Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 16
22. september 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT Innilegar þakkir fyrir hlýhug og auðsýnda samúð við andlát og útför okkar elskulegu eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÖNNU GÍGJU GUÐBRANDSDÓTTUR Sérstakar þakkir til starfsfólks krabbameins- deildar Landspítalans, Ljóssins og Karitas fyrir einstaka umönnun og hlýhug. Haraldur Eiríksson Agnes Úlfarsdóttir Kristján Þ. Björgvinsson Eiríkur Haraldsson Guðrún Olsen Pétur Haraldsson Soo-Kyung Pak-Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir okkar, SIGURSTEINN HJALTESTED blikksmiður, lést að heimili sínu 15. september. Útförin fer fram fimmtudaginn 25. september klukkan 13.00 frá Fossvogskirkju. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Systkini hins látna. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, VALUR ÓSKARSSON kennari, lést fimmtudaginn 18. september. Ásdís Bragadóttir Jóhanna Ósk Valsdóttir Bjartur Logi Guðnason Eva Huld Valsdóttir Ólafur Rúnar Ísaksson Bragi Þór Valsson Christina Van Deventer og barnabörn. MERKISATBURÐIR 1930 Ferðafélag Íslands tekur fyrsta sæluhús sitt í notkun. Það er í Hvítárnesi við Langjökul. 1957 Árbæjarsafn er opinberlega opnað almenningi með við- höfn. 1960 Frakkar viður- kenna sjálfstæði Malí. 1964 Söngleikurinn Fiðlarinn á þakinu er frumsýndur á Broad- way. 1973 Menntaskólinn í Kópavogi er settur í fyrsta skipti. 1980 Írak ræðst á Íran og þar með hefst átta ára stríð. 2006 Fréttastöðin NFS hættir útsendingum. Fyrstu Ólympíuleikum fatlaðra lauk í Madrid á Spáni þennan dag árið 1992. Sundkonan Sigrún Huld Hrafns- dóttir fór heim með flest verðlaun allra keppenda á mótinu, enda stóð henni enginn á sporði. Hún vann til níu gull- verðlauna, þar af fimm í einstaklings- greinum. Almennt voru Íslendingar sigursælir á leikunum og vakti frammistaða þeirra almenna athygli, einkum skaraði ís- lenska sundfólkið fram úr og hlaut alls tuttugu og ein verðlaun, tíu gull, sex silfur og fimm bronsverðlaun. Ólympíuförunum var vel fagnað við heimkomuna. Forseti Íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Davíð Oddsson for- sætisráðherra og Jóhanna Sigurðardótt- ir félagsmálaráðherra voru meðal þeirra sem tóku á móti þeim í Leifsstöð. ÞETTA GERÐIST: 22. SEPTEMBER 1992 Sigrún Huld með fl est verðlaun „Það var kona sem sagðist muna eftir mér í afmæli árið 1947. Þá var ég að spila á trommur þannig að ég byrjaði ferilinn 13 ára,“ segir Ragnar Bjarna- son, en hann fagnar áttræðisafmæli sínu í dag. Ragnar ætlar að syngja á meðan heilsan leyfir enda líður honum best í kringum tónlist. Tónlistarhæfileikana fékk hann í vöggugjöf því foreldrar hans voru hljómlistarfólkið Bjarni Böðvarsson og Margrét Lárusdóttir. Tvítugur var Raggi búinn að syngja inn á sína fyrstu plötu og skömmu síðar lék hann með KK sextettinum, Hljómsveit Svavars Gests og var í rúm tuttugu ár með sína eigin sveit, Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar, á Hótel Sögu. Eitt mesta ævintýrið á ferlinum segir Raggi hafa verið stofnun Sumargleðinnar sem ferðaðist um landið að sumri í fimmtán ár. „Það var bara allt brjálað í kringum þetta. Söngur, gleði og grín.“ Árið 1960 kom út lagið Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig sem lands- menn þekkja flestir. Til að byrja með varð Raggi að syngja það á hálftíma- fresti til að fá frið á böllum. „Það eru 54 ár síðan ég söng þetta inn í Kaup- mannahöfn. Ég vissi alltaf að þetta yrði vinsælt.“ Ragnar hélt upp á afmælið um helgina með tvennum tónleikum í Eldborgarsal Hörpu en um næstu helgi ferðast hann til Akureyrar þar sem tónleikarnir verða settir upp í Hofi. Að auki kom út sextíu laga safn- plata með hans helstu perlum. Platan heitir einfaldlega, Raggi Bjarna 80 ára. Eitt lagið sker sig úr af lögun- um sextíu á disknum en það er lagið Barn sem Ragnar samdi sjálfur. „Svavar Gests kom og sagði Raggi, þú verður að semja lag. Ég sagði við hann, ertu vitlaus maður ég hef aldrei samið lag. Það passar, sagði Svavar. „Þú ert alveg mátulega vit- laus til að gera það“.“ Aðspurður segist Ragnar ekki til- búinn til að hætta í tónlist. „Þetta er nú sú spurning sem er búin að vera gutla í kringum mig í rúm 20 ár. Ég svara henni ekki neitt. Ég get ekki sagt það. Ég spurði konuna hvort ég ætti ekki að hætta eftir áttræð- isafmælið. Hún sagði, ertu vitlaus maður, þú verður brjálaður. Hún veit hvernig mér líður best og það er í tónlistinni. Ég er ekki tilbúinn ennþá.“ Nánar verður rætt við Ragnar Bjarnason í Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld klukkan 18.55 í opinni dagskrá. asgeire@frettabladid.is Raggi Bjarna er ekki að hætta áttræður Tónlistarmaðurinn Ragnar Bjarnason fagnar áttræðisafmæli sínu í dag. Hann segist ekki tilbúinn að hætta í tónlistinni, enda líði honum best þar. Hvað segja samstarfsmennirnir? VISSI ALLTAF AÐ LAGIÐ YRÐI VINSÆLT Raggi Bjarna efaðist aldrei um að Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig yrði vinsælt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég held að Raggi sé einn mesti gleðigjafi sem þjóðin hefur eignast.“ Magnús Ólafsson leikari. „Hann er léttur og skemmti- legur. Mátulega kærulaus en samt algjör fagmaður.“ Jón Ólafsson tónlistarmaður „Það eru ekki margir sem þekkja týpuna. Hún er allt frá því að vera þessi kæruleysis- legi og lífsglaði lífskúnstner og í það að vera mjög vandaður listamaður, þvert ofan í það sem hann lætur uppi.“ Ómar Ragnarsson fjölmiðlamaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.