Fréttablaðið - 11.08.2014, Page 54
11. ágúst 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
„Ég blanda mér sjálf drykk úr einu
grænu epli, 1-2 sellerístöngum, sker
niður engifer og set í blandara.
Svo kreisti ég örlítið lime og set
nýpressaðan ávaxtasafa og vatn út
í. Þessi kemur mér alveg í gang á
daginn.“
Maria del Carmen Jimenez Pacifico fyrirsæta.
UPPÁHALDSDRYKKURINN
„Ég sé mjög eftir því núna að hafa
gefið öll spjöldin mín á sínum
tíma,“ segir leikaraneminn Aron
Már Ólafsson, en Aron leitar nú
dauðaleit að gömlu góðu Pokémon-
spilunum.
Hann segir að hægt sé að fá háar
upphæðir fyrir réttu spilin, þá sér-
staklega ef viðkomandi á réttu
útgáfuna af Charizard í glansi.
„Ég var að passa strák á dögun-
um og hann átti fullt af Pokémon.
Ég fór að skoða möppuna hans og
sá að hann átti fyrstu útgáfuna
af Char izard. Ég fór svo að skoða
hvað væri hægt að fá fyrir spilið
og sá bæði á eBay og Amazon að
það væri hægt að fá 2.000-2.500
dollara fyrir spilið, sem er gjör-
samlega fáránlegt.“ Pokémon-
æðið gekk yfir heimsbyggðina
fyrir tæpum tveimur áratugum
og eflaust fá mannsbörn á Íslandi
sem ekki muna eftir spilunum.
„Ég átti alveg 4-5 troðfullar
möppur af spilum. Nú langar mig
mjög mikið að smala
saman öllum Chariz-
ördum landsins og
athuga hvort það fást
einhverjar upphæðir
fyrir þetta. Annars er
bara hægt að nota þá
sem flott veggfóður,“
segir Aron eldhress. - ka
Leitar að Charizard í glansi
Aron Már Ólafsson leitar nú að ákveðinni glansútgáfu af Pokémon-spilinu Char-
izard. Hægt er að fá háar upphæðir fyrir spilið, sé það í góðu ásigkomulagi.
SAKNAR SPILANNA Aron
átti sjálfur 4-5 möppur
troðfullar af Pokémon-
spilum á sínum tíma en
gaf svo möppurnar.
VERÐMÆTUR DREKI Eigir
þú fyrstu útgáfuna af Char-
izard í glansi ertu í góðum
málum.
„Við vildum bara hjálpa íslensku tónlistarsenunni að
koma sér á framfæri á heimsvísu,“ segir Chris Sea
en hann er blaðamaður á ROK Music, nýju nettíma-
riti sem sérhæfir sig í að kynna íslenskt tónlistar-
fólk fyrir heiminum.
Ritstjóri tímaritsins Benjamin Mark Stacey lærði
grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands og sést
það greinilega á stílhreinni hönnun síðunnar. „Við
erum að færast í átt að meiri podcast-pælingu,“
segir Benjamin. „Við viljum koma tónlistarmönnum
saman og taka upp samræður þeirra um íslensku
tónlistarsenuna og kynna þá í leiðinni,“ segir rit-
stjórinn en nýja podcastið ber nafnið Tónmatur og
hefur þegar eitt slíkt verið sett á síðuna rokmusic.
com.
„Hugmyndin að síðunni kom þegar erlendir blaða-
menn voru að taka viðtal við mig í kringum Airwa-
ves. Þá var undantekningarlaust spurt af hverju
íslenska tónlistarsenan er svo virk,“ segir Benjam-
in. „Hugmyndin að tímaritinu er að reyna að fanga
hvirfilvind íslenskrar tónlistar í rauntíma og segja
heiminum frá því sem er að gerast hérna.“
baldvin@365.is
Fanga hvirfi lvind íslenskrar tónlistar
Benjamin Mark Stacey og Chris Sea opnuðu á dögunum nettímaritið ROK
Music sem sérhæfi r sig í að kynna íslensku tónlistarsenuna fyrir heiminum.
GÓMSÆTUR TÓNMATUR Félagarnir vilja koma íslenskum
tónlistarmönnum saman að spjalla um senuna.
„Mig langaði að kafa dýpra inn í
þennan heim en mörg vandamál
í dag þurfa nýjar lausnir,“ segir
Anna Gyða Sigurgísladóttir, sem
undanfarið ár hefur unnið að
gerð heimildarmyndar um sam-
félagslega frumkvöðlastarfsemi
eða „social entrepreneurship“.
Hugtakið er flókið í skilgreiningu
og hafa fræðimenn víða um heim
deilt um hvernig beri að útskýra
það.
Grunnhugmyndin er þó sú að
samfélagið eigi að hagnast á ein-
hvern jákvæðan hátt af frum-
kvöðlastarfseminni. Anna Gyða
ákvað upp á eigin spýtur að
kynna sér hugtakið. „Ég byrjaði
að rannsaka þetta sjálf og skoða
fyrir um tveimur árum. Ég fékk
síðan styrki til þess að fara á fullt
með verkefnið. Ég er ekkert lærð
í kvikmyndagerð en hafði alltaf
stefnt að því að gera heimildar-
myndir einhvern tímann í lífinu.
Það að ég þurfti að kenna mér allt
sjálf var eitt það skemmtilegasta
við þetta allt saman og það er líka
eitthvað sem frumkvöðlastarf-
semi er, að henda sér svolítið út í
djúpu laugina og byggja eitthvað
algjörlega upp frá rótum.“
Myndina tók Anna Gyða upp
frá júlí til október í fyrra en hún
ferðaðist víða um heim til þess
að dýpka skilning sinn á hugtak-
inu. „Ég tók viðtöl við alls konar
fræðimenn í Brussel, Stokkhólmi,
Boston og New York, ásamt því
að taka tvö Skype-viðtöl í Kanada
annars vegar og Perú hins vegar.
Ég fékk meira að segja að spjalla
við mann sem fyrstur kom með
þetta hugtak árið 1981, Bill Dray-
ton. Það var mjög áhugavert.“
Nú er myndin komin langt á
veg og skilgreining hugtaksins
að taka á sig góða og skýra mynd.
„Markmiðið er svo að setja upp
síðu þar sem myndin verður
aðgengileg öllum. Þetta er ekki
gert í neinu gróðaskyni. Þetta er
algjört ástríðuverkefni enda hef
ég óbilandi trú og áhuga á sam-
félagslegri frumkvöðlastarf-
semi.“
kristjana@frettabladid.is
Gerði heimildarmynd
um óskilgreint hugtak
Anna Gyða Sigurgísladóttir kynntist hugtakinu samfélagsleg frumkvöðlastarf-
semi fyrir tveimur árum. Áhugi hennar á hugtakinu varð að heimildarmynd.
FYRSTA HEIMILDARMYNDIN Anna Gyða segist ekki hafa lært neina kvikmyndagerð en að sig hafi lengi langað til þess að gera
heimildarmynd. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR