Fréttablaðið - 22.09.2014, Síða 6

Fréttablaðið - 22.09.2014, Síða 6
22. september 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Otrivin Comp - gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu HEILBRIGÐISMÁL Vinnueftirlitinu berast mjög takmarkaðar upplýs- ingar um atvinnusjúkdóma hér á landi. Tilkynningar sem stofn- uninni berast eru aðeins brot af því sem gera mætti ráð fyrir ár hvert og fyrir vikið tapast dýr- mætt tækifæri til forvarna í sam- félaginu. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins, gerir vanskrán- ingu atvinnutengdra sjúkdóma að umtalsefni í inngangi nýrrar árs- skýrslu stofnunarinnar. Þar bend- ir hann á að árið 2010 var tilkynnt um átta tilfelli en 24 í fyrra, þar af 15 vegna vandamála sem tengj- ast myglusveppi en þau hafa verið mikið í sviðsljósinu. Eyjólfur segir ljóst að ný reglu- gerð um tilkynningu og skrán- ingu atvinnusjúkdóma, sem tók gildi árið 2011, hafi litlum árangri skilað. Margt kemur til, segir Eyjólfur. Orsakasamhengi getur verið flókið þegar kemur að atvinnusjúkdóm- um og tilkynningaskylda hvílir á herðum læknis, ekki atvinnurek- anda. „Læknar virðast almennt tregir til að kveða upp úr um það að mestar líkur séu á að sjúkdóm- ur orsakist af vinnuumhverfinu. Hér skiptir einnig máli að ekki eru greiddar bætur úr almannatrygg- ingum vegna atvinnusjúkdóma með sama hætti og vinnuslysa og hagsmunir sjúklings af greiningu því ekki taldir miklir. Sá sem fyrir heilsutjóni hefur orðið getur vissu- lega leitað réttar síns í einkamáli fyrir dómstólum en það er torfar- in leið. Að þessu leyti stöndum við langt að baki nágrannalöndunum þar sem betur er séð fyrir þessum hlutum og nefni ég Danmörku sem dæmi,“ skrifar Eyjólfur og bætir við að þetta leiði til þess að kostn- aður einstaklinga og samfélagsins komi ekki upp á yfirborðið og hvati til forvarna verði minni en ella. Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins, segir að athugun innan Vinnueftirlitsins hafi leitt í ljós að búast mætti við allt að 200 tilkynningum á ári að lágmarki. Hér þarf þó að slá varnagla, segir Kristinn. Fjöldi tilfella tengdra myglusveppi kom til vegna þess að vandamálið kom upp á Landspítal- anum. „Það leiddi til þess að fleiri hundruð starfsmenn á spítalanum voru skoðaðir. Einstaklingur til- kynnir sig veikan sem leiðir í ljós að hópur fólks er mögulega í hættu og þá eru úrbætur gerðar sem koma mörgum til góða,“ segir Kristinn og hnykkir á forvarnagildi eins tilfell- is en jafnframt að það skekki nokk- uð myndina sem dregin er upp í töl- fræði um atvinnusjúkdóma. svavar@frettabladid.is Ekki þess virði að tilkynna um atvinnusjúkdóma Tilkynningar um atvinnusjúkdóma til Vinnueftirlitsins eru mun færri en búast mætti við. Ástæðan virðist sú að einstaklingar telja það ekki fyrirhafnarinnar virði. Með einni tilkynningu er hægt að uppræta vanda á stórum vinnustöðum. Mun betur er séð fyrir þessum hlutum í nágrannalöndunum, þar á meðal í Danmörku. 1. Hversu margir dómarar starfa við Hæstarétt í dag? 2. Hversu mörg prósent kjósenda í Skotlandi kusu með aðskilnaði frá Englandi? 3. Hversu margir minkar eru veiddir árlega í Reykjavík? SVÖR Læknar virðast almennt tregir til að kveða upp úr um það að mestar líkur séu á að sjúkdómur orsakist af vinnuumhverfinu. Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins. FRÉTTABLAÐ IÐ /AN TO N 1. Níu 2. 45 prósent 3. 30-40 ÖKULEIKNI Íslandsmeistarakeppni í Ökuleikni á rútum og trukk- um fór fram við Borgartún um helgina en Brautin – bindindis- félag ökumanna stóð fyrir keppn- inni. Til leiks voru skráðir 15 kepp- endur. Eftir að hafa svarað um- ferðar spurningum byrjuðu kepp- endur á að aka rútum frá SBA Norðurleið í gegnum tvö þrauta- plön. Á einu planinu var ekið á stórri rútu en á lítilli rútu á öðru planinu. Eftir að hafa ekið í gegn á rútum var skipt yfir á trukk frá Líflandi og sendibíl frá Öskju. Verðlaun voru veitt fyrir efstu þrjú sætin í einstaklingskeppni og efsta sæti í liðakeppni. Eimskip gaf verðlaun fyrir trukkakeppn- ina og Askja fyrir rútukeppnina. Með besta rútutímann var Kristján Jóhann Bjarnason á 491 sekúndu en Björgvin Gunnarsson var með besta trukkatímann, 322 sekúndur. - þij Bílahasar við Borgartún: Fimmtán áttust við í ökuleikni SIGURSÆLIR Sigurvegararnir stilltu sér að sjálfsögðu upp á mynd. TYRKLAND, AP Rúmlega hundrað þús- und sýrlenskir flóttamenn hafa leit- að hælis í Tyrklandi frá því að átök Íslamska ríkisins og Kúrda hófust í grennd við landamærabæinn Kob- ani á fimmtudag. Tyrknesk stjórn- völd segjast reiðubúin til að taka á móti þessum mikla mannfjölda en alls er talið að ein og hálf milljón manns hafi leitað hælis í Tyrklandi á síðustu þremur og hálfa árinu. Flestir flóttamannanna eru Kúrd- ar sem reyna að flýja áframhald- andi framsókn íslamista í Norður- Sýrlandi. Nú er talið að samtökin hafi lagt undir sig rúmlega sextíu borgir á svæðinu frá því um miðja síðustu viku. Harðvítug átök standa yfir við Kobani þar sem liðsmenn Íslamska ríkisins ráðast gegn almenningi með skriðdrekum og eldflauga- vörpum, að sögn sýrlenskra varnar- liða. Þrátt fyrir að Tyrkir hafi verið viljugir til að hleypa fólki inn fyrir landamæri sín hafa þeir takmarkað flæði fólks frá landinu. - bá Flóttamenn streyma inn í Tyrkland vegna átaka Íslamska ríkisins og Kúrda: Hundrað þúsund flýja Sýrland LEITA HÆLIS Hópur sýrlenskra Kúrda bíður við landamærabæinn Suruc í Tyrklandi. NORDICPHOTOS/AFP SAMFÉLAGSMÁL Haldið var mót í mennsku fótboltaspili við Hótel Sögu á laugardag í tilefni af Skor- um til góðs, árlegu átaki Radisson BLU og Hótel Sögu. Samstarfsaðil- ar hótelanna öttu kappi og greiddu þátttökugjald fyrir hvert lið en ágóðinn rann óskiptur til Ljóns- hjarta, stuðningssamtaka fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn sem hafa misst foreldri. Þetta er 13. árið í röð sem Carl- son Rezidor-hótelkeðjan efnir til þessa samfélagsátaks. - þij Hótel með góðgerðarsöfnun: Skorað til góðs í fótboltaspili VIÐ STÖRF Heilsu- tjón og samfélags- kostnaður er marg- falt meiri vegna atvinnusjúkdóma en vinnuslysa. DANMÖRK Sniðganga veitingahús Rúmlega eitt hundrað þúsund Danir hafa sett nafn sitt við Facebook-síðu þar sem fólk er hvatt til að sniðganga hina þekktu dönsku veitingahúsakeðju Jensen’s Bøfhus. Fjölmiðillinn Berlingske Tidende greindi frá þessu í gær. Málið má rekja til dóms hæstaréttar þar í landi sem kvað á um að veitingamaðurinn Jacob Jensen frá Sæby mætti ekki nefna stað sinn „Jensens Fiskerestaurant“ því nafninu þótti svipa of mikið til nafns veitingahúsakeðjunnar. VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.