HITFIX WASHINGTON POST NEW YORK DAILY NEWS
MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 12 ÁGÚST: 20.00
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Þetta snýst um að hlusta, taka
áhættur, vera í núinu, styðja aðra
og vera jákvæður. Það er mjög
mannbætandi heimspeki á bak við
þetta.
Vala Kristín Eiríksdóttir spunaleikkona.