Fréttablaðið - 22.09.2014, Blaðsíða 54
22. september 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Faxafeni 5, Reykjavík, Sími 588 8477
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 11-16
Dalsbraut 1, Akureyri, Sími: 558 1100 • Skeiði 1, Ísafirði, Sími 456 4566
2015-LÍNAN
KOMIN Í BETRA BAK
BETRA BAK
Á R A A F
M Æ L I20%
KYNNINGAR-
AFSLÁTTUR
KOMDU
OG UPPLIFÐU
GÆÐADÝNU FRÁ
„Ég held það sé það allra versta
og ógeðslegasta sem ég hef gert,“
segir Hugleikur Dagsson um daga-
tal sem hann var að skila af sér. For-
lagið gefur dagatalið út fyrir næsta
ár og myndskreytir Hugleikur það.
Hver mánuður ársins er saga og
allir dagar mánaðarins rammi í
sögunni. „Sögurnar eru allar mín
persónulega tilraun til að toppa
sjálfan mig, því mér fannst ég vera
orðinn soldið „mainstream“, segir
Hugleikur, sem er þekktur fyrir
hnyttnar skopteikningar sínar sem
oft fara ansi langt yfir strikið. Hug-
leikur slær ekki slöku við
með dagatalinu og
lofar að sjokkera
landann duglega.
Dagatalið verð-
ur á ensku. „Enda
eru lesendur mínir
orðnir svo alþjóð-
legir,“ segir Hug-
leikur. Það er þó ekki
bara saga hvers mán-
aðar sem fylgir daga-
talinu heldur fylgir auk
þess stjörnuspá með sem
má með sanni segja að
sé ólík flestum stjörnu-
spám og alls ekki upp-
lífgandi. „Nei, hún er
mjög leiðinleg, ég stal
stjörnuspá af netinu,
víxlaði textum og
stjörnumerkjum. og
bætti við einhverj-
um óskunda. Bara
til að vera kvik-
indi,“ segir Hug-
leikur um spána. - vh
„Versta og ógeðslegasta sem ég hef gert“
Hugleikur Dagsson gerir dagatal þar sem hver mánuður er ein saga og allir dagar eru hluti af sögunni.
TOPPAR SIG Hugleiki fannst hann vera
orðinn of venjulegur og reynir því að
toppa sig með gerð dagatalsins.
„Ég elska námið mitt,“ segir Anna
Þóra Alfreðsdóttir, nemi í tann-
lækningum og fyrirsæta. „Ég veit
að ég er á hárréttri hillu í lífinu.
Svo er þetta líka fjölbreytt og gef-
andi starf,“ segir Anna. Hún segir
módelstörfin og tannlæknanám-
ið fara ágætlega saman en þó hún
láti námið ganga fyrir þá situr hún
fyrir þegar hún getur. „Það er líka
svo skemmtilegt, ég hef alltaf haft
ánægju af því að vinna á setti. Það
er einnig fjölbreytt og maður kynn-
ist góðu og skemmtilegu fólki í þess-
um bransa“ segir Anna, en margir
muna eftir henni sem stelpunni sem
lék í myndbandinu hjá bresku sveit-
inni Hurts. Hún og aðalsöngvari
sveitarinnar, Theo, halda enn góðu
sambandi. „Já, við dóum næstum
því við tökur á fyrra myndband-
inu þegar stór alda kom yfir okkur,
hnéskelin mín hoppaði úr stað og
brotnaði og eina ástæðan fyrir að
ég sogaðist ekki út með straumn-
um var því hann ríghélt í höndina
á mér. Þetta var sem betur fer síð-
asta skotið og ég man, í hálfgerðri
móðu, eftir þegar verið var að bera
mig í sjúkrabílinn að hafa verið
mjög harðorð við leikstjórann um
að það væri eins gott fyrir hann að
nota þetta skot því annars yrði ég
brjáluð,“ segir Anna og hlær. „Upp
frá þessu urðum við góðir vinir og
hann kemur oft til Íslands.“ Það kom
Önnu skemmtilega á óvart um dag-
inn að finna Facebook-síðu tileink-
aða henni, stofnaða af hópi búlg-
arskra stúlkna. „Það eru einhver
hundrað manns búin að líka við síð-
una, mér finnst þetta mjög fyndið
og við vinirnir höfum flissað mikið
yfir þessu.“ - asi
Vinsælasti tannlæknanemi í Búlgaríu
Anna Þóra er ef til vill best þekkt fyrir leik sinn í tónlistarmyndbandi Hurts.
VÍGALEG Í LÆKNAGALLANUM
Fyrirsætan og tannlæknaneminn
Anna Þóra finnur sig svo sannarlega í
tannlæknanáminu.
„Ég er haldin alvarlegri morgun-
maníu á háu stigi, þar sem ég er
mest aktív og með ferskastan huga
upp úr sjö á morgnana. Þannig að
ég er alltaf tilbúin í slaginn við
sólarupprás. Það hefur hingað til
ekki unnið með mér í tónlistinni.
Þar er betra að vera í stuði á kvöld-
in og sofa fram eftir,“ segir Val-
dís Þorkelsdóttir tónlistarmaður
sem stofnaði nýverið fyrirtæk-
ið Morning Mania Management í
Bretlandi.
„Fyrirtækið er minn eigin frí-
lansvettvangur þar sem ég gegni
hlutverki creative manager sem
er eins konar umboðsmaður skap-
andi lista,“ heldur Valdís áfram.
Hún segir verkefni sín marg-
þætt. „Ég er til dæmis að vinna
með Heru Hilmarsdóttur leik-
konu í að víkka verkefnahring
hennar hér í London. Auk þess
er ég umboðsmaður Ara Braga
Kárasonar trompetvirtúóss og
sérlegur sendiherra Hjaltalín í
Bretlandi. Einnig er ég yfir tón-
listardeild listafyrirtækisins ART
NAKED sem hefur starfsemi sína
hér í London. Þar felast verkefni
mín meðal annars í því að velja
inn smart tónlistarmenn fyrir
mánaðarlega viðburði í funheit-
um einkaklúbbi í Covent Garden,“
segir Valdís, létt í bragði.
„Í náinni framtíð ætla ég síðan
að vinna að því að koma fleiri snið-
ugum listamönnum á framfæri,
bæði hér í London og á Íslandi. Ég
er rosalega spennt fyrir þessu öllu
saman,“ heldur hún áfram.
Hugmyndina að fyrirtækinu
fékk Valdís daginn eftir að hún
skilaði mastersritgerð sinni í
menningarstjórnun. „Hera spurði
mig þá hvort ég vildi gera eitthvað
sniðugt með henni þar til ég fyndi
alvöru vinnu hér í London. Undan-
farnar vikur hefur þetta undið upp
á sig og er orðið að fullri vinnu,“
segir Valdís og bætir við. „Ég þarf
mögulega bráðum að fara að leita
eftir starfsnemum á næstunni.“
Starfið segir Valdís gríðarlega
fjölbreytt. „Þetta er náttúrulega
starf sem ég bjó mér bara til. Það
má segja að þetta sé eins konar
samsuða af fyrri reynslu sem tón-
listarkona, skrifta á RÚV, af veru
minni á IMG-umboðsskrifstofunni
í London auk akademískra fræða
úr mastersnáminu,“ segir Valdís
að lokum.
olof@frettabladid.is
Morgunmanía skilaði
sér loksins í vinnunni
Valdís Þorkelsdóttir stofnaði fyrirtækið Morning Mania Management í London á
dögunum. Hún vinnur meðal annars með Heru Hilmarsdóttur og Hjaltalín.
Hera spurði mig þá
hvort ég vildi gera eitt-
hvað sniðugt með henni
þar til ég fyndi alvöru
vinnu hér í London. Und-
anfarnar vikur hefur þetta
undið uppá sig og er orðið
að fullri vinnu.
LAUK NÝVERIÐ
MASTERS-
GRÁÐU Í MEN-
NINGARSTJÓR-
NUN Valdís
Þorkelsdóttir er
búsett í London.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Það er Rosanna með hljómsveitinni
Toto.
Eiríkur Þór Hafdal.
MÁNUDAGSLAGIÐ